Morgunblaðið - 24.08.2013, Síða 20

Morgunblaðið - 24.08.2013, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Um þriðjungur íslenskra fanga hefur reynt sjálfsvíg á lífsleiðinni, að eigin sögn. Þá segjast á bilinu 54-69% fanga glíma við þunglyndi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í rann- sókn doktorsnemans Boga Ragn- arssonar sem nemur félagsfræði við Háskóla Íslands. Niðurstöður rann- sóknarinnar fékk Bogi með því að leggja spurningalista fyrir alla ís- lenska fanga í fangelsum í maí og júní árið 2007, í október árið 2009, og í apríl árið 2011. Í tölunum kemur einnig fram að á bilinu 6-14% fanga telji sig haldin geðklofa og um þriðjungur telur sig glíma við geðhvörf. Ekki raunveruleikinn Kjartan Kjartansson var eini starfandi geðlæknir í um 20% starfi á Litla-Hrauni á árunum 2009-2013. Hann lét af því starfi fyrir tveimur vikum. Kjartan hefur ekki trú á því að tölur um geðhvörf og geðklofa í rannsókninni endurspegli raunveru- leikann. „Sem betur fer er þetta ekki svona hátt hlutfall, því þá væri ástandið ansi slæmt í fangelsum. Um 1% fólks á við geðklofa stríða og 5- 10% glíma við geðhvörf ef týpa 2 er meðtekin. Það er innan við þriðj- ungur af því sem segir í nið- urstöðum,“ segir Kjartan. Hann segir að engu að síður sé fróðlegt að heyra af því hvernig fangar upplifi geðheilbrigði sitt. Hann bendir á að menn í neyslu geti sýnt einkenni geðklofa og geð- hvarfa án þess að þessir geð- sjúkdómar hrjái þá. „Sumir heyra einhverjar raddir eins og geðklofa- sjúklingar þegar þeir eru í neyslu. Aðrir upplifa geðheilsu sína upp og niður eins og þeir sem glíma við geð- hvörf. En það sýnir í raun bara stærsta vandann sem er fíkniefna- neyslan,“ segir Kjartan. Hann segir að niðurstöður um hátt hlutfall þunglyndra fanga komi sér ekki á óvart. „Menn telja sig þung- lynda af ýmsum ástæðum. Það segir sig svolítið sjálft þegar menn eru í þessum aðstæðum,“ segir Kjartan. Hann segir að menn hafi gjarnan leitað til hans vegna þunglynd- iseinkenna. Hann telur að tölur um sjálfsvígstilraunir fanga á lífsleiðinni geti staðist. „En þetta er skilgrein- ingaratriði. Hátt hlutfall þeirra sem koma inn á fíknigeðdeild eru búnir að ofskammta sig eða skera sig. En það getur verið munur á því hvort að það sé sjálfsskaði eða sjálfsvígstil- raun, það er munur þar á,“ segir Kjartan en bendir á að fangar geri ekki endilega greinarmun á þessum skilgreiningum. Sjö fangar hafa tek- ið eigið líf í íslenskum fangelsum frá árinu 1983 samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun. Bæta þarf þjónustuna Auk geðlæknis í 20% starfi þjón- usta tveir sálfræðingar frá Fangels- ismálastofnun fanga á Litla-Hrauni. Kjartan telur brýna þörf á að bæta geðheilbrigðisþjónustuna. „Ég kom t.d. þarna tvisvar í mánuði og hefði viljað koma oftar,“ segir Kjartan. Hann telur að bæði þurfi meira vilja og fjármagn í málaflokkinn. Að- spurður hvort eitthvað standi upp úr sem betur megi fara telur hann að bæta þurfi samstarfið við fangels- ismálayfirvöld. „Kerfið er þannig að Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir geðheilbrigðisþjónustu með geð- hjúkrunarfólki og geðlæknum. Á hinn bóginn starfa sálfræðingar og félagsráðgjafar frá Fangels- ismálastofnun í fangelsinu. Það er svolítill múr þarna á milli. Við erum ekki að vinna inni í sama kerfi og ég sé ekki hvað sálfræðingurinn er að gera og hann sér ekki hvað ég er að gera. Að auki hittumst við ekkert. Með þessu er hætta á að menn tví- vinni hlutina,“ segir Kjartan. Rannsókn Lagður var spurningalista fyrir alla íslenska fanga í fangelsum árið 2007, 2009 og 2011. Um þriðjungur fanga hefur reynt sjálfsvíg  Rúmur helmingur glímir við þunglyndi  Skortur á samstarfi Litla-Hrauns og Fangelsismálastofnunar hamlar þjónustu Hlutfall fanga með geðsjúkdóma flokkað eftir fangelsum (2007 - 2011) Þunglyndi (2007-2011) Geðklofi (2007-2011) Geðhvörf (2011) 53 % 78 % 55 % 6 3% 17 % 10 % 13 % 0 % 34 % 36 % 4 3% 26 % Litla Hraun Fangelsið í Kóp. Hegningarhúsið Fangelsið Kvíabryggju Hefurðu einhverntíman hitt lækni eða félagsráðgjafa vegna eftirtalinna vandamála? Þunglyndi Geðklofi Geðhvörf Sjálfsvígstilraun 59 % 54 % 66 % 6% 14 % 12 % 36 % 31 % 33 % 37 % 21 % 2 9% 2007 2009 2011 Morgunblaðið/Golli Bogi Ragnarsson tekur undir með Kjartani um að ekki eigi að taka niðurstöður rannsókn- arinnar of bókstaflega þegar kemur að geðheilbrigðis- málum. „Þó að útskýringar hafi verið með á þeim hug- tökum sem spurt er um í spurningalistanum eins og á geðhvörfum, svo dæmi sé nefnt, þá eru þetta hugtök sem leikmenn hafa kannski ekki algeran skilning á. Engu að síður varpa niðurstöðurnar ákveðnu ljósi á líðan fanganna og gefur tilefni fyrir frekari rannsókna, t.a.m. fyrir geð- lækna eða sálfræðinga,“ segir Bogi. Hann segir þó að niður- stöður um þunglyndi og al- gengi sjálfsvígstilrauna gefi nokkuð skýra mynd. Varpar ljósi á líðan fanga RANNSAKANDINN Ísmeygilega yndisleg Stórskemmtileg saga, skrifuð af listfengi, húmor og hárfínni grimmd. Eftir höfund Franskrar svítu „Ég er full aðdáunar á þessari skáldkonu.“ KB / Kiljan www.forlagid.i s – alvöru bókabúð á net inu Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri Bað og sturta! SAFIR sturtusett 1.995 10.990 AGI-167 hitastýrð blöndunartæki fyrir sturtu fáanl. m. upp stút AGI-160 hitastýrð blöndunartæki fyrir baðkar 14.990 einnig fáanlegt með áföstu sturtusetti NAPOLI hitastýrt sturtusett 26.900 Ný hö nnun Rósetturog hjámiðjur fylgja öllum blöndunartækjum 1.590 Swift snagi, burstað stál, mikið úrval Flugfarþegi, sem var á leið frá Íslandi til Halifax, veiktist svo af hnetuof- næmi í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar í vikunni að kalla þurfti til lækni, auk þess sem lögreglunni á Suður- nesjum var gert viðvart um málið. Farþeginn, sextán ára stúlka, var með fjölskyldu sinni á ferðalagi þegar hún veiktist. Erlend- ur læknir, sem staddur var í flugstöðinni á þessum tíma, hlúði að stúlkunni og veitti henni nauðsynlega aðstoð. Lögreglumenn aðstoð- uðu svo fjölskylduna, sem fresta þurfti ferðalaginu um sinn, við að komast á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Veiktist af heiftarlegu hnetuofnæmi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.