Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.08.2013, Blaðsíða 29
Morgunblaðið/Styrmir Kári Okkur sem hér störfum og eins viðskiptavinum finnst breyting- arnar hafa tekist vel,“ segir Sig- urður Guðmundsson, verslunar- stjóri hjá N1. Söluskáli félagsins í Borgarnesi, sem lengi var nefndur Hyrnan, var opnaður eftir umfangsmiklar breytingar í maí. Segja má að allt hafi verið stokkað upp og fært til og húsa- kynnin gerð bjartari og opnari. „Við leituðum hugmynda víða og tókum mið af nýjustu straum- um og efnum. Sumir hafa meira að segja sagt að nú minni þessi verslun þá svolítið á Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Meginávinn- ingurinn er sá að nú er staðurinn mun rýmri; við getum tekið á móti fleiri gestum og afgreiðsla gengur greiðar fyrir sig. Ávinn- ingurinn er margþættur,“ segir Sigurður sem verið hefur versl- unarstjóri N1 í Borgarnesi frá 2008. Stórar ferðahelgar er orðalag sem gjarnan er notað í fréttum t.d. um hvítasunnu- og versl- unarmannahelgi. Sannarlega eru margir á ferðinni þá, en þó síst fleiri en aðrar helgar sumarsins. „Þetta dreifist mjög jafnt – al- veg frá því um miðjan júní og langt fram í ágúst. Og hér vinn- ur þetta hvað með öðru. Hér við Brúartorgið eru ýmsar verslanir og fyrirtæki og þau skapa sterkt aðdráttarafl fyrir ferðalanga sem öll starfsemin hér nýtur góðs af. Og af því við erum í þjóðbraut þá væntir fólks margs af okkur sem er kannski utan dagskrár,“ útskýrir Sigurður sem segir að yfir vetrartímann sé algengt að fólk hringi einfald- lega í þessa fjölförnu vegasjoppu og spyrji um færðina; hvort hvassvirðri hamli för undir Hafn- arfjalli eða hvort Holtavörðu- heiðin sé fær. Telji að frekar sé að fá svör þar en hjá Vegagerð- inni og eftir atvikum lögregl- unni. „Já, hingað koma margir og oftast getum við veitt fólki ein- hver svör. Við gerum að minnsta kosti okkar besta og sannarlega er oft mikið um að vera hér t.d. þegar eitthvað er að færð yfir vetrartímann, eins og gerist oft,“ segir Sigurður. sbs@mbl.is Vegasjoppa N1 í Borgarnesi er ein sú vinsælasta á landinu Morgtunblaðið/Styrmir Kári Framkvæmdir Verslanir og veitingastaðir í skálum N1 eru reknir undir merkjum Nestis - eins og skýrt sést. Flugstöðin við Brúartorg Sjoppufólk Sigurður Guðmundsson og Steinunn Einarsdóttir sem stýrir versluninni í Borgarnesi. Á 100. fundi sveitarstjórnar Borg- arbyggðar, sem haldinn var í Reyk- holti nýverið, samþykkti sveitar- stjórn að láta gera afsteypu af listaverki eftir Guðmund Einars- son frá Miðdal. Verkið var upp- haflega gjöf frá Kvenfélagi Borgar- ness til Skallagrímsgarðs og var sett upp árið 1952. Verkið var tekið niður fyrir rúmum áratug, en fyr- irhugað er að afsteypan verði sett upp í garðinum góða næsta vor. Þess er vænst í ljósi fyrri tíðar að verkið muni auka prýði skrúð- garðsins, sem er einn sá elsti á landinu. Byrjað var að rækta garð- inn um 1930 og í áratugi var hann í umsjá Kvenfélags Borgarness, en félagskonur önnuðust garðinn um langt skeið. Sveitarfélagið Borgarbyggð í nú- verandi mynd varð til árið 2006 við sameiningu Borgarfjarðar- sveitar, Borgarbyggðar, Hvítár- síðuhrepps og Kolbeinsstaða- hrepps – en áður höfðu Borgarnes og sveitarfélögin í kring samein- ast. Afsteypa í Skallagrímsgarð SVEITARSTJÓRNIN HELDUR 100. FUND SINN  Næsti viðkomustaður hringferðarinnar er Hvalfjarðarsveit. Á mánudag fjölskyldum þeirra á ýmsum tíma 20. aldar – sem endurspeglar vel þær gífurlegu breytingar sem urðu á lífi þjóðarinnar þessi hundrað ár. Í haust verður svo opnuð sýning á verkum úr eigu Hallsteins Sveins- sonar. Hann sá lengi um innrömmun mynda helstu listmálara þjóðarinnar – og eignaðist þannig marga lista- gripi sem fólki gefst kostur á sjá. sbs@mbl.is Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 limtrevirnet.is Landbúnaður og hestasport hesthús, reiðhallir, fjárhús, fjós og fleiri gerðir landbúnaðarbygginga vönduð hús - stuttur afgreiðslufrestur MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.