Morgunblaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 23
spurningar. Verður olían sem finnst á Drekasvæðinu seld til aðila sem lofa að nota hana ekki? Verður olíunni pumpað upp á olíuborpalli og síðan pumpað strax aftur niður á öðrum stað? Sannarlega myndu skapast tvöfalt fleiri störf ef það er ætlunin! Eða verður ágóðinn af ol- íusölunni mögulega settur í sjóð sem hvetur til „grænnar starfsemi“ til að vega upp á móti notkun hennar? „Olía gegn olíu“ gæti verið slagorð hans. Hvernig svo sem þeir félagar ætla sér að efna stjórnarsáttmál- ann er ég handviss um að lausnin er snilldarleg. Þó að minn smái og orkulausi heili sjái ekki í fljótu bragði hvernig hægt er að efna lof- orð sem brjóta í bága við mótsagn- arlögmálið veit ég líka að ég er lítið annað en leikmaður. Raunverulegar ákvarðanir um framtíð náttúru landsins ættu að sjálfsögðu að vera teknar af þeim sem þekkja hana best; lögfræðingi og hagfræðingi. Og það sem þessi innblásna stefna hefur í för með sér er auðvitað ekki fyrir okkur að meta. Hún verður óumflýjanlega dæmd af komandi kynslóðum, börnunum okkar og barnabörnum. »Ný tegund umhverf- isverndar hefur litið dagsins ljós með rík- isstjórn Sjálfstæðis- flokks og Framsókn- arflokks. Höfundur er smiður. UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 GLUGGAR OG GLERLAUSNIR idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla • tré- eða ál/trégluggar og hurðir • hámarks gæði og ending • límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu • betri ending — minna viðhald • lægri kostnaður þegar fram líða stundir • Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla • hágæða álprófílakerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Byggðu til framtíðar með gluggum frá Idex Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | avon@avon.is Bylting frá Remington: Fyrstir hártækjaframleiðenda með Lithium rafhlöður í hártækjum – hleðsla allt að 4 x lengri. AQ7 – Remington Rotary VATNSHELD herrarakvél – 100% vatnsheld, má nota með froðu og geli BHT6250 – Wet-Tech Body Hair Trimmer – 100% vatnsheld S6280 Stylist Perfect Waves – Keramik húðaðar bylgju plötur. -Hitnar á 30 sek PG6060 – Lithium-Powered Grooming Kit – Lithium rafhlaða, ending allt að 110 mín MB4040 – Lithium – Powered skeggsnirtir – Lithium rafhlaða, notkun allt að 160 mín. HC5780 Lithium- Powered hárklippur - – Lithium rafhlaða, notkun allt að 150 mín. Nýtt frá Fornar sögur segja frá því að þegar hall- æri urðu í landinu þá var gömlu og örvasa fólki hrint fyrir björg svo hinir gætu lifað af sem yngri voru. Í góðærishallæri nú- tímans er gamla fólk- ið rifið upp með rót- um og flutt á ókunnuga staði til að spara ríkissjóði nokkrar krónur. Slíkt hefur tíðkast á Þingeyri í Dýrafirði og átti að gerast í sumar. En almenningur reis upp og sagði hingað og ekki lengra. En það eru engir peningar til sögðu ráðamenn og er það skiljanlegt út af fyrir sig. Á næsta bæ, Hrafnseyri við Arnarfjörð, er rekið Safn Jóns Sig- urðssonar í þrjá mánuði á ári. Aðra mánuði ársins er yfirleitt enginn maður á staðnum. Eyðibýli. Þar á enginn heima. Til að sjá um að þetta gangi nú vel fyrir sig er starfsmaður á háum launum allan ársins hring. Auk þess er greiddur bifreiðastyrkur, dagpeningar og símakostnaður í slíkum upphæðum að við höfum ekki þrek til að nefna þær. Þess er skylt að geta, að við- komandi sér um svokallaðan Sum- arháskóla Hrafnseyrar sem stend- ur yfir í tvo-þrjá daga á starfstíma safnsins. Hefur hann starfað sleitu- laust í 6 ár eins og það er orðað í starfsskýrslu staðarhaldara. Ým- islegt annað er svo á dagskrá eins og utanlandsferðir, samstarfsnet um allskonar sem og fleira. Vísum við til opinberra gagna sem menntamálaráðuneytið hefur góð- fúslega látið í té. Almenningur hér um slóðir horfir á þetta með undr- un og hefur að gamanmálum. En öllu gamni fylgir nokkur alvara. Lítum á upphaf áðurnefndrar starfsskýrslu fyrir árið 2012: „Skömmu fyrir áramótin 2011/ 2012 gerði mikið óveður og fann- fergi á Vestfjörðum með þeim af- leiðingum að rafmagn fór af Hrafnseyri. Stuttu seinna gerði töluvert frost og var þá ákveðið að fá slysavarnarfélagið á Suðureyri til að fara með staðarhaldara yfir Hrafnseyrarheiðina á snjósleða til að athuga hvort ekki væri hiti á húsinu og slá Securitas-kerfið inn. Sérstakur hitamælir var settur upp haustið 2012 til þess að láta vita ef hitastig fer niður fyrir ákveðið lág- mark. Þær varúðarráðstafanir duga hins vegar skammt einar og sér á meðan hitamælirinn er tengdur við öryggiskerfi Securitas, sem dettur út þegar rafmagnið fer af húsinu.“ Kunnugir sjá í hendi sér að hér er eitthvað að. Og þeir sem skilja þessa einstöku forgangsröðun í rík- isfjármálum, sem hér er gerð að umtalsefni, hljóta að vera fluggáf- aðir. Við undirritaðir, sem þekkj- um nokkuð til á svæðinu, höfum hins vegar ekki gáfur til að skilja svona vendingar. Lái okkur það hver sem vill. Jón Sigurðsson tók eitt sinn svo til orða: „Ég hef aldrei haft neitt á móti Danmörku eða Dönum almennt og enn síður ráðist á þá. Aftur á móti hef ég af eigin rammleik reynt að varpa ljósi á samband Íslands og Danmerkur og stuðla að því að taka megi enda sú óstjórn, sem óneitanlega hefur viðgengist og ríkir enn á Íslandi, og allir hafa viðurkennt sem hafa tjáð sig um íslensk málefni í mörg hundruð ár. Að ég sé kominn í andstöðu við nú- verandi stefnu danskra stjórnvalda í íslenskum málum er rétt, en and- staða mín hefir alltaf verið grund- völluð á nákvæmum rannsóknum og rökum.“ Við dirfumst að vekja athygli á þessum hnitmiðaða texta. Við heimfærum hann að hluta upp á ís- lenska stjórnsýslu í dag. Dæmin sýna að almenningur verður að fylgjast með henni og gagnrýna þegar svo veltist. Og að sjálfsögðu hrósa henni ef það á við. Alþýða manna þarf að fylgjast með fulltrú- um sínum og láta sig málin varða, sagði sá gamli stundum. En um- ræðan verður að vera opin, hrein- skilin og heiðarleg. Nokkur orð um forgangs- röðun: Jón Sigurðsson og góðærishallæri nútímans Eftir Hallgrím Sveinsson og Hrein Þórðarson » Þeir sem skilja þessa forgangsröðun í ríkisfjármálum, hljóta að vera fluggáfaðir. Við höfum hins vegar ekki gáfur til að skilja svona vendingar. Hallgrímur Sveinsson Hallgrímur bjó í 40 ár á Hrafnseyri en Hreinn er bóndi á næsta bæ, Auð- kúlu. Hreinn Þórðarson Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.