Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 30
BAKSVIÐ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Framtakssjóðurinn Burðarás og Framtakssjóður Íslands (FSÍ) eru að ganga frá kaupum á 61% hlut í spænska samheitalyfjafyrirtækinu In- vent Farma, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Kaupverðið fyrir hlutinn nemur um 60 milljónum evra, jafnvirði tæplega tíu milljarða ís- lenskra króna, en fyrirtækið hefur verið að stærstum hluta í eigu ís- lenskra fjárfesta frá árinu 2005. Burðarás og Framtakssjóður Ís- lands munu hvor um sig kaupa um 30% hlut í fyrirtækinu en að baki Burðaráss, framtakssjóðs sem var stofnaður af Straumi fjárfestinga- banka fyrr á árinu, er fjárfestahópur sem samanstendur meðal annars af líf- eyrissjóðum, einstökum fjárfestum og mögulega tryggingafélögum. Fram- takssjóður Íslands er í eigu stærstu líf- eyrissjóða landsins og Landsbankans. Í sölu í meira en ár Fulltrúar Framtakssjóðs Íslands og Burðaráss vildu ekki tjá sig um kaupin á þessu stigi málsins þegar eftir því var leitað. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun fjárfestahópurinn kaupa hlutinn í Invent Farma af um 20 íslenskum hluthöfum. Friðrik Steinn Kristjánsson, stjórnarformað- ur Invent Farma ehf., íslensks móð- urfélags sem heldur um hlutinn í spænska fyrirtækinu, hyggst hins vegar eiga áfram um 30% hlut í In- vent Farma. Tæplega 10% hlutur FSÍ og Burðarás kaupa Invent Farma  Kaupa 61% hlut í spænsku lyfjafyrirtæki á um 10 milljarða 30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Hjarta úr hvítagulli 25 punkta demantur 99.000,- Demantssnúra 9 punkta demantur, 14K 57.000,- Demantssnúra 30 punkta demantur, 14K 157.000,- Fasteignafélagið Eik hefur keypt Turninn í Kópavogi auk fleiri bygg- inga af fasteignafélaginu SMI. Eignasafn Eikar, sem er í hópi stærri fasteignafélaga landsins, mun stækka um rúmlega 70% við kaupin en við lok fyrsta ársfjórðungs námu eignir þess rúmlega 21 milljarði króna. Kaupin verða fjármögnuð með hlutafjáraukningu sem og banka- og skuldabréfafjármögnun, segir í til- kynningu. Fasteignir sem um ræðir eru m.a. Smáratorg 1, Smáratorg 3 og lóð að Smáratorgi 5 í Kópavogi auk Glerár- eyra 1 og fasteigna við Dalsbraut 1 á Akureyri. Heildarstærð fasteigna er rúmlega 52 þúsund. Leigutakar eru um 75 talsins, þeir helstu eru Rúmfatalagerinn, Deloitte, Alvogen, Bónus, Nettó o.fl. Kaupin eru liður í áformum félags- ins um stækkun og að endingu skrán- ingu hlutafjár í Kauphöll. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, segir í tilkynningu að fyrirtækið muni halda áfram að skoða kauptækifæri sem bjóðist á fasteignamarkaði. Eik var endurskipulagt árið 2011 og eignuðust þá eigendur óverð- tryggðra skulda þess 90% hlut í fyr- irtækinu. Lífeyrissjóðir eiga um helmings hlut. Færeyingurinn Jákup Jacobsen, stofnandi Rúmfatalagersins, fór fyrir SMI á árunum fyrir hrun. Fram hef- ur komið í fréttum að SMI, sem á eignarhaldsfélagið um Korputorg og fleiri eignir, sé að stærstum hluta í eigu Arion banka með 39% hlut og þrotabús Landsbankans með 35%. Jákup á 18%. Kaupsamningurinn er með fyrir- vara um fjármögnun, samþykki hlut- hafafundar Eikar fasteignafélags, samþykki stjórnar beggja félaga, sem og samþykki Samkeppnis- eftirlitsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðmat Eik hefur keypt Turninn í Kópavogi. Miðað við hlutafjárútboð Eikar í sumar nemur verðmæti þess hátt í sjö milljörðum króna. Eignasafn Eikar stækkar um 70%  Keypti Turninn og fleiri fasteignir Landsvirkjun tapaði 52,2 millj- ónum Banda- ríkjadala eða sem nemur 6,3 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tímabili í fyrra var hagn- aðurinn níu millj- ónir dala, eða rúmlega einn milljarður. Tapið skýrist einkum af gangvirðisbreyt- ingum á innbyggðum álafleiðum orkusölusamninga sem námu 169,5 milljónum dala til gjalda á tíma- bilinu. „ Afkoma á fyrri árshelmingi er viðunandi í ljósi efnahagsástands í heiminum,“ segir Hörður Arn- arson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningu. Lands- virkjun tapar Hörður Arnarson  Sex milljarða tap                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-, +./-0. ++1-20 0+-342 +,-/4. +.-12, +0,-4/ +-0++3 +.0-02 +45-+3 +05-+, +./-/3 ++1-.2 0+-20. +,-.04 +.-3+1 +15-51 +-0+3, +.0-/, +45-2, 0+3-35/ +05-3. +..-0 ++3-+. 0+-2,+ +,-..3 +.-34/ +15-1, +-0+.3 +.1-11 +4+-53 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á MP banki tapaði fimm milljónum króna á öðrum ársfjórðungi. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaður- inn 96 milljónum. Bankinn hagn- aðist hins vegar vel á fyrsta árs- fjórðungi og þess vegna nemur hagnaðurinn fyrstu sex mánuði ársins 460 milljónum króna eftir skatta, samanborið við 119 millj- óna króna hagnað á sama tímabili árið áður. „Eftir frábæran árangur á fyrsta ársfjórðungi,“ segir Sig- urður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, í tilkynningu „réðst bank- inn í viðamiklar aðgerðir til að styrkja og efla innviði og undirbúa næstu sókn en mikill innri vöxtur hefur einkennt starfsemina síðustu tvö ár. Á vordögum töldu stjórn- endur og stjórn bankans aðstæður réttar til að stíga áhugavert skref í átt til ytri vaxtar með kaupum á öðru fjármálafyrirtæki. Tilboði bankans í meirihluta hlutafjár í Ís- lenskum verðbréfum hf. hefur ver- ið tekið og er búist við að kaupin verði frágengin á þriðja ársfjórð- ungi. Kaupin munu efla starfsemi bankans enn frekar og styrkja reglubundna tekjumyndun,“ segir hann. Ljósmynd/Arnaldur Sókn MP banki réðst í aðgerðir til að styrkja og efla innviði og undirbúa næstu sókn en mikill innri vöxtur hefur einkennt starfsemina síðustu tvö ár. MP banki tapaði fimm milljónum Það var eftir sameiningu íslensku lyfjafyrirtækjanna Omega Farma og Delta árið 2002 sem framkvæmda- stjóri þess fyrrnefnda, Friðrik Steinn Kristjánsson, fór á stúfana í leit að spennandi verkefnum utan Íslands. Niðurstaðan varð sú að hann leiddi hóp íslenskra fjár- festa sem keyptu árið 2004 tvö fyrirtæki í eigu sama aðila – Inke og Laboratories Lesvi – í gegnum félagið Invest Farma ehf. Íslenskir hluthafar eiga í dag um 87% hlut í félaginu en auk Friðriks eru hluthafar í Invent Farma Jón Árni Ágústsson, Ingi Guðjónsson, Frosti Bergsson, Daníel Helgason og Ingimundur Sveinsson. Aðeins Ingimundur mun hins vegar halda eftir hlut sínum – um 30% – eftir kaup FSÍ og Burðaráss. Í samtali við Morgunblaðið í febrúar sl. sagðist hann hafa haft „sér- stakan áhuga á Spáni þar sem notkun samheitalyfja var lítil og ljóst að hún ætti eftir að aukast mikið“. Hluti kaupanna 2004 var fjármagnaður með eigin fé og hluti með láni frá íslenskum banka. Að sögn Friðriks hafa öll lán verið í skilum og ekk- ert afskrifað, sem sýni að ekki hafi öll útrásarverkefni farið forgörðum. Útrás sem fór ekki forgörðum FRIÐRIK STEINN HELDUR EFTIR 30% HLUT Í INVENT FARMA Friðrik Steinn Kristjánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.