Morgunblaðið - 20.06.2013, Page 24

Morgunblaðið - 20.06.2013, Page 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA HUMARSALAT “á la Café Paris” með klettasalati, papriku, fetaosti, sultuðum rauðlauk, cous-cous og hvítlaukssósu RISARÆKJUR MARINERAÐAR í chili, engifer og lime, bornar fram með spínati, klettasalati, rauðlauk, tómötum, mangó og snjóbaunum BARBERRY ANDAR ,,CONFIT” SALAT með geitaosti, brenndum fíkjum, fersku salati, rauðrófum, melónu, ristuðum graskersfræjum, rauðlauk og appelsínufíkjugljáa - miðbæ Hafnarfjarðar - Fjarðargata 13-15 I 220 Hafnarfjörður I www.fjordur.is Bréf til blaðsins Getur verið að íslenskir ráða- menn hugsi ekki á þessum einföldu og mannlegu nótum vegna þrýst- ings af ýmsu tagi, sérstaklega eftir að það var gerð- ur versl- unarsamningur við Kína? Gera þeir sér almennt ekki grein fyrir ástandinu sem námarekstur Kínverja er í og hve mikið er í al- mennt í húfi vegna kínverskra námuverka- manna og Grímsstaða á fjöllum? Þessir námuverkamenn eru ekki í Kína lengur og koma því undir vestræn lög varðandi námarekstur. Menn hljóta að geta sett samasem- merki við námareksturinn á Græn- lendi og almennt hvíldarhótel á Ís- landi sem Kínverjar eru að kaupa eða reyna að kaupa fyrir kínverska námuverkamenn. Það er allt í húfi og námareksturinn getur ekki gengið samkvæmt evrópskum lög- um nema þeir fái frí og hvíld á til- gerðum hvíldarhótelum. Auðvitað mun þetta vera kallað Núbo- túrismi eða ferðamennska því námuverkamenn eru ferðamenn í fríum sínum. Þegar rúm 5.000 menn koma úr námum Grænlands koma þeir til með að hitta konur sínar eða aðrar kínverskar konur sem vinna við þjónustu við hótelin og yfirmanna- hús á Grímsstöðum á fjöllum sem mun verða kallað Chinatown og það væri ekki ólíklegt að 1.000 kín- versk börn geti orðið afraksturinn af því á ári. Þessir námuverka- menn munu koma til hvíldar úr námunum einu sinni í mánuði, kannski viku í senn. Þetta er aðferð sem Kínverjar hafa notað í hundruð ára til þess að koma sér upp aðstöðu í öðrum löndum enda eru Kínaþorp/ Chinatown í flestöllum löndum og/ eða borgum þeirra. Það eitt er víst að það munu fæðast kínversk börn á Íslandi sem á endanum verða ís- lenskir ríkisborgarar ásamt að vera kínverskir þegnar með her- aga og þjóðfélagslegar skyldur. VALDIMAR SAMÚELSSON, Keifarási 3, 110 Reykjavík Var gefið loforð með Grímsstaði á Fjöllum? Frá Valdimar Samúelssyni Valdimar Samúelsson Nú hefur kínverska stórveldið séð að hvorki gengur né rekur að ná hér fótfestu með aðstoð Nubos. Lopapeysa og harðfiskur duga ekki til að villa mönnum sýn. Ís- lendingar sáu í gegnum það. Nú kasta Kínverjar grímunni og kaupa sig inn í íslenskt fyrirtæki, sem fengið hefur leyfi íslenskra stjórnvalda til borunar á Drekasvæðinu. Nú verða menn að halda fyrir augu sín til að verða ekki fyrir geislum dollara- merkisins og ánetjast því. Vonandi hafa íslenskir ráðamenn úr fyrri rík- isstjórn ekki skrifað undir eitthvað, sem er Kínverjum í hag og okkur til bölvunar þegar þeir fóru til Kína á lokadögum valda sinna. Ef Kínverjar fá það í gegn að öðlast rétt til borunar í gegnum íslenskt fyrirtæki mun ekki líða langur tími þar til þeir vilja landa- kaup til að hafa hér aðstöðu og inn- flutning kínverskra verkamanna, sem ábyggilega verða nefnd- ir sérfræðingar í olíu- borun til að byrja með. Þá fylgir hvert öðru, fjöldi kínverskra verka- manna kemur ásamt fjölskyldum þeirra og við verðum komnir í fjötra Gleipnis, eins og Fenrisúlfur forðum og getum okkur ekki hreyft og þeir munu þá ráða ferðinni. Góður vinur minn sagði við mig, þegar síð- ustu kosningar voru: „Ég kýs Sam- fylkinguna. Ég vil heldur að við göng- um í Evrópusambandið heldur en að Kínverjar gleypi okkur.“ Getur verið að það sé bara um tvennt að velja? Hvar eru landvættirnar? Sagt er að Guð og góðar vættir vinni í gegnum fólk. Vonandi verðum við ekki vinalaus eins og í hruninu. Jú, Færeyingar gleymdu okkur ekki. Sá er vinur, sem í raun reynist. Því má ekki gleyma að stjórnendur Kína nú eru þeir, sem bældu niður með hörku stúdentaóeirðirnar á Torgi hins himneska friðar og réðust inn í hið friðsæla og trúaða land Tíbet og lögðu það undir sig og væru nú til- búnir að leggja fleiri lönd undir sig, ekki með vopnum, því þora þeir ekki heldur peningum, sem lítið sigldir menn beygja sig fyrir. Íslendingar, stöndum saman gegn kínversku óvættinni og svörum henni fullum hálsi, eins og barnið í þjóðsög- unni, sem var á milli vita og svaraði óvættinni á aðfangadagskvöld, þegar hún sagði á glugganum: „Sko minn fót, sko minn fót, sko minn gráa ding- ulfót.“ Þá sagði barnið: „Ert þú Jesú Kristur, sem fæddist í nótt?“ Óvættin hvarf og vonandi hverfur Kínahættan líka. Íslendingar, höldum vöku okkar! Guð blessi Ísland. Ísland er enn í hættu Eftir Eyþór Heiðberg »Nú verða menn að halda fyrir augu sín til að verða ekki fyrir geislum dollaramerk- isins og ánetjast því. Eyþór Heiðberg Höfundur er athafnamaður. Þónokkur ár eru liðin síðan undirritaður benti ítrekað á þær óþörfu skemmdir sem eigendur bifreiða og rekstrarfólk gatna urðu að setja verulegar fjárhæðir í til að bæta tjón á bílum og umferðarmerkjum og ljósastaurum. Ástæðan að mínu áliti var sú að ljósastaurar eru enn röngu megin í beygjum og svo hitt að umferðarmerki voru á sterkum járnrörum. Ég benti á að athuga mætti hvort ekki væri hægt að setja þau umferð- armerki sem oftast væri ekið á, á rör sem væri svo veikbyggt að við árekst- ur legðist það auðveldlega niður með sem minnstum skaða á bíl tjónvalds- ins. Að því kom að nokkur skilti voru sett á plaströr en þá kom önnur hætta, sú að við árekstur gat skiltið henst burtu og þá jafnvel á gangandi vegfar- endur eða á aðra bíla. Plastinu var þá hætt en álrör notuð í staðinn. Núna þekkja flestir sem aka um borgina óhöpp þar sem ekið hefur verið á umferðarskilti sem þá liggur flatt og bílar hafa gjarnan ekið nánast eða alveg óskemmdir á brott. Þá er aðeins eitt sem getur valdið slæmum skemmdum, en það er þegar stútur þess rörs sem álrörinu er stungið niður í stendur of hátt upp úr yfirborðinu. Þegar umferðarskiltið hefur lagst kurteislega niður og bíllinn rennur yfir festingu ál- rörsins geta orðið mjög slæmar og dýrar skemmdir á undirvagninum. Þetta þarf að laga. Ljósastaurar Verstu óhöppin verða þegar bifreið er ekið á ljósastaur. Þeir eru afar sterkir og jafnvel við högg sem þeir standa sig vel af, þá verða jafnvel stór- skemmdir á bílnum. Ég hafði marg- sinnis bent á að sérstaklega væri óheppilegt að hafa ljósastaura ut- anverðu í beygjum. Eitt sinn átti ég erindi í stjórnstöð rafveitunnar í Reykjavík og er ég gekk hjá opnu rými þar, kölluðu menn þar inni í mig og sögðu: „Þú ert alltaf að kvarta undan ljósastaurum, en veist ekkert hvað þú ert að gagnrýna“. Ég stans- aði snögglega og sagði bara „Jæja?“. Staurarnir eru settir niður sam- kvæmt evrópskum staðli. Ég var að flýta mér og hélt því áfram án svars. Áður en ég var kominn út úr húsinu áttaði ég mig á viðeigandi svari eða því að vitanlega væri það býsna fínn dauðdagi að látast við það að aka á ljósastaur samkvæmt evrópskum staðli. Ég tel að við hönnun gatna og um- ferðarmannvirkja eigi að hafa í huga að forðast allt sem getur valdið tjón- um og slysum. Ef miðflóttaaflið væri haft í huga, væri ekki stöðugt verið að setja upp nýja staura t.d. við afreinar af Miklubraut og víðar. Slysagildrur – umferðarskilti Eftir Kristin Snæland » Verstu óhöppin verða þegar bifreið er ekið á ljósastaur. Kristinn Snæland Höfundur er rafvirkjameistari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.