Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 Ný bresk rannsókn á inflúensulyfinu Tamiflu sýnir að lyfið hefur enga kosti umfram hefðbundin verkjalyf til varnar inflúensu. Sóttvarnalæknir segir aðrar rannsóknir sýna fram á gagnsemi lyfsins. „Tamiflu gagnast við inflúensu ef það er rétt notað og við teljum þetta mikilvægt lyf,“ segir Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá Land- læknisembættinu, spurður um gagn- semi lyfsins. Hann segir afstöðu emb- ættisins ekki hafa breyst, þrátt fyrir niðurstöður rannsóknarinnar. Hún var unnin af rannsóknarstofnuninni Cochrane og greint var frá henni á vef breska ríkisútvarpsins. Haraldur segir þessa umræðu koma reglulega upp, ekkert nýtt sé að finna í þessari rannsókn. Aðrar rannsóknir sýni fram á gagnsemi lyfsins. Hann bendir á að flestir þurfi ekki á lyfjum að halda þegar þeir veikjast af inflúensu. En alltaf sé ákveðinn hópur fólks, t.d. með und- irliggjandi aðra sjúkdóma, sem getur veikst mikið. Þá sé gott að nota Ta- miflu. Kostirnir við að nota lyfið séu m.a. þeir að sjúklingurinn smiti í styttri tíma. Auk þess slái lyfið á ein- kennin. Þá segir Haraldur að alltaf hafi verið vitað að lyfið komi ekki í veg fyrir útbreiðslu inflúensu en geti þó hægt á henni. Lyfið var fyrst keypt inn árið 2006. Bætt var við birgðum árið 2009. Til er nóg af lyfinu fyrir þriðjung þjóð- arinnar og Haraldur segir að þær séu ekki of miklar. Á árunum 2012 og 2013 fengu um 400 manns lyfið og um 200 það sem af er ári. thorunn@mbl.is „Tamiflu gagnast við inflúensu“ Morgunblaðið/Kristinn Tamiflu Deilt er um ágæti lyfsins.  Rannsókn segir virkni sem verkjalyf Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Hvernig haga eigi framfærslu barna eftir skilnað í ljósi breyttra fjölskylduhátta er óleystur vandi af hálfu löggjafans. Sérstaklega þegar börn búa jafnt á tveimur heimilum. Þá er ekki ásættanlegt að annar að- ilinn fái greiðslur og hinn sé skuld- settur fyrir meðlagsgreiðslur,“ segir Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í fé- lagsráðgjöf við Háskóla Íslands og reyndur fjölskylduráðgjafi. Hún segir að það þurfi að vera leiðbeinandi löggjöf um hvernig ungir foreldrar geti haldið á þessu, þar sem litið er til þeirrar nýju þró- unar að börn eru að miklu leyti til jafns hjá báðum foreldrum. „Þá hlýt- ur kostnaðurinn að sama skapi að þurfa að skiptast jafnar,“ segir Sig- rún. Í gegnum starfið hefur hún kynnst vel stöðu foreldra, einkum þeirra sem skilja ungir að árum. Hún segir þann hóp oft vera í mikl- um vanda, ekki síst fjárhagslega. Staða meðlagsgreiðenda hér á landi er bág, og skýrist hún að hluta af lögheimili barnsins. Þetta kom fram í samtali Gunnars Kristins Þórðarsonar, formanns Samtaka meðlagsgreiðenda, við Morgunblað- ið á mánudaginn sl. Skilnaðarforvarnir vantar Sigrún bendir á að margir skjól- stæðinga hennar hafi orðið skuld- settari eftir að hafa selt fasteign sína við skilnað. Þeir hafi þar af leiðandi átt erfiðara með að fóta sig á hús- næðismarkaðnum. „Þegar fólk stendur frammi fyrir hugmyndinni um skiln- að eru skilnaðarforvarnir eitt af því sem vantar,“ segir Sigrún. „Skilnaður er ekki alltaf lausnin. Stundum er hann flótta- leið. Þá tekur fólk með sér sömu vandamál og það var að kljást við inn í önnur sam- bönd. Auðvitað geta aðstæður verið þannig að stundum er skilnaður óhjákvæmilegur, en í mörgum tilvik- um má vinna úr vandanum og styrkja sambandið.“ Hún bendir á að óhjákvæmilega verður lífið flóknara eftir skilnað, ekki síst fyrir börnin. Sigrún skrifaði ásamt Sólveigu Sigurðardóttur bók- ina Eftir skilnað. Um foreldrasam- starf og kynslóðasamskipti. Þar er að finna margt gagnlegt um skilnað, leiðbeiningar til foreldra og ráðgjöf. Skoðað hvort lagt verði fram Árið 2010 skilaði nefnd af sér drögum að frumvarpi til laga um breytingar á barnalögum. Þær fólu í sér töluverðar breytingar á með- lagskerfinu. Hlutverk nefndarinnar, sem skipuð var árið 2008, var að fara yfir reglur barnalaga um framfærslu barna með það fyrir augum að kanna hvort núverandi fyrirkomulag þjóni hagsmunum barna og foreldra með sanngjörnum hætti. Tillögur nefndarinnar til úrbóta voru m.a. á þá leið að rýmka eigi samningsfrelsi foreldra um skipt- ingu kostnaðar vegna framfærslu barns og um greiðslu meðlags. For- sendurnar voru þær að ábyrgð á framfærslu barns hvíli á herðum for- eldra. Þá er það barni fyrir bestu ef foreldrum, sem ekki búa saman, tekst að ná samstöðu um öll atriði sem varða hagsmuni barns. Þá er lagt til að afnumin verði skylda til að semja um meðlag við skilnað og sambúðarslit foreldra og ennfremur að ákvæði um lágmarksfjárhæð meðlags verði afnumið. Ekki hefur verið ákveðið hvort frumvarpið um framfærslu barna verður lagt fram, hvort sem það yrði í breyttri eða óbreyttri mynd. Ráðu- neytið hefur það nú til skoðunar. Þær breytingar sem gerðar voru á barnalögunum og tóku gildi í byrjun árs 2013, voru byggðar á tillögum annarrar nefndar sem einnig skilaði af sér drögum að frumvarpi árið 2008. Framfærslu barna verði skipt jafnar eftir skilnað  Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um framfærslu barna fullbúin 2010 Morgunblaðið/Styrmir Kári Börn að leik Skilnaðarforvarnir vantar, segir Sigrún Júlíusdóttir, prófessor og reyndur fjölskylduráðgjafi. Verslunarrekstur á Eyrarbakka er hafinn á nýjan leik eftir um það bil eins mánaðar stopp. Hjónin Eggert Valur Guðmundsson og Eygló Har Sigríðardóttir eru að fara af stað með verslunina Bakkann og opna á morg- un, laugardag. Þau leigja aðstöðu og húsnæði af Olís og sjá jafnframt um eldsneytisafgreiðslu. Það lagðist illa í Eyrbekkinga að versluninni þar skyldi hætt. Ýmsir sýndu því hins vegar áhuga að koma að málum og Olís svaraði kalli. „Þetta leggst prýðilega í okkur, við lítum á þetta sem einskonar tilraunaverkefni og sjáum margvíslega möguleika í stöðunni. Við munum bjóða upp á helstu nauðsynjavörur, og stefnum á að bjóða upp á nýjungar í framtíð- inni,“ segir Eggert. Þau Eygló búa í Tjarnarbyggð, sem er miðja vegu milli Selfoss og Eyrarbakka og eru þau því vel í sveit sett. Þau starfa sem landpóstar og sjá um dreifingu pósts í Laugardal og Grímsnesi og nú bætist búðin á Bakkanum við. Þá er Eggert Valur oddviti Samfylkingar í bæj- arstjórn Árborgar. sbs@mbl.is Eyrarbakki Hjónin Eggert Valur Guðmundsson og Eygló Har Sigríðar- dóttir fyrir utan verslunina Bakkann. Þau opna á morgun, laugardag. Bæjarfulltrúi opnar búð á Eyrarbakka „Ég tel löngu tímabært að end- urskoða meðlagskerfið, taka af- stöðu til þess með hvaða hætti foreldrar eigi að skipta með sér kostnaði og hvaða áhrif um- gengni eigi að hafa á greiðslu meðlags,“ segir Hrefna Friðriks- dóttir, dósent í fjölskyldu- og erfðarétti við Háskóla Íslands. Hrefna var ein af þremur sem skipuðu nefnd um endur- skoðun á barnalögum er lúta að framfærslu barna. Hún furðar sig á því að drögin að frumvarpinu hafi enn ekki verið lögð fram til breytinga á barnalög- um. MEÐLAGSKERFIÐ Hrefna Friðriksdóttir Endurskoða kerfið 21.890.- 8.300.- 4.150.- 4.390.- 4.500.-28.900.- 338.000.- 595.000.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.