Morgunblaðið - 24.08.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 24.08.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013 Hefur þú hugmynd? Þann 14. ágúst sl. óskaði hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar eftir ábendingum frá almenningi um hvað mætti betur fara í ríkisrekstri. Frá þeim tíma hafa mörg hundruð ábendingar borist hópnum. Hópurinn vill vekja athygli á því að enn er hægt að senda inn tillögur og verður það hægt fram til 30. ágúst nk. Hægt er að senda tillögur á netfangið hagraeding@for.stjr.is eða á eftirfarandi vefslóð: http://www.forsaetisraduneyti.is/hagraeding/abending/ Um leið og hagræðingarhópurinn þakkar frábærar undirtektir þá eru landsmenn hvattir til að koma ábendingum á framfæri enda varðar kostnaður af rekstri ríkisins okkur öll. Hagræðingarhópur Ríkisstjórnarinnar ÚR BÆJARLÍFINU Andrés Skúlason Djúpivogur Sumarið 2013 sem nú er að renna skeið sitt á enda er eitt það besta sem ferðaþjónustan á Djúpavogi og nær- sveitungar hafa upplifað. Allt lagðist á eitt um að gera þetta sumar gott og má segja að bærinn hafi verið iðandi af lífi samfellt frá miðjum júní fram til þessa dags. Ferðaþjónustan á sí- fellt stærri hlut í atvinnulífinu á Djúpavogi og þar fá margir fram- haldsskólanemar meðal annars vinnu við fjölbreytt störf.    Atvinnulífið hefur því blómstrað á Djúpavogi í sumar og hefur höfnin sömuleiðis verið iðandi af lífi þar sem fjölmargir strandveiðibátar eru gerð- ir út héðan frá Djúpavogi. Þá hafa 5 línuveiðarar frá Stakkavík í Grinda- vík gert út frá Djúpavogi í sumar og hafa þeir jafnframt komið upp að- stöðu til landbeitningar á staðnum og þar hafa sömuleiðis verið sköpuð nokkur tímabundin störf. Þá mætir línufloti Vísis hf. frá Grindavík að venju til löndunar í Djúpavogshöfn frá og með haustinu.    Hlé var gert á framkvæmdum við smábátabryggju á Djúpavogi fyr- ir skemmstu þegar verktakinn sagði sig frá verkinu. Unnið er að því þessa dagana að semja við heimamenn um lúkningu verksins og er stefnt að því að áframhald framkvæmda verði komið á fullt skrið um næstu mán- aðamót. Með stækkun hafnarinnar munu aðstæður smábáta við Djúpa- vogshöfn stórbatna til framtíðar litið og mun viðlegupláss þeirra meðal annars verða aukið til muna.    Smáfólkinu heldur áfram að fjölga á Djúpavogi og nú er svo kom- ið að leikskólinn sem var tekinn í notkun árið 2005 ber ekki lengur all- an barnafjöldann en skólinn rúmar að hámarki 40 börn. Þar sem sveitar- félagið vill koma í veg fyrir að biðlist- ar myndist á leikskólanum, hefur þegar verið tekin ákvörðun um að stækka tímabundið skólann með því að færa tvo yngstu árgangana í ann- að húsnæði, í sameinuðum Djúpa- vogsskóla, grunn- og leikskóla eru nú vel yfir hundrað börn.    Sveinn Þórður Þórðarson íþróttafræðingur hefur verið ráðinn íþrótta- og æskulýðsfulltrúi til Djúpavogshrepps og hefur hann þeg- ar tekið til starfa. Er þetta í fyrsta sinn sem ráðinn er einstaklingur til þessa starfa í Djúpavogshreppi og eru bundnar vonir við að þessi tilhögun muni styrkja enn betur en orðið er barna- og unglingastarf í sveitarfélaginu. Djúpavogshreppur hefur á síðustu árum lagt mjög mikið af mörkum við að byggja upp fjölskyldumiðað sam- félag á Djúpavogi, ráðning íþrótta- og æskulýðsfulltrúa er einn þáttur í að styrkja þá stefnu enn frekar.    Um þessar mundir stendur Djúpavogshreppur fyrir endurbygg- ingu og stækkun á húsnæði í eigu sveitarfélagsins en þar stendur fyrir dyrum að opna félagsmiðstöð fyrir eldri íbúa innan nokkurra vikna. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Austfirskt sumar Í sól og sumaryl á Búlandsnesi við Djúpavog. Atvinnulíf í blóma á Djúpavogi „Við erum að ráða fólk aftur til að hanga í snörunni í tvo mánuði í við- bót á meðan ráðherra leggur hug- myndir sínar fyrir Alþingi,“ segir Jón Guðbjartsson, útgerðarmaður á Ísafirði. Allri áhöfn togara Kampa var sagt upp fyrir þremur mánuðum. Í sumar þurfti Kampi ehf. í fyrsta sinn að grípa til sumarlokunar í rækjuvinnslunni og er sú lokun til- komin vegna veiðibanns á úthafs- rækju sem hófst 1. júlí sl. og stendur til loka þessa kvótaárs, eða 31. ágúst. „Við sögðum upp áhöfninni fyrir þremur mánuðum, nú er ég að ráða mennina aftur sem hættu um síðustu mánaðamót. Ég ræð suma aftur ásamt einhverjum nýjum til að reyna að búa til áhafnir á tvo togara sem mega byrja að veiða 1. sept- ember,“ segir Jón sem ætlar að senda togarana Gunnbjörn og Ís- björn út ef það næst að ráða í allar stöðurnar að nýju. „Starfsfólkið okkar hefur verið óvíst með vinnu í sex mánuði,“ segir Jón. En á yfirstandandi fiskveiðiári er búið að landa um 10 þúsund tonn- um af rækju og hefur Kampi unnið um þriðjung alls rækjuaflans. aslaug@mbl.is Rækja Útgerðarfyrirtækið Kampi á Ísafirði gerir út á rækjuveiðar. Starfsfólkið þarf að hanga í snörunni  Hefur unnið um þriðjung aflans Nýjar reglur » Veiðar á úthafsrækju voru gefnar frjálsar árið 2010. » Nú verður þeim stýrt á nýjan leik og fá þeir sem hafa veitt frá 2010 30% aflamarks, ef boðað frumvarp sjávarútvegs- ráðherra verður að lögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.