Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
fólki saman. Mála höfuð af einu
módeli og svo kemur líkaminn ann-
ars staðar frá. Einstaka sinnum
kemst ég ekki hjá því að notast við
ljósmyndir en ég reyni að forðast
það.“
Góð verk koma
á löngum tíma
Stefán sækir hugmyndir sínar
héðan og þaðan en segir bestu verk-
in sín oft vera þau sem fá að malla
lengi í huganum áður en þau rata á
strigann. „Stundum er ég með verk
í kollinum í marga mánuði eða jafn-
vel ár og gef
mér ekki tíma
í þau. Síðan
loksins þegar
ég geri það þá verða þau til á
mjög auðveldan hátt. Svo fæ ég
stundum skyndihugmyndir en lendi
í erfiðleikum við að koma þeim frá
mér og sum verkin mín finnst mér
einfaldlega aldrei ganga upp. Ég á
það líka til að tengjast sumum verk-
um mínum og þá get ég eiginlega
ekki látið þau frá mér. Þá geymi ég
þau þannig að ég geti lært eitthvað
af þeim, það er nefnilega þannig að
með hverju nýju verki er maður að
læra upp á nýtt. Mér finnst líka að
listamenn eigi ekki að láta allt frá
sér og eigi í raun að geyma verk
sem sýna allan þeirra vinnuferil.“
Þegar Stefán er spurður út í
hvaðan friðurinn sem ríkir yfir
myndum hans komi brosir hann og
segir það ekki vera í fyrsta skipti
sem hann heyri þetta sagt um verk
sín. „Ég veit ekki hvort ég sé róleg-
ur persónuleiki en stundum er sagt
að listin endurspegli að einhverju
leyti það sem maður þráir. Það er
erfitt að útskýra svona hluti enda
finnst mér erfitt að tala um eigin
verk. Manni finnst allt falskt sem
maður segir. Ég hef samt reynt að
skilgreina það sem ég geri af því að
það getur verið erfitt að hlusta á
aðra gera það. Öll túlkun er skáld-
leg og út frá ákveðnu sjónarmiði og
er aldrei alveg sönn eða rétt.“
English Red Stefán segir málverkið vera berskjaldaðform sannleikans sem erfitt sé að svindla sig út úr.
Bleik stígvél Stefán málar uppstillinga
r í bland
við tilfinningaþrungnar mannlífsmynd
ir.
Listmálarinn Sýning Stefáns Boulter, Anamnesis, stendur til 6. október næstkomandi í Listasafninu á Akureyri -
Sjónlistamiðstöðinni. Þar sýnir einnig góðvinur hans Janne Laine grafískar myndir á sýningunni Silence.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013
Vínylplötur hafa notið vaxandi vin-
sælda hér á landi sem og erlendis
og margir farnir að safna þeim eins
og um glóandi gull væri að ræða.
Vinsældirnar eru orðnar slíkar að
margir tónlistarmenn gefa hljóm-
plötur sínar ekki lengur út í formi
geisladiska heldur eingöngu á vínyl
og á veraldarvefnum, vínylnördum
til mikillar skemmtunar.
Á hostelinu Kex verður einmitt
efnt til vínylmarkaðar í dag og verð-
ur þar ýmislegt skemmtilegt á boð-
stólum. Hægt verður að gera þar
góð kaup á völdum íslenskum vín-
ylplötum auk þess sem erlendu
plöturnar fá sinn stað á mark-
aðnum. Herlegheitin hefjast í há-
deginu og stendur markaðurinn til
klukkan 18.
Endilega...
Tónlist Vinsældir vínylplatna hafa farið vaxandi hér á landi að undanförnu.
... kíkið á vínylmarkað á Kex
Slegið verður upp í allsherjar menn-
ingarveislu í tilefni Menningarnætur
á ölhúsinu Kalda bar í dag og í
kvöld. Nýtt útisvæði við staðinn
verður formlega vígt og verður efnt
til útitónleika. Kaldi bar, sem opnaði
í október í fyrra, stendur við Lauga-
veg 20b en gengið er inn á staðinn
af Klapparstíg.
Meðal þeirra tónlistarmanna sem
munu koma fram á tónleikunum eru
Dj De La Rosa, Sísí Ey, Sometime
og Pedro Pilatus sem farið hefur
mikinn að undanförnu sem plötu-
snúður. Auk þess verður boðið upp
á ósíaðann á krana en sá kemur
beint frá Árskógssandi. Gleðin hefst
klukkan 19.30, stendur fram eftir
kvöldi og allir sem aldur hafa til eru
velkomnir.
Sometime og Sísí Ey meðal þeirra sem troða upp
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaldi Rósa Birgitta Ísfeld mun koma fram með hljómsveitinni Sometime.
Útitónleikar á Laugavegi
Þróunar- og nýsköpunar-
viðurkenning Mosfellsbæjar
VIRÐING JÁKVÆÐNI FRAMSÆKNI UMHYGGJA
Umsóknarfr
estur
er til 1. sept
ember
Hæfur umsækjendi er :
a) Einstaklingur eða fyrirtæki með lögheimili í Mosfellsbæ.
b) Einstaklingur eða fyrirtæki sem leggur fram þróunar- eða nýsköpunarhugmynd
sem gagnast sérstaklega fyrirtækjum eða stofnunum í Mosfellsbæ.
Veittar eru viðurkenningar í þremur flokkum:
a) Hugmynd á frumstigi.
b) Hugmynd sem hefur fengið útfærslu og/eða mótast.
c) Hugmynd sem búið er að útfæra og móta og fyrir liggur viðskiptaáætlun.
Veittar verða þrjár viðurkenningar í hverjum flokki, en ein valin
fremst og fær peningaverðlaun allt að 300.000 kr. í hverjum flokki.
Umsóknarfrestur til
1. september 2013
Hægt er að nálgast
umsóknareyðublað
ásamt upplýsingum
um hæfi umsóknar og
forsendur fyrir vali á
hugmynd á www.mos.is
Þróunar- og ferðamálanefnd auglýsir eftir umsóknum um
Þróunar- og nýsköpunarviðurkenningu Mosfellsbæjar 2013
25-50%afsláttur
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
lau. 10-18, sun. 12-18, mán. - fös. 11-18:30
living withstyle
af öllum
sumarvörum í ágúst