Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 4. Á G Ú S T 2 0 1 3
196. tölublað 101. árgangur
BOÐIÐ UPP Á
600 VIÐBURÐI
Í MIÐBÆNUM
ÆTLAR SÉR
STÓRA
HLUTI
MUNAR UM AÐ
KRAKKAR GETI
VERIÐ HEIMA
SUNNUDAGUR MENNTASKÓLI BORGARFJARÐAR 26MENNINGARNÓTT 54-55
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Alþingismaðurinn Óttarr Proppé tekur hér við gjöf úr hendi Ernu Ómarsdóttur, annars af höfundum öskurdans-
verksins To The Bone, sem frumsýnt var í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Gjöfin er í formi hljóðeinangr-
andi öskurklefa og segir Valdimar Jóhannsson, hinn höfundur sýningarinnar, að hugmyndin sé að veita þing-
mönnum tækifæri á að fá útrás og öskra í klefanum. „Við erum að vonast til þess að þetta verði eins algengt og
almenningsklósett. Í klefanum hefur fólk afdrep þar sem það getur farið inn og öskrað án þess að vera talið klikk-
að,“ segir Valdimar. vidar@mbl.is
Öskurklefi á Alþingi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óttarr Proppé tók við gjöf fyrir hönd Alþingis á frumsýningu í gærkvöldi
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Framtakssjóður Íslands (FSÍ) og fjárfestahópur á
vegum framtakssjóðsins Burðaráss eru að ganga
frá kaupum á 61% hlut í samheitalyfjafyrirtækinu
Invent Farma á Spáni. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins nemur kaupverðið um 60 millj-
ónum evra, jafnvirði um 10 milljarða króna, en fyr-
irtækið hefur verið í eigu íslenskra fjárfesta frá
árinu 2005. Stærstur hluti kaupverðsins er greidd-
ur með íslenskum krónum.
Hluturinn í Invent Farma verður keyptur af um
tuttugu íslenskum hluthöfum. Samkvæmt heim-
ildum mun Friðrik Steinn Kristjánsson, stjórn-
arformaður móðurfélags Invent Farma á Íslandi,
hins vegar eiga áfram um 30% hlut. Um fjögur
selja fyrirtækið erlendum fjárfestum. Höft á Ís-
landi og skattalöggjöf á Spáni og hérlendis voru
helstu ástæður þess að slík sala hafði ekki náð
fram að ganga.
Seðlabankinn veitti í vikunni Burðarási og FSÍ
fordæmisgefandi undanþágu frá lögum um gjald-
eyrismál vegna kaupanna. Þykir það til marks um
að Seðlabankinn telji að með kaupunum sé verið
að tryggja áframhaldandi nettó gjaldeyrisinnflæði
til landsins í tengslum við starfsemi Invent
Farma.
Burðarás er framtakssjóður sem Straumur
fjárfestingabanki stofnaði fyrr á árinu en FSÍ er í
eigu stærstu lífeyrissjóða landsins og Landsbank-
ans.
MFSÍ og Burðarás kaupa Invent Farma »30
10 milljarða króna kaup
Framtakssjóður Íslands og Burðarás kaupa 61% hlut í samheitalyfjafyrirtæk-
inu Invent Farma á Spáni Seljendur eru Íslendingar sem keyptu félagið 2005
hundruð manns starfa í tveimur verksmiðjum fyr-
irtækisins nærri Barcelona og nam rekstrarhagn-
aður síðasta árs um tuttugu milljónum evra, jafn-
virði um þriggja milljarða króna.
Invent Farma hefur verið í söluferli í meira en
eitt ár. Heimildir herma að erfitt hafi reynst að
Áfram í eigu Íslendinga
» Samheitalyfjafyrirtækið Invent Farma á
Spáni hefur verið í eigu Íslendinga frá 2005.
» FSÍ og fjárfestahópur á vegum framtaks-
sjóðsins Burðaráss eru nú að ganga frá
kaupum á 61% hlut á um 10 milljarða króna.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Á hverju ári deyja um helmingi fleiri
vegna sjáfsvíga á Íslandi en í um-
ferðarslysum. Samt er ekkert um
fyrirbyggjandi aðgerðir til að vinna
gegn þessari vá. Þeir sem gera einu
sinni tilraun til sjálfsvígs eru líklegir
til að reyna það aftur. Samt er engin
alvarleg eftirfylgni í heilbrigðiskerf-
inu gagnvart fólki sem kemur á spít-
ala eftir tilraun til sjálfsvígs.
Fólk sem sviptir sig lífi getur ver-
ið í hvaða stétt þjóðfélagsins sem er,
jafnt ungir sem aldnir. Það þarf ekki
að hafa átt í miklum erfiðleikum eða
lent í vímuefnavanda, svo dæmi sé
tekið. Það finnur til sársauka og vill
losna við hann.
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
er tekið viðtal við Guðrúnu Jónu
Guðlaugsdóttur og Ómar Inga
Bragason, foreldra ungs pilts sem
var á fyrsta ári í MR, með meðal-
einkunn nálægt 9, þegar hann svipti
sig lífi fyrir þremur árum. Ekkert
virtist angra hann umfram aðra á
hans aldri.
Sjálfsvíg
taka árlega
stóran toll
Sjálfsvígshugs-
anir algengar
Morgunblaðið/Kristinn
Sorg Ómar og Guðrún Jóna misstu
son sinn er hann svipti sig lífi.
Áskrifendur
Sjónvarps Sím-
ans fá kost á því í
nóvember að
horfa á sjón-
varpsútsend-
ingar í snjall-
tækjum á borð
við spjaldtölvur
og snjallsíma.
Innifalið til að
byrja með verða
tíu sjónvarpsstöðvar aðgengilegar
og verður þjónustan tengd áskrift
að Sjónvarpi Símans. Í framhaldinu
verður stöðvunum svo fjölgað.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri
Símans, segir í viðtali við Morgun-
blaðið að fyrirtækið vinni nú af
krafti að því að þróa áfram þjón-
ustu sína á fjarskiptamarkaði. »24
Sjónvarp í snjallsím-
ann og spjaldtölvur
Sævar Freyr
Þráinsson
Grænlendingar
juku makrílkvóta
sinn í 55 þúsund
tonn í vikunni, en
í upphafi vertíðar
var miðað við 15
þúsund tonn. Karl
Lyberth, sjávar-
útvegsráðherra í
grænlensku
landsstjórninni, segir í samtali við
grænlenska blaðið Sermitsiaq að
hugsanlega verði makrílkvótinn 80
þúsund tonn á næsta ári.
Lyberth segir í samtali við Morg-
unblaðið að Grænlendingar ætli að
nota næstu tvö til þrjú ár til að kom-
ast að því hversu mikið gengur af
makríl og síld í lögsögu þeirra. Að
þeim tíma liðnum vilji Grænlend-
ingar fá sæti við samningaborðið
þar sem fjallað er um stjórnun veiða
á síld og makríl og skiptingu afla.
»22
Grænlendingar ætla
að veiða 55 þúsund
tonn af makríl í ár
Meira en helm-
ingur íslenskra
fanga í fang-
elsum á Íslandi
telur sig glíma
við þunglyndi og
um þriðjungur
þeirra segist
hafa reynt að
fremja sjálfsvíg á
ævinni. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í rannsókn Boga Ragn-
arssonar, doktorsnema í félags-
fræði við Háskóla Íslands.
Geðlæknir sem starfaði á Litla-
Hrauni telur að betur megi standa
að geðheilbrigðisþjónustu á Litla-
Hrauni þar sem stærstur hluti
fanga á Íslandi er vistaður. Segir
hann að skortur sé á samvinnu á
milli Fangelsismálastofnunar og
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
en báðar stofnanir þjónusta fang-
ana. »20
Meira en helmingur
fanga þunglyndur