Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði“ „Katrín heiti ég. Þau hjónin Binni og Sylvía sáu um að selja húsið mitt sumarið 2013 og veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði. Haldið var opið hús þar sem þau sáu um að bjóða fólkið velkomið og fylgdu opna húsinu svo eftir en það leiddi til sölu sem allir voru sáttir við. Ég mæli hiklaust með þessum sætu hjónum“ 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í sumar við nýtt hótel á lóð- unum númer 17 og 19 við Hafn- arstræti og að hótelið taki til starfa eftir tvö ár, þ.e. vorið 2016. Í þessu fjögurra stjörnu hóteli verða 70-80 herbergi í háum gæðaflokki og má áætla að kostnaður við framkvæmd- irnar geti numið um tveimur millj- örðum króna. Í hjarta borgarinnar Það er Skúli Gunnar Sigfússon, oft kenndur við Subway-veitinga- staðina, og félög á hans vegum sem eiga lóðir og mannvirki á reit- unum og standa að fram- kvæmdum. „Hót- elið verður á ein- stökum stað í hjarta borg- arinnar og þarna verður vandað til verka,“ segir Skúli í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að nú séu í gangi við- ræður við innlenda aðila um rekstur hótelsins. Unnið er að útfærslu teikninga í framhaldi af deiliskipulagsteikn- ingum, sem samþykktar voru síð- asta haust, en ásýnd Hafnarstrætis á ekki að breytast. Að sögn Skúla er miðað við að byrja á framkvæmdum í sumar ef undirbúningur, leyfisveit- ingar og annað slíkt gengur vel. Gengið í gegnum Kolasund Hótelið verður í raun í fjórum húsum, sem verða samtengd. Inn- gangurinn verður í Kolasundi, á milli húsa 17 og 19, sem lá niður að höfn- inni. Mögulega verður gönguleið eft- ir sundinu í gegnum húsin. Rammagerðin leigir versl- unarrými í húsi númer 19 og verður ekki breyting á því með tilkomu hót- elsins. Skúli segir að starfsemi Rammagerðarinnar passi vel inn í hótelreksturinn og frekar verði rými fyrirtækisins stækkað en að þrengt verði að því. Einnig verður veitinga- staður á jarðhæð hótelsins. Byggt Tryggvagötumegin Húsið á lóðinni númer 17 var byggt árið 1900 og er því friðað. Thomsen kaupmaður eignaðist hús- ið árið 1902 og er það gjarnan kennt við hann, en margvísleg starfsemi hefur farið þar fram. Það verður gert upp í samræmi við upprunalegt útlit í samvinnu við Minjastofnun og borgarminjavörð. Skúli segir að undirbúningur að þeirri vinnu sé þegar hafinn og verði þetta gamla hús hluti af hótelinu. Á lóðinni rís nýtt fjögurra hæða hús með kjallara innan byggingarreits- ins Tryggvagötumegin. Friðað hús hluti af hótelinu Húsið á lóðinni númer 19 var byggt árið 1925 og verður nýtt fjög- urra hæða hús byggt á reitnum sem snýr að Tryggvagötu. Þá verður byggt hús á horninu og mjókkar það í átt að Lækjargötu. Þegar er farið að tala um húsið sem fyrsta „strau- járnshús“ landsins. Húsnæðið, þar sem leigubílastöð- in City Taxi er til húsa, verður rifið. Framkvæmdir eru hafnar við breytingar á Pósthússtræti og verða gangstéttir m.a. breikkaðar. Fyr- irhugað er að lítið torg verði á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu fyr- ir framan pylsustaðinn þar sem bæj- arins bestu hafa verið seldar í ára- tugi. Fyrirhugaðar hótelfram- kvæmdir tengjast ekki húsinu á horni Hafnarstrætis og Póst- hússtrætis, sem byggt var árið 1898. Þar hefur veitingastaðurinn Hornið verið starfræktur frá 1979. Hótelbygging Straujárnshúsið fremst á myndinni, en ásýnd Hafnarstrætis á ekki að breytast mikið að öðru leyti. Stuðst er við deiliskipulagsteikningu. Nýtt hótel í Hafnarstræti  70-80 herbergi í nýjum húsum og gömlum  Opnar vorið 2016  Fyrsta „straujárnshús“ landsins  „ Þarna verður vandað til verka,“ segir Skúli Sigfússon í Subway sem stendur að verkefninu Tölvumynd/THG-arkitektar Frá Tryggvagötu Mikil breyting verður á götumyndinni við Tryggvagötu og byggingar rísa að mestu þeim megin. Fremst er torg við Bæjarins bestu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslun og veitingahús Byggingareiturinn er í hjarta miðborgarinnar og verður Rammagerðin áfram á jarðhæðinni, en einnig veitingastaður. Skúli Gunnar Sigfússon Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við sjáum tækifæri hér í æfinga- og kennsluflugi. Flugskólar gætu átt heima hér,“ segir Ásta Stef- ánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar. Til at- hugunar er að byggja flugvöllinn á Selfossi upp þannig að hann geti tekið við hluta af þeirri starfsemi sem hverfa mun frá Reykjavík- urflugvelli ef þrengt verður meira að starfseminni þar. Á skipulagi er gert ráð fyrir að hægt sé að byggja íbúðarhús við flugvöllinn, með flugskýlum í stað bílskúra. Selfossflugvöllur er í eigu Flug- klúbbs Selfoss. Hann er við Ölf- usá, sunnan Selfoss. Byggt hefur verið í nágrenni hans og fleiri hverfi á skipulagi. Um tíma var hugmyndin að leggja hann af en Þórir Tryggvason, gjaldkeri flug- klúbbsins, segir að tekist hafi að festa hann í skipulagi. Höfum það sem vantar Forsvarsmenn flugklúbbsins hafa farið á fund bæjarráðs Ár- borgar og kynnt hugmyndir sínar um uppbyggingu vallarins. Þeir hafa einnig verið að laga völlinn til. Þar eru malarbrautir en búið að græða upp aðra flugbrautina og helming hinnar. „Við erum að horfa til framtíðar og viljum efla og styrkja völlinn,“ segir Þórir og bendir á að þar sé hægt að bjóða upp á þjónustu sem verið sé að þrengja að á Reykjavíkurflugvelli. „Við höfum það sem vantar,“ segir Þórir. Einkum er verið að ræða um kennslu- og æfingaflug en jafn- framt almennt einkaflug. Bæj- arráð hefur einnig fengið á sinn fund fulltrúa Isavia sem annast rekstur flugvalla í landinu og Flugmálafélags Íslands. „Við bíðum hér með opinn faðm- inn,“ segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, um hugsanleg tækifæri við uppbygg- ingu í fluginu. Hún segir að verið sé að undirbúa breytingu á að- alskipulagi, þar sem gert yrði ráð fyrir kennsluflugi. Gera þurfi hljóðkort og aðra tæknivinnu til að meta áhrif aukinnar umferðar á íbúðabyggð í nágrenninu. Þá sé verið að skoða kostnað við að leggja bundið slitlag á flugbraut. Kostnaðurinn ræðst af lengd brautar og breidd en hleypur alla- vega á tugum milljóna króna. Þverpólitísk samstaða er um verkefnið. „Við sjáum þetta sem hluta af tækifærum sveitarfé- lagsins í atvinnumálum. Þjónusta sem fyrir er myndi njóta góðs af ef flugvöllurinn yrði meira not- aður,“ segir Ásta. Flogið heim í hlað Skipulagt hefur verið svæði fyr- ir flugskýli fyrir 30 til 40 flug- vélar, til viðbótar þeim sem fyrir eru, og svæðið er tilbúið til upp- byggingar. Þá hefur verið tekið frá svæði fyrir íbúðarhús alveg við flugvöllinn þar sem unnt er að bjóða flugáhugafólki að byggja íbúðarhús með flugskýli í stað bíl- skúrs. Þá gætu flugmennirnir rennt á flugvélinni heim í hlað eft- ir flugið. Ásta tekur fram að ekki sé búið að leggja götur og lagnir að þessum lóðum. Kennsluflugið velkomið Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Selfossflugvöllur Til athugunar er að byggja upp flugvöllinn á Selfossi svo hann geti hugsanlega tekið við kennslu og æfingaflugi auk einkaflugs. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há- skóla Íslands, telur að háskólakerf- ið hér á landi sé allt of flókið. Hag- kvæmast væri, bæði til að spara peninga og til að styrkja vísinda- kerfið, að sameina krafta stærstu stofnananna. Í viðtali við Stúdentablaðið, sem kom út í gær, segir hún það jafn- framt valda sér gríðarlegum von- brigðum ef ekkert verði af samein- ingu Landbúnaðarháskólans og HÍ. Hún segir að hingað til hafi ekki verið vilji til þess að sameina Há- skólinn í Reykjavík og Háskóla Ís- lands, meðal annars vegna þess að fólk hafi viljað hafa ákveðna sam- keppni milli stofnana. Sameining HÍ og HR hagkvæmasti kost- urinn að mati rektors Háskóla Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.