Morgunblaðið - 24.08.2013, Page 28

Morgunblaðið - 24.08.2013, Page 28
28 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við erum smám saman að vinna okkur út úr afleiðingum hrunsins. Greitt hefur verið úr flækjum, íbúum er að fjölga og tekjur þeirra að aukast og sveitar- félagsins þar með. Að und- anförnu höfum við því getað farið í ýmsar fram- kvæmdir sem voru orðnar að- kallandi,“ segir Páll Snævar Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð. Byggt og breytt í Brákarhlíð Nýlega lauk framkvæmdum við stækkun elli- og hjúkrunarheimilis- ins í Brákarhlíð í Borgarnesi. Byggð var hjúkrunardeild sem tekur alls 30 vistmenn og eru þeir fyrstu þegar fluttir inn. Heildarkostnaður við þessa framkvæmd er um 850 millj- ónir króna og greiðir ríkið 85% kostnaðar, með leigusamningi sem gildir til 40 ára. Sveitarfélagið, ásamt Skorradalshreppi og Eyja- og Mikla- holtshreppi sem eru aðilar að heim- ilinu, borgar það sem út af stendur. Nú er unnið að endurbótum á öðrum hluta húsnæðis Brákarhlíðar. Víðfeðmt svæði „Aðstaðan í Brákarhlíð var barn síns tíma, en nú er þetta komið í gott horf,“ segir Páll sem verið hefur sveitarstjóri í Borgarbyggð frá árinu 2002. Þá náði sveitarfélagið yfir Borgarnes og aðliggjandi svæði, en fjórum árum síðar bættust við byggðirnar í uppsveitum héraðsins; það er Borgarfjarðarsveit. „Þetta er víðfeðmt svæði en okkur hefur þó tekist að halda utan um þetta,“ segir Páll. Framkvæmdir sveitarfélagsins um þessar mundir segir hann vera víða í sveitarfé- laginu. Má þar nefna dreifbýlið svo sem háskólaþorpin á Bifröst og Hvanneyri og ýmis járn séu í eld- inum í Borgarnesi. Má þar nefna t.d. göngustígagerð syðst í bænum, það er í gamla miðbænum og inn með Borgarvogi þar sem íþróttamiðstöð bæjarins er. Þessi gönguleið nýtur vinsælda t.d. meðal ferðamanna og í krafti þess fengust styrkir til verkefnisins frá Ferðamálastofu. Það léttir undir, að sögn Páls, en alls leggur sveitar- félagið um 100 millj. kr. til fram- kvæmda á þessu ári. Bæta í og styrkja innviði Í það heila verða tekjur Borg- arbyggðar á líðandi ári um 2,8 millj- arðar og skilar útsvarið um helmingi en fjórðungur kemur úr jöfn- unarsjóði sveitarfélaga. Annað eru fasteigna- og þjónustugjöld. Fyrir hrun var mikið byggt í Borgarbyggð og fyrir vikið var nið- urdýfan í hruninu brött, að sögn sveitarstjórans. „Hér voru stór fyrirtæk í bygg- ingaiðnaði sem þurftu að draga segl- in mjög skarpt saman. Sem betur fer tókst að halda þeim á lífi, en þess sér auðvitað stað víða þegar starfs- mönnum fyrirtækis fækkar úr rúm- lega 200 niður í 55 eins og dæmi eru um,“ segir Páll. Nefnir hann í þessu samhengi að sumarið 2008 bjuggu 3.760 manns í Borgarbyggð, árið eft- ir fækkaði þeim um rúmlega 200 og fækkaði frekar árið 2010 og 2011. Nú er íbúafjöldinn kominn í 3.500 og hefur aukist undanfarna mánuði. Fækkunin tók í en fjölgunin nú gef- ur sveitarfélaginu byr í seglin, svo sem að bæta í varðandi þjónustu og styrkingu innviða. Fjölgun íbúa gefur byr í seglin  Framkvæmdir í Borgarbyggð  Greiða flækjur hrunsins  Dýfan var brött  Elliheimili og göngustígar Morgunblaðið/Ómar Hraunfossar Borgarbyggð er víðfeðm og ystu mörk eru inni á hálendi. Fossarnir fögru eru í Hvítánni. Borgarnes Fallegur bær og elsti hluti hans, sem er fremst á nesinu, er gamall og gróinn. Páll Snævar Brynjarsson Framkvæmdir » Í Borgarbyggð búa nú um 3.500 manns. Voru þegar best lét í góðærinu 3.760. » Víðfeðmt sveitarfélag og víða þarf að taka til hendi. » Göngustígagerð á fallegum stað við Borgarveginn er næsta mál á dagskrá. » Endurbætur á elliheimili voru áherslumál og er nú að ljúka.  „Við höfum leitast við að vera með sýningar sem eru í senn frum- legar og ögrandi en fræðandi um leið,“ segir Guð- rún Jónsdóttir, forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar. Í vor var sett upp ný fastasýning í húsinu og fékk hún heitið Ævin- týri fuglanna. Uppistaðan þar eru um 200 fugl- ar af um 100 teg- undum, sem hamskerarnir Jón Guð- mundsson og Kristján Geir- mundsson hafa stoppað upp, báðir miklir meistarar á sínu sviði. Nátt- úrugripasafn Borgarfjarðar er eitt þeirra safna sem eru í Safnahúsi og er það safnkostur þess sem er uppi- staðan í sýningunni. Safnið var sett á laggirnar fyrir um fjörutíu árum og þar er margt merkilegt að finna. „Þarna eru ýmsir sjaldgæfir flæk- ingar og eins get ég nefnt langvíu- egg sem tínt var norður í Grímsey fyrir rúmlega öld síðan,“ segir Guð- rún um þessa sýningu sem Snorri Freyr Hilmarsson hannaði. Börn í 100 ár er yfirskrift ann- arrar fastasýningar Safnahússins og er hún líka hönnuð af Snorra. Þar eru sýndar ljósmyndir af börnum og Flækings- fuglar og börn Guðrún Jónsdóttir Fuglar Sýning á uppstoppuðum fugl- um hefur vakið verð- skuldaða athygli. BORGARNES DAGA HRINGFERÐ  „Salan er aðeins að taka við sér og það helst í hendur við meiri umsvif í atvinnulífinu. Unnið er að ýmsum all- stórum verkefnum um þessar mundir og vegna þeirra hafa verktakar verið á höttunum að útvega sér notuð tæki. Þar er hins vegar ekki um auð- ugan garð að gresja,“ segir Arilíus Dagbjartur Sigurðsson, sem rekur bíla- og vélasöluna Geisla í Borgarnesi. „Fyrst eftir hrunið voru ósköpin öll af nýlegum vélum og tækjum seld úr landi, sem nú væri gott að grípa til. Það þyngir líka róðurinn að tæplega er hægt að fá neina fjármögnun til kaupa á eldri tækjum.“ Aðsetur Geisla, sem Arilíus rekur með Dagbjarti Ingvari syni sínum, er við Engjaás í Borgarnesi þar sem eru gatnamót Norðurlands- og Snæfells- vegar. Þetta er fyrirtæki í þjóðbraut og af því leiðir að viðskipavinirnir koma víða að. „Já, við eigum vini um allt land. Eins og þú sérð hér á plan- inu þá höfum við svolítið einbeitt okkur að vinnuvélum, því sjálfur starfaði ég lengi á þeim vettvangi. Hér erum við með gröfur, traktora, vörubíla, tengivagna, rútur og fleira.“ Fyrst eftir hrun var sáralítið flutt af nýjum bílum til landsins. Afleiðing þess er sú, að í dag er lítið úrval á sölu af bílum í árgerðum 2008-2010, en áður fyrr voru slíkir áberandi á bílasölunum. „Þó koma stundum inn ágætir fólksbílar í sölu hjá okkur og séu þeir á verðbilinu 1,0-1,5 milljón kr. seljast þeir fljótt,“ segir Arilíus í Borgarnesi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Geisli Arilíus í Borgarnesi selur gröfur, traktora, vörubíla, rútur og fólksbíla. Okkar vantar vinnuvélar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2013

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.