Morgunblaðið - 18.05.2013, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2013
Lagið „Get Lucky“ með Daft Punk,
þar sem gestir eru engir aðrir en
Pharrell Williams (The Neptunes,
N.E.R.D.) og Nile Rodgers (Chic
m.a.) hefur nú selst í hálfri milljón
eintaka og er búið að vera á toppn-
um á breska smáskífulistanum þrjár
vikur í röð. Lagið er á toppnum í
fjölmörgum löndum öðrum nú um
stundir og staðfest hefur verið að
engu lagi hefur verið streymt jafn
oft á tónlistarveitunni vinsælu Spo-
tify. Algert Daft Punk æði hefur nú
gripið um sig í poppheimum og ligg-
ur ástæðan í stórmerkilegri auglýs-
ingaherferð sem sveitin hefur keyrt
í samstarfi við útgáfufyrirtæki sitt
Columbia. Þessi þróun mála var ekki
beint fyrirséð. Síðasta plata Daft
Punk, Human After All (2005) féll í
fremur grýttan jarðveg og parið
laumaði svona „la la“ hljóðmynd inn
á Tron: Legacy (2010). Sveitin hefur
því ekki verið okkur sérstaklega
hugstæð lengi vel en við sem heill-
uðumst af Homework (1997) og
Discovery (2001) áttum samt von á
því fremur en ekki að einhver tromp
myndu nú leynast undir hjálmunum.
En að þeim piltum tækist að sann-
færa heimsbyggðina um að næsta
plata þeirra, Random Access Memo-
ries, væri nokkurs konar heilagur
kaleikur sem við höfum öll þráð og
beðið óþolinmóð eftir er magnað af-
rek. Eða getur einhver útskýrt fyrir
mér af hverju Daft Punk er allt í
einu vinsælasta hljómsveit heims?
Það er eins og fimmfaldur Don Dra-
per sé að stýra þessu öllu saman.
Lyklar
Förum aðeins yfir þetta. Lykill-
inn að þessu er svofelld smá-
skammta-herferð (drip marketing)
þar sem brotum af væntanlegri
vöru er laumað út smátt og smátt,
með sífelldri stígandi í tilfelli Daft
Punk a.m.k.. Auk þess hefur sveitin
splæst saman gamaldags kynning-
araðferðum (risastór auglýs-
ingaskilti) og nýjum (vefþættir) á
einkar lunkinn hátt. Hvernig sem
plötunni á eftir að vegna, sölulega
sem listrænt séð, er þessi upptaktur
allur efni í eina kennslustund eða
tvær í markaðsfræðum. Daft Punk-
limir hafa sagt að samningurinn við
hið 125 ára gamla Columbia hafi
verið liður í ákveðinni fortíðarhyll-
ingu hjá þeim og tónlistin á plötunni
nýju er líka glettinn leikur með hið
gamla og hið nýja. Auglýsinga-
herferðin endurspeglar í raun það
sem koma skal á glúrinn hátt. Tón-
listin byggist t.a.m. að mestu á
frum-diskói og er að langmestu
„handspiluð“. En um leið nuddar
dúettinn sér glaður upp við
tæknina/framtíðina. Þetta er
dásamlega undirstrikað í spánýju
vefinnslagi sem má nálgast á op-
inberu youtube setri Daft Punk, þar
sem þeir, „vélmennin“, setja forláta
vínyleintak af plötunni undir nál í
einkar Tron-legu umhverfi.
Almenningur varð fyrst var við
herlegheitin er fimmtán sekúndna
stikla var sýnd í hinum rómaða og sí-
vinsæla bandaríska gamanþætti Sat-
urday Night Live. Þetta var í mars-
byrjun. Á Coachella-hátíðinni, sem
fram fór um miðjan apríl, var mun
lengri stikla sýnd og í kjölfarið fóru
tónlistaráhugamenn að taka við sér
svo um munar.
Hausklórandi
Spennan fyrir plötunni er nú í
hæstu hæðum. Hún kom út í Ástr-
alíu í gær en Ameríka og Evrópa
verða að bíða þar til eftir helgi.
Henni var þá streymt í heild sinni í
vikunni. Það er einfaldlega ekki
rými hér til að fara yfir alla anga
þeirrar hausklórandi markaðs-
herferðar sem hefur verið í gangi en
tugir pistla um hana eina og sér
fljóta nú um netið. Ég bendi að lok-
um á vefþætti þar sem nokkrir af
frægum samstarfsmönnum Daft
Punk á plötunni, þar á meðal Panda
Bear, Chilly Gonzales og goðsögnin
Giorgio Moroder, ásamt þeim Phar-
rell Williams og Nile Rodgers, tjá
sig um þátt sinn í plötunni.
En já, alveg rétt. Hvað með sjálfa
tónlistina? Ég var að fletta í gömlum
Morgunblöðum og sá að ég hafði val-
ið Discovery plötu ársins á sínum
tíma. Daft Punk er nefnilega flott
hljómsveit en athygli er eitt, inni-
hald annað. Um leið og maður dáist
að þessum meistaralegu markaðs-
töktum læðast að manni áhyggjur
um að þetta séu bara nýju fötin keis-
arans. Hvort svo sé eður ei kemur
væntanlega í ljós á næstu dögum og
því miður fyrir Daft Punk er aðeins
erfiðara að handstýra útkomunni úr
þeim þætti.
Sumarið verður
grímuklætt
» Tónlistin á plötunninýju er glettinn leik-
ur með hið gamla og hið
nýja. Auglýsinga-
herferðin endurspeglar
í raun það sem koma
skal á glúrinn hátt.
Huldumenn Meðlimir Daft Punk eru einatt klæddir forláta hjálmum á opinberum kynningarmyndum.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Random Access Memories er fjórða
breiðskífa Daft Punk Margslungin
og óvenjuvel heppnuð auglýsingaher-
ferð Smáskífan „Get Lucky“
hefur selst í hálfri milljón eintaka
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is
ÍSL TAL
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
12
12
12
16
FAST AND FURIOUS Sýnd kl.
STAR TREK 3D Sýnd kl. 2-5:20-8-10:40(P)
MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10
LATIBÆR Sýnd kl. 2 - 4 - 6
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30
THE CROODS Sýnd kl. 2
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
LAUGARDAGUR/MÁNUDAGUR SUNNUDAGUR
8
2-5:20-8-10:40(P)
8 - 10:40
2 - 4 - 6
5:30 - 10:10
2
Forsýnd á
sunnudag