Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 14
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Nú er að pikkast upp nokkuð af
stórum fiski. Á síðustu átta dögum
hafa veiðst þrír sem eru 20 pund
og stærri, þar af einn sem vó 21,5
pund. Við erum komin með þó
nokkuð af svona stórum löxum í
sumar,“ segir Einar Sigfússon,
annar eigenda Haffjarðarár á Snæ-
fellsnesi. Veiðin hefur að sögn hans
verið afar góð, eins og sjá má á því
að áin er sú áttunda aflahæsta á
lista Landssambands veiðifélaga
þótt aðeins sé veitt á sex stangir; á
miðvikudagskvöld höfðu 1.735 laxar
veiðst. Á síðustu árum hefur hún
tvisvar farið yfir 1.700 laxa markið,
en ekki fyrr en í byrjun september.
Síðasta vika í Haffjarðará gaf 120
laxa.
„Þetta hefur verið frábært og
ennþá er nýr fiskur að veiðast. Það
sem hamlar okkur í augnablikinu
er of mikið vatn, áin er barmafull
en það er betra en hitt,“ segir Ein-
ar.
Allmiklu er sleppt af þeim laxi
sem veiðist og segir Einar endur-
veiðina á liðnum sumrum hafa ver-
ið 19 til 30 prósent.
„Í ágúst kemur venjulega tími
þegar takan dettur niður, laxinn er
kominn í aðrar pælingar, en síðan
hefur hún lifnað aftur. Nú höfum
við komist þokkalega gegnum þetta
því fiskur fór að ganga snemma og
þeir fyrstu eru þá mögulega komn-
ir aftur í tökustuð þegar fer að
draga úr göngunum. Þetta mætist
ágætlega. En þetta er frábært
sumar hjá okkur, eins og víða. Eitt-
hvað annað en þetta dapra tímabil í
fyrra. Fiskurinn í ár er líka ein-
staklega vel haldinn og fallegur.“
Þeir duglegu veiða vel
Það kom að því, eins og búast
mátti við, að Rangárnar ýttu Norð-
urá aftur fyrir sig. Þetta er sá tími
sumars, þrátt fyrir að veiðin hafi
verið frábær í Borgarfirði. Að und-
anförnu hafa 73 til 110 laxar verið
að veiðast daglega í hvorri Rang-
ánni.
„Það er góður gangur í veiðinni
hér,“ sagði Skúli Kristinsson, leið-
sögumaður við Eystri-Rangá, í
gær. „Og enn er lax að ganga og
að veiðast lúsugur. Sumarið hefur
líka verið óvenjulega gott hvað
tveggja ára lax varðar,“ sagði hann
og bætti við að tvo svæði árinnar
væru frekar róleg í augnablikinu
en önnur að gefa vel. Áin á það til
að skolast þegar mikið rignir en
Skúli sagði hana hafa verið mikið
til friðs í sumar, miðað við það
hvað veðrið hefur verið erfitt. „Nú
er hávaðarok og má búast við erf-
iðum eftirmiðdegi,“ sagði hann í
hléinu í gær „En þeir sem eru dug-
legir geta veitt vel hér.“
„Eins og best verður á kosið“
Áfram hefur veiðst vel í Þverá
og Kjarrá og gaf síðasta vika til að
mynda 225 laxa, sem er um tveir
og hálfur lax á dagsstöngina.
„Það er mjög fallegt vatn í án-
um. Síðasta tveggja daga holl í
Þverá var með 38 laxa og síðasta
þriggja daga holl í Kjarrá með um
60,“ segir Ingólfur Ásgeirsson stað-
arhaldari.
„Talsvert hefur veiðst af vænum
laxi. Í gær komu til dæmis 83 og
87 cm laxar úr Réttarkvörn í
Þverá. Svo hefur nokkuð veiðst af
nýjum laxi. Ekki beint göngur en
nokkuð er að tínast inn og veiðast
lúsugir.
Við Brennu veiddust níu einn
daginn núna og meira og minna ný-
legur fiskur. Svo eru tveir til fjórir
laxar að veiðast í holli í Litlu-
Þverá, það er þó nokkuð af laxi í
henni. Ég held það sé óhætt að spá
því að um 3.000 laxar veiðist í
Þverá og Kjarrá, það er það mikið
eftir af veiðitímanum. Þetta rúllar
eins og best verður á kosið,“ segir
Ingólfur.
Þær fregnir berast að norðan að
í Svartá í Húnavatnssýslu sé laxinn
heldur betur að gefa sig; 39 veidd-
ust í síðasta þriggja daga holli.
Boðið í Hlíðarvatn
Á sunnudag, 25. ágúst, er áhuga-
sömum veiðimönnum boðið að
koma til veiða í Hlíðarvatni í Sel-
vogi. Reyndir veiðimenn frá félög-
unum sem fara með veiðina verða á
staðnum og leiðbeina um veiðistaði,
aðferðir og fluguval. Þegar líður á
sumarið dregur venjulega úr sókn í
þetta rómaða bleikjuvatn, en upp á
síðkastið hafa margir veitt vel þar;
allt að tuttugu bleikjur á dag.
„Og enn er lax að ganga“
Rangárnar hafa ýtt Norðurá aftur fyrir sig Óvenjumikið af stórlaxi í Eystri-Rangá
„Þetta hefur verið frábært,“ segir Einar Sigfússon við Haffjarðará Boðið í veiði í Hlíðarvatni
Ljósmynd/Vigfús Orrason
Veiðigleði Stangveiðimenn í Vopnafirði eru lukkulegir enda hefur góður stígandi verið í laxveiðinni. Þessir glöddust yfir feng sínum í Selá.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
Ytri-Rangá & Hólsá, V. (22)
Eystri-Rangá (18)
Norðurá (15)
Þverá-Kjarrá (14)
Miðfjarðará (10)
Blanda (14)
Langá (12)
Haffjarðará (6)
Selá í Vopnafirði (9)
Grímsá og Tunguá (8)
Elliðaárnar (4)
Hítará (6)
Laxá í Aðaldal (18)
HofsámeðSunnudalsá (10)
Laxá á Ásum(2)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í fyrra
2588
2114
802
629
1112
829
702
955
1181
350
744
529
354
–
168
Staðan 21. ágúst 2013
3106
2890
2845
2702
2564
2421
1993
1735
1253
1174
985
890
843
837
818
- Tölur liggja ekki fyrir
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013
Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og
þægindabúnaði sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja aksturs-
upplifun. Má þar nefna hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og
árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense.
Outlander kostar frá
5.590.000 kr.
Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
mitsubishi.is
Eyðsla aðeins
frá
5,5 l/100 km.
MITSUBISHI OUTLANDER
Rúmbetri, sparneytnari og betur búinn Nú á enn betra verðifrá 5.590.000kr.Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur
STUTT
Sunnudagurinn
25. ágúst er
dagur kær-
leiksþjónust-
unnar í þjóð-
kirkjunni. Á
þeim degi er
sérstaklega
horft til þess hvernig kirkjan vinnur
í anda kærleika og þjónustu.
Fram kemur í tilkynningu frá
Kirkjunni, að djáknar séu í lykilhlut-
verki þegar komi að skipulagningu
og framkvæmd kærleiksþjónustu
kirkjunnar. Útvarpsguðsþjónusta
verður að þessu sinni frá Fella- og
Hólakirkju og koma þrír djáknar að
þjónustunni.
Djáknar skipuleggja
kærleiksþjónustu
Ráðstefna um tæknifrjóvganir og
staðgöngumæðrun frá alþjóðlegu
sjónarhorni verður haldin í fundar-
sal Þjóðminjasafnsins dagana 25. til
27. ágúst. Ráðstefnan er skipulögð
af Norrænu lífsiðfræðinefndinni og
er á ensku. Í hópi fyrirlesara eru
þekktir fræðimenn á þessu sviði frá
Bandaríkjunum og Evrópu sem
fjalla um siðferðilegar, félagslegar
og lögfræðilegar spurningar. Í
tengslum við ráðstefnuna verður
málstofa norrænna doktorsnema
sem stunda rannsóknir á þessu
sviði.
Ráðstefna um
tæknifrjóvganir