Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 5
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf. www.gamma.is Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� � Systurnar Pálína Árnadóttir og Margrét Árnadóttir mynda stundum hálfan strengjakvartett. Pálína:Hljóðfæraleikarar vinna í nokkuð sérhæfðum heimi. Margrét: Já, við notum jafnvel okkar eigin hug- tök til að lýsa spilastíl og tækni. Til dæmis þykir oft gott að strengjaleikarar spili nótur með því að „húkka“. Það hljómar líka furðulega þegar óvant fólk heyrir okkur tala um að spila við „froskinn“ eða „oddinn.“ Þó að tengslin milli meðlima Sinfóníu- hljómsveitar Íslands geti verið með ýmsum hætti þá eru systkin innan sveitarinnar frekar óalgeng í sögu hennar. En það dylst engum að þær eru systur þær Pálína og Margrét Árna- dætur, þó svo að litatónninn í bylgjuðu hárinu sé ekki alveg sá sami. Báðar lögðu þær tónlistina fyrir sig á sínum tíma og völdu strengjahljóðfæri til að leika á, Pálína valdi fiðlu en Margrét selló og þær geta því fyllilega myndað betri helminginn af strengja- kvartett ef svo ber undir. Þær systur eru samstíga um flest allt og lærðu t.d. báðar hljóðfæraslátt sinn við hinn virta Julliard tónlistarháskóla í New York sem þykir einn sá allra virtasti í heimi. Tónlist er þeim systrum í blóð borin og þess má til gamans geta að faðir þeirra, Árni Arinbjarnarson, er mikill tónlistarmaður sem leikið hefur bæði á orgel og með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fiðlu til fjöldamargra ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.