Morgunblaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 - Höfuðborg og Heimir Bergmann kynna: Kirkjustétt 2-6, Grafarholti. Til sölu 264,3 m² verslunarrými við Kirkjustétt. Gæti hentað sem sjoppa/félagsheimili. 2 inngangar. Einnig hægt að skipta upp í 2 bil. Laust strax. Verð: Tilboð óskast. Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Bergmann í síma 630-9000 eða heimir@hofudborg.is Höfuðborg fasteignasala • Hlíðasmára 2, 6. hæð • 414-4488 Kirkjustétt • Verslunarrými Heimir Bergmann Sölufulltrúi 630-9000 Kristján Ólafsson hdl. Lögg. fasteignasali 414-4488 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Mörgum þykir leitt að nú sé ekki hægt að setjast niður á veitingastað í þjóðgarðinum á Þingvöllum og fá sér góðan mat. Það varð að engu þegar Valhöll brann árið 2009 og hefur síð- an aðeins verið lítill veitingaskáli á staðnum. „Það er ekki hægt að hafa það lengur svo að ekki sé möguleiki að fá sér annan matarbita í þjóðgarðinum, heldur en samlokur og súpu,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðs- vörður á Þingvöllum. Að sögn Ólafs mun það koma í ljós seinnipart þessa árs hvar nýja Val- höll mun rísa á Þingvöllum en þrír staðir eru til skoðunar. Hugmyndin er að á staðnum verði góður veit- ingastaður og veislusalur. „Fyrsti möguleikinn er gamli Val- hallarreiturinn, síðan kemur til greina að byggja á efri völlunum við furulundinn fyrir neðan Öxarárfoss og einnig er verið að skoða Hakið á Almannagjárbarmi,“ segir Ólafur Örn sem bætir við að nú þegar hefur verkfræðileg úttekt verið gerð en enn sé verið að bíða eftir að fá fleiri sjónarhorn eins og fagurfræðileg og söguleg. „Verkfræðilega úttektin sýndi að hentugast væri að byggja á Hakinu og nýta þar útsýni og þau mann- Guðni Einarsson gudni@mbl.is Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) ætlar að skrifa undir samning við SBK um áætl- unarferðir föstudaginn 28. júní næstkomandi, þrátt fyrir að Sam- keppniseftirlitið telji að alvarlegar samkeppnishindranir felist í einka- leyfi sem Vegagerðin veitti SSS til að sinna áætlunarakstri á milli Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykja- víkur. SSS bauð aksturinn út og voru til- boðin opnuð í mars sl. SBK átti lægsta tilboðið og bauð 38,5% hlut- fallslega þóknun af fargjaldi. Í fund- argerð stjórnar SSS frá 18. júní kemur fram að lögmanni sambands- ins verði falið að svara áliti Sam- keppniseftirlitsins og að tilkynna um undirskrift samningsins við SBK. Berglind Kristinsdóttir, fram- kvæmdastjóri SSS, sagði að álit Samkeppniseftirlitsins hefði borist á föstudaginn var. Stjórn SSS telji að gera þurfi athugasemdir við ýmsar rangfærslur í álitinu og muni taka sér tíma til þess. Berglind sagði að SSS ætti ekki annan kost en að skrifa undir samninginn við SBK. „Við erum með samning við Vega- gerðina sem kveður á um skyldur okkar um að sjá um þessa aksturs- leið,“ sagði Berglind. Hún sagði að þau gætu ekki annað en farið eftir lögum um fólksflutninga. Búið væri að bjóða út verkið og taka tilboði SBK. „Það skiptir í sjálfu sér ekki máli hvort við skrifum undir samn- ing eða ekki. Með því að taka tilboð- inu er kominn á samningur.“ Samkeppniseftirlitið segir að gera megi ráð fyrir að heildartekjur SSS af samningnum nemi a.m.k. hálfum milljarði kr. „Þetta stenst ekki,“ sagði Berg- lind. Hún sagði að SSS þyrfti m.a. að leigja aðstöðu í flugstöðinni í sam- vinnu við Isavia og leggja til miða- sölukerfi. „Tekjur af þessu mega ekki fara í rekstur sveitarfélaganna, það er bannað með lögum.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra sagði að verið væri að skoða málið lögfræðilega í ráðu- neytinu. Hún kvaðst ekki geta tjáð sig nánar um það að svo stöddu. Ætla að ganga frá flugrútusamningi  SSS kveðst vera bundið af samningi við Vegagerðina og af lögum Morgunblaðið/Kristinn Flugrútan Sambönd sveitarfélaga á Suðurnesjum semja við SBK. Svavar Hall- dórsson, fyrrver- andi fréttamað- ur, og Ríkisútvarpið hafa sameig- inlega ákveðið að una ekki dómi Hæstaréttar í máli Jóns Ás- geirs Jóhann- essonar gegn Svavari, sem féll í nóvember síðastliðnum. Niðurstaða Hæstaréttar hefur verið kærð til Mannréttinda- dómstóls Evrópu. Formlegur málsaðili og kærandi er Svavar Halldórsson og kærði er íslenska ríkið. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Bjarna Guðmundssyni, framkvæmdastjóra RÚV. Svavar og RÚV ætla til Mannréttinda- dómstólsins Svavar Halldórsson Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Samkvæmt frétt sem birtist á vef China Daily í vikunni er kínverska ol- íufyrirtækið Sinopec í „frumviðræð- um“ við íslensk stjórnvöld um olíu- rannsóknir í hafinu út af norðausturhluta landsins. Guðni A. Jóhannesson orkumála- stjóri kannast ekki við viðræður af þessu tagi. Segir hann að sínum tíma hafi Sinopec verið meðal fjölmargra fyrirtækja sem Orkustofnun kynnti Drekasvæðið. Hinsvegar séu engar viðræður við fyrirtækið í gangi, væru þær í gangi væri aðeins um að ræða kynningarviðræður, þar sem um- sóknarfrestur sé liðinn. Iðnaðar- ráðuneytið vísaði á Orkustofnun þegar upplýsing- ar var leitað um málið. „Við höfum tal- að við fjölda stórra fyrirtækja á sviði rannsókna og olíuvinnslu og kynnt þeim Drekasvæðið, þar á meðal er Sinopec í Kína,“ segir Kristján Jó- hannsson, stjórnarformaður Iceland Petroleum, sem er eitt fyrirtækja sem hefur fengið rannsóknar- og vinnsluleyfi á Drekasvæðinu. Krist- ján leggur áherslu á að ekki séu form- legar viðræður í gangi við Sinopec eins og er. Þess má geta að kínverska olíufé- lagið CNOOC gekk nýlega inn í um- sókn Eykon Energy um leitar- og vinnsluleyfi olíu og gass á Dreka- svæðinu. Umsóknin er nú hjá Orku- stofnun. Heiðar Már Guðjónsson, stjórnarformaður Eykon, segist ekk- ert sjá því til fyrirstöðu að Orkustofn- un samþykki aðkomu CNOOC. „Alls ekki, því við erum að koma inn með aðila sem er gríðarlega sterkur. Það er enginn svona aðili á þessu svæði sem getur rannsakað það í þaula og síðan borað og unnið olíu. Og það eru hagsmunir Íslands að svæðið sé rann- sakað sem fyrst,“ segir Heiðar. Orkumálastjóri segir niðurstöðu varðandi umsókn Eykon geta legið fyrir um áramótin. „Frumviðræður“ í gangi  Orkumálastjóri veit ekki til þess að viðræður séu í gangi við kínverskt fyrirtæki um Drekasvæðið  Eykon á von á að aðkoma félagsins CNOOC verði samþykkt Morgunblaðið/Kristinn Olíuleit Ráðamenn og fleiri skáluðu fyrir leyfum á Drekasvæðinu. Guðni A. Jóhannesson Árið 2011 var slegið upp hugmyndasamkeppni um framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum. Bárust um 100 tillögur og er nú verið að vinna að fjórum þeirra og verða þrjár tilbúnar í lok sumars. „Í fyrsta lagi er verið að kortleggja stíga og merkja þá, bæði í þinghelg- inni og í hrauni og skógum. Þá erum við að undirbúa að setja upp ljóðabekki við þjóðargrafreitinn ásamt því að setja upp áningar- og nestisstað á Valhallarstígnum fyrir ofan bústaðina, svo fólk geti sest þar niður og horft yfir vatnið,“ segir Ólafur Örn, en þessar þrjár tillögur verða kláraðar í sumar. Ljóðabekkirnir eru bekkir þar sem fólk getur sest niður og með nútímatækni snjallsíma komið sér í samband við ljóðalestur, þar sem lesin eru t.d. ljóð Jónasar Hallgrímssonar og Einars Benedikts- sonar, sem þarna liggja grafnir. Ljóðabekkir og áningarstaður ÞRJÁR TILLÖGUR VERÐA AÐ VERULEIKA Í SUMAR Ólafur Örn Haraldsson virki sem þegar eru þar, m.a. bíla- stæði og rafmagn. Það væri meira inngrip í náttúruna að fara t.d. á gamla Valhallarstaðinn sem er botn- langi og bíla- og rútuumferð þangað myndi taka sinn toll í sjónrænu um- hverfi staðarins.“ Þá ítrekar Ólafur að bíða verði eft- ir að fá allar röksemdir áður en ákvörðun um heppilegustu staðsetn- inguna er tekin. Ekkert hefur verið sagt um það hvenær mögulegt sé að hefja byggingu Valhallar á ný en vonast er eftir að það verði á næsta ári. Aðspurður hvort ekki sé fyrir- hugað að byggja þar hótel líkt og var segir Ólafur Örn það óvíst vegna mikilla umhverfisáhrifa. „Einnig er það dýrt í framkvæmd og ýmsir flóknir rekstrarþættir sem koma upp, það hefur ekki verið ákveðið ennþá hvort það verði að veruleika en það er einnig spurning hvort Þingvellir eigi að vera í samkeppni við önnur hótel í nærsveitum.“ Morgunblaðið/Ómar Þingvellir Valhöll brann til grunna árið 2009 og hefur síðan þá ekki verið veitingastaður á Þingvöllum. Valhöll var mjög vinsæll staður, bæði veitingastaður, veislusalur og hótel. Óvíst er hvort byggt verði hótel á Þingvöllum á ný. Kemur í ljós í lok árs hvar Valhöll mun rísa  Þrír staðir koma til greina fyrir nýja Valhöll á Þingvöllum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.