Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 6
Minntist fórnarlamba alræðisstefnunnar Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Eistar hugsa hlýtt til Íslendinga enda urðu þeir fyrsta þjóðin til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands, nánar tiltekið í ágúst 1991, eftir hrun Sovétríkjanna. Það er því ánægju- efni að fá að koma hingað og halda erindi,“ sagði Mart Nutt, þingmaður hægriflokks í Eistlandi, um erindi sitt á fundi í Þjóðarbókhlöðunni í gær. Er tilefnið rakið í rammanum hér til hliðar. Nutt situr á eistneska þinginu fyr- ir hægriflokkinn Isamaa ja Res Pu- blica Liit en flokkurinn varð til við sameiningu Pro Patria og Res Publ- ica-flokkanna í Eistlandi. Hann hefur starfað í eistneska utanríkisráðuneytinu og hefur skrif- að bækur um sjálfstæðisbaráttu Eistlendinga á tuttugustu öld. Hann lauk doktorsprófi 2011 í sagnfræði frá Tækniháskólanum í Tallinn. Hernumið í stríðinu Nutt vék í fyrirlestri sínum að hernámi Sovétríkjanna í Eistlandi á árunum 1940-1941 og hernámi nas- ista í landinu 1941-1944. Eistland var síðan undir hæl Sovét- ríkjanna þangað til þau liðuðust í sundur 1991 og hefur landið síðan verið sjálfstætt ríki. „Ég fjallaði um ástæður þess að Eist- land var hernumið og hvaða af- leiðingar hernámið hafði í Eistlandi. Ég lýsti þannig framgöngu kommúnista og nas- ista og hvernig þeir frömdu glæpi gegn 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is „Við erum nú í 14 mismunandi húsum og ríflega helmingurinn er leiguhúsnæði til mjög mislangs tíma,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, um mögulega byggingu nýrra höfuðstöðva bankans í miðborginni. En Landsbankinn óskaði í fyrradag eftir viðræðum við borgina um lóð í miðborginni. „Það liggur fyrir að við þurfum að færa um 200 starfsmenn þegar við missum leiguhúsnæði, það hefur legið fyrir í örugglega 20 ár að Landsbankinn þurfi nýjar höfuðstöðvar af því að starfsemin er svo dreifð og óhagkvæm,“ segir Kristján, sem segir bankann þó ekki ætla að stækka við sig þegar tekst að sameina starfsemi hans á einn stað. „Þá verður þetta ekki jafn stórt að fermetratali og allt húsnæðið sem við erum í núna.“ Hann segir stefnuna vera að þetta verði á allan hátt hagkvæmara og mun þægilegra húsnæði að eiga við. „Það er mikið óhagræði sem felst í því að vera á svona mörgum stöðum með starfsemina.“ Borgarráð vísaði ósk Lands- bankans til Sítusar hf. sem á lóðir á Hörpu-reitnum. „Þegar borgarráð hefur svarað okkur með formlegum hætti, um að það vilji hefja viðræður, þá sjáum við hvert það leiðir okkur,“ segir Kjartan, en hann telur að höfuðstöðvar Landsbankans eiga að vera í miðbænum. Í miðbænum frá 1885 „Bankinn er miðbæjarfyrirtæki og hann og fyrirrennarar hans hafa verið í miðbænum frá 1885, það er ekki óeðlilegt að horfa til þeirrar sögu.“ Í bréfi bankans til borgarráðs kom fram að áætluð þörf verði fyrir 13.500-15.000 fermetra byggingu undir höfuðstöðvarnar. Lögð er áhersla á að vinna við bygginguna hefjist sem fyrst. „Við teljum það klárlega hagsmuni Reykjavíkur að lóðirnar í kringum Hörpu byggist upp og það er hagsmunir miðborgarinnar að Landsbankinn geti verið áfram í miðborginni,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sem telur líklegt að viðræður við bankann hefjist fljótlega. Landsbankinn vill gera starfsemina hagkvæmari  Bankinn bíður eftir svari borgarráðs um lóð í miðbænum  Tæpir 15.000 m² Morgunblaðið/Kristinn Höfuðstöðvar Bankinn telur nauðsynlegt að byggja nýjar höfuðstöðvar og sameina þannig starfsemina sem nú er í fjórtán mismunandi húsum. Erindið sem Nutt flutti í Þjóðarbókhlöðunni í gær var hluti af dagskrá sem Varðberg, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt stóðu fyrir. Þar var jafnframt opnuð myndasýn- ing um hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu og starfsemi hennar á Íslandi. Flutti pólski sagnfræðingurinn dr. Pawel Ukielski, for- stöðumaður Minningarsafnsins, erindi um uppreisnina í Varsjá 1944, einnig um hina sögulegu uppreisn Pólverja árið 1944 gegn nasistum. Evrópuþingið hefur lýst 23. ágúst Evrópudag minningarinnar um fórnarlömb alræðisstefnunnar, jafnt kommúnisma og nasisma. Þennan dag árið 1939 gerðu Hitler og Stalín griðasáttmála, sem hleypti af stað heimsstyrjöldinni síðari, og skiptu jafnframt með sér Mið- og Austur-Evrópu. Umsjónarmenn myndasýn- ingarinnar voru dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson pró- fessor og Ólafur Engilbertsson hönnuður fyrir Þjóðar- bókhlöðuna. Sagt frá uppreisninni í Varsjá PÓLSKUR SAGNFRÆÐINGUR TÓK TIL MÁLS Dr. Pawel Ukielski mannkyni,“ segir Nutt og lýsir því m.a. hvernig Sovétríkin skipulögðu tvisvar umfangsmikinn brottflutn- ing fólks frá Eistlandi. Í fyrra skipt- ið, á hernámsárinu 1941, hafi Sovét- menn flutt um 10.000 Eista til Síberíu. Í síðara skiptið, 25. mars 1949, voru yfir 20.000 eistneskir ríkisborgarar fluttir nauðugir vilj- ugir til Síberíu. Meirihlutinn átti ekki afturkvæmt. Bændur sem voru í betri efnum en flestir til sveita voru álitnir hindrun í vegi áforma Sovétmanna um sam- yrkjubúskap í Eistlandi. Að sögn Nutt voru margir þeirra því fluttir brott frá Eistlandi. Nutt segir Sovétríkin hafa leyst upp lýðræðislegar stofnanir í Eist- landi og þess í stað innleitt eins flokka kerfi þar sem valdakerfi kommúnista fór með öll völd. Herinn tók yfir strendurnar Iðnvæðing í anda sameignar- skipulagsins hafi fylgt í kjölfarið, einkaeignarétturinn verið afnumin og landið allt hernumið. Til dæmis hafi hermenn gætt nær allrar strandlengjunnar við Eystrasaltið. Spurður hvernig Eistum hafi vegnað síðan þeir fengu sjálfstæði segir Nutt að Eistlandi hafi gengið hvað best af nýfrjálsum ríkjum í Mið-Evrópu. Landið sé nær það eina í evrusvæðinu sem búi við jafnvægi í ríkisfjármálum. Hann segir mjög fáa Eista sakna Sovéttímans. Morgunblaðið/Ómar Gjöf Að lokinni dagskrá gaf Mart Nutt Davíð Oddssyni merki Eistlands í heiðursskyni en árið 1973 þýddi Davíð bók- ina Eistland - smáþjóð undir oki erlends valds. Nutt sagði Eistlendinga þakkláta fyrir stuðning Íslands.  Eistneskur þingmaður fór yfir ár undir oki erlends valds Upplýsingar í síma 458 8269 eða á ferdavagnageymsla@gmail.com Bjóðum upp á góða ferðavagnageymslu yfir veturinn, í upphituðu húsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Svæðið er girt af og vaktað. Við geymum vagninn í vetur María Margrét Jóhannsdóttir Þórunn Kristjánsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun hefja rannsókn á meintu harð- ræði starfsmanna ungbarnaleikskól- ans 101 gegn börnum. Þetta stað- festa Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykavíkur, og Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Friðrik Smári segir að formleg rann- sókn hefjist um leið og þeim berast gögn. Halldóra sagði að málið færi til lögreglu á grundvelli þeirra gagna sem aflað hefur verið, þar með tal- ið myndbands sem barst í fyrra- kvöld, í samráði við foreldra. Þá sagði hún að eitt myndskeiðanna, auk viðtala, hefði ráðið úrslitum um þá ákvörðun að leita til lögreglu. Í tilkynningu frá Huldu Lindu Stefánsdóttur, leikskólastjóra Leik- skólans 101, sem barst síðdegis, seg- ir að mikilvægt sé að fá úr því skorið hvort um brot hafi verið að ræða og að réttir aðilar fari yfir allan vitn- isburð og gögn. „Svo virðist sem framkomin gögn gefi tilefni til að ætla að í einhverjum tilfellum hafi ekki verið komið fram við börnin af þeirri nærgætni og alúð sem þau eiga skilið. Þetta hafði ég ekki nokkra vitneskju um og harma ein- dregið ef það hefur gerst. Ég ítreka að ég hef ekki séð myndböndin sjálf, en sýni þau óviðeigandi framkomu við börn er það auðvitað á ábyrgð mína sem leikskólastjóri og ég mun ekki víkjast undan henni,“ segir í til- kynningu frá Huldu. Inn á borð lögreglunnar  Rannsaka meint harðræði starfsmanna Leikskólans 101  Myndband réð úrslitum  Harmar ef það hefur gerst Rannsókn Leik- skóli 101 lokaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.