Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 Lækjargötu og Vesturgötu Nýjar rannsóknir þykja sýna fram á að land hafi verið numið í Fær- eyjum löngu áður en víkingar sett- ust þar að. Rannsakendur frá fær- eyska þjóðminjasafninu og Durham-háskóla á Bretlandi fundu leifar af móösku og koluð byggkorn í sandlögum við uppgröft í Sandey og segja vísindamennirnir fundinn sanna veru manna á eyjunni þar sem efnin finnast ekki saman í nátt- úrunni. Dr. Mike Church, sem fór fyrir rannsókninni, segir ljóst að fólk hafi byggt Færeyjar um 300-500 ár- um áður en víkingar námu þar land í stórum stíl á 9. öldinni en óvíst sé hvaða fólk það var og hvaðan það kom. Hann segir allar líkur á að flest ummerki um byggð þessara landnema hafi eyðilagst við innrás víkinga. FÆREYJAR Morgunblaðið/Árni Sæberg Landnám Óvíst er hvaðan fólkið kom. Víkingarnir ekki fyrstir til að nema land í Færeyjum Bandaríkin. CNN. | Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði í viðtali sem birt var á CNN í gær að tíminn fyrir hugsanlegt úrslitasvar Bandaríkja- stjórnar við meintum hermdarverk- um Sýrlandsstjórnar og ofbeldisfull- um aðgerðum egypskra hermálayfirvalda nálgaðist óðum. Hann sagði Bandaríkin „ómissandi ríki“ í óstöðugum Mið-Austurlönd- um og víðar en að Bandaríkjastjórn þyrfti að íhuga hvað þjónaði hags- munum landsins til lengri tíma litið. Forsetinn sagði embættismenn vinna að því að safna upplýsingum um meinta efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins í höfuðborginni Damaskus en allt benti til þess að um stóran og grafalvarlegan viðburð væri að ræða. Hann sagði Banda- ríkjamenn hafa ýtt á eftir meiri að- gerðum af hálfu Sameinuðu þjóð- anna og hvatt stjórnvöld í Sýrlandi til að heimila rannsókn á vettvangi árásarinnar. Inntur eftir viðbrögðum við gagn- rýni öldungadeildarþingmannsins John McCain, sem segir hæg við- brögð Bandaríkjastjórnar við ástandinu í Sýrlandi og Egyptalandi hafa komið niður á trúverðugleika Bandaríkjanna, sagðist Obama trúa því að bandaríska þjóðin vænti þess að hann hafði langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Hann varaði við því að „festast í af- ar erfiðu ástandi og vera dreginn inn í afar dýrt, erfitt og dýrkeypt inngrip sem myndi ala á meiri gremju á svæðinu“. Ár er liðið síðan forsetinn sagði að notkun efnavopna í Sýrlandi myndi kalla á hörð viðbrögð Banda- ríkjanna en forsetinn sagði að mörgu að hyggja, m.a. hvort nægjanleg samstaða ríkti um aðgerðir. „Ef Bandaríkin fara inn og ráðast á annað ríki án umboðs frá Samein- uðu þjóðunum og án þess að hægt sé að leggja fram skýr sönnunargögn, þá vakna spurningar um hvort það eigi sér stoð í alþjóðalögum,“ sagði Obama. Tillögur um að Bandaríkin láti af 1,2 milljarða dollara neyðaraðstoð við Egyptaland njóta vaxandi fylgis innan bandaríska þingsins en forset- inn sagði það líklega ekki myndu hafa áhrif á aðgerðir þarlendra stjórnvalda. Hann sagði Bandaríkja- menn hins vegar ekki vilja virðast vitorðsmenn aðgerða sem stríddu gegn hugsjónum þeirra og gildum. Bandaríkin „ómissandi“  Tíminn nálgast fyrir úrslitasvar, segir Obama AFP Forsetinn Obama bíða mörg krefjandi verkefni á komandi vetri, m.a. slagur um hækkun skuldaþaksins. Kennarar í Mexíkóborg freistuðu þess á fimmtudag að trufla þingfund efri deildar mexíkóska þingsins til að mótmæla nýrri löggjöf sem löggjafinn hefur til umræðu. Löggjöfin, sem runnin er undan rifjum forsetans Enrique Pena Nieto, færir menntamálin, sem hafa verið á höndum valdamikilla verkalýðs- félaga, aftur til hins opinbera. Lögin skylda einnig kennara til að gangast undir frammistöðupróf en kennararnir vilja að tryggt verði að prófin verði að- eins notuð til að hjálpa þeim að bæta sig en ekki til þess að ákveða uppsagnir eða stöðuhækkanir. holmfridur@mbl.is AFP Mótmæla nýrri menntalöggjöf Hundruð íbúa Gaza-svæðisins mót- mæltu í gær friðarviðræðum Ísraela og Palestínumanna í fjöldagöngum sem skipulagðar voru af Hamas og Islamic Jihad. Mótmælendur gengu frá moskum víðsvegar á svæðinu og söfnuðust saman á torgi í miðri Gaza-borg og héldu á lofti baráttu- skiltum þar sem m.a. stóð „Nei við viðræðum“. Mótmælendur sökuðu forseta Pal- estínu, Mahmud Abbas, um embætt- isglöp en Ismail Ridwan, trúmála- ráðherra Hamas, ávarpaði forsetann í ræðu sinni. „Öll palestínsku flokksbrotin segja að þú hafir ekki rétt til þess að láta af hendi landið okkar né til að gefa eftir palestínsk réttindi,“ sagði hann. Hamas-samtökin segja ákvörðun Abbas um að setjast aftur að samningaborðinu með Ísraels- mönnum ekki endurspegla vilja pal- estínsku þjóðarinnar. „Að taka aftur upp viðræður er áfall fyrir hið heilaga stríð og fyrir fórnir þjóðar okkar, blóð píslavotta okkar og fyrir fangana á bak við lás og slá í Ísrael,“ sagði Ridwan. Ísraelar hyggjast byggja 2.129 íbúðir til viðbótar á landnáms- svæðum í austurhluta Jerúsalem og á Vesturbakkanum. Segja ákvörðun forsetans ekki endurspegla vilja þjóðarinnar  Hundruð mótmæltu friðarviðræðum í Gaza-borg AFP Gaza Fólkið mótmælti í Gaza-borg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.