Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Ólíklegt er að tekist verði á um menn-
ingarmál í kosningabaráttunni til
borgarstjórnar í vor. Um megin-
stefnu Reykjavíkurborgar á þessu
sviði ríkir þverpólitísk samstaða.
Undantekning er að alvarleg ágrein-
ingsefni komi upp við afgreiðslu mála
á þessu sviði. Menningarstarfsemin
sem borgaryfirvöld standa fyrir eða
styrkja er afar fjölbreytt og sýnir að-
sókn borgarbúa að söfnum og ein-
stökum viðburðum að hún nýtur mik-
illa vinsælda. Útgjöld borgarinnar
vegna hennar eru vel á fjórða milljarð
króna. Stærsti hlutinn er vegna
styrkja og samstarfssamninga. Af
einstökum stofnunum er Borgar-
bókasafnið með fjölmörgum útibúum
sínum dýrast, kostar rekstur þess 622
milljónir á þessu ári.
Barnamenningarhátíð
Í stjórnkerfi Reykjavíkur eru
menningar- og ferðamál höfð undir
einum hatti. Þykir hagræði að því
enda er það ekki síst menningar- og
listalífið sem laðar ferðamenn til
borgarinnar. Ferðamálum er stýrt af
Höfuðborgarstofu og undir hana
heyrir upplýsingamiðstöð ferðamála.
Um 300 þúsund manns nýttu sér
þjónustu upplýsingamiðstöðvarinnar
í fyrra.
Á vegum Höfuðborgarstofu eru á
þessu ári fjórir stórir viðburðir; Vetr-
arhátíð með Safnanótt sem haldin
var í febrúar, Barnamenningarhátíð
sem verður í lok þessa mánaðar,
Menningarnótt í ágúst, Imagine
Reykjavík (friðarsúlan í Viðey) í
október og Aðventuhátíð í desember.
Megináhersla er lögð á að kynna
Reykjavík sem vetrar-, menningar-,
heilsu- og ráðstefnuborg.
Kostnaður af rekstri Höfuðborgar-
stofu í ár nemur 137 milljónum króna
og eru starfsmenn sextán, en ekki
allir í fullu starfi.
Mest útgjöld vegna styrkja
Undir menningar- og ferðamála-
sviði hafa verið fimm meginstofnanir
auk Höfuðborgarstofu. Þetta eru
Borgarbókasafnið, Listasafn Reykja-
víkur, Minjasafn Reykjavíkur, Ljós-
myndasafn Reykjavíkur og Menn-
ingarmiðstöðin Gerðuberg. Tvær
þeirra, Listasafnið og Minjasafnið,
verða ásamt Víkinni sjóminjasafni og
Viðey sameinaðar undir einni yfir-
stjórn frá og með 1. júní, en að öðru
leyti er starfsemin aðskilin og sjálf-
stæð.
Stærsti hluti útgjalda Reykjavík-
urborgar til menningarmála er hins
vegar ekki til stofnana borgarinnar
heldur eru það styrkir til ýmissa aðila
og samstarfssamningar, svo sem til
Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleik-
húsinu og Listahátíðar, og framlög til
Sinfóníuhljómsveitarinnar og
tónlistahússins Hörpu.
Áhersla á listuppeldi barna
Í starfsáætlun Menningar- og
ferðamálasviðs fyrir þetta ár segir að
helstu breytingar á framlagi mála-
flokksins litist af nýjum samningum
til fleiri ára. Samningur um rekstur
Borgarleikhússins 2013-2015 er tví-
þættur; annars vegar rekstrar-
styrkur til starfsemi en hins vegar
styrkur vegna innri leigu af húseign
og búnaði. Þar er nýmæli að Leik-
félag Reykjavíkur leggur áherslu á
að sinna listuppeldi barna og ung-
menna og vinna árlega fræðslu-
áætlun þar að lútandi.
Nær fjórir
milljarðar
í menningu
Þverpólitísk samstaða er um stefn-
una í menningarmálum Reykjavíkur
MENNINGARMÁL
LISTIR OG MENNING Í REYKJAVÍK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014
Fjögur söfn Reykjavíkurborgar
sameinast undir einni yfirstjórn 1.
júní næstkomandi. Þetta eru Minja-
safn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn
Reykjavíkur, Viðey og Víkin Sjó-
minjasafn. Hefur Guðbrandur
Benediktsson nýlega verið ráðinn
forstöðumaður hinnar nýju stofn-
unar sem enn hefur ekki hlotið nafn.
Var leitað eftir hugmyndum borg-
arbúa um viðeigandi nafn á hina
nýju stofnun og verður það kynnt
innan skamms.
Víðtækt hlutverk
Nýja stofnunin mun hafa yfirum-
sjón með menningarminjum í
Reykjavík og bera ábyrgð á söfnun,
skráningu, varðveislu, rannsóknum
og miðlun á afar fjölbreyttum safn-
kosti. Um er að ræða muni, hús, ljós-
myndir og minjar tengdar sjó-
mennsku o.fl. sem eru einkennandi
fyrir menningararf borgarinnar og
varpa ljósi á sögu hennar og menn-
ingu. Stofnunin ber jafnframt
ábyrgð á skráningu fornleifa, húsa
og mannvirkja, rannsóknum og eft-
irliti og er ráðgjafi borgaryfirvalda
um verndun menningarminja í
Reykjavík og um önnur menningar-
söguleg verkefni.
Ákvörðunin um sameiningu safn-
anna fjögurra var tekin í fyrrahaust.
Var hún rökstudd með því að sókn-
arfæri fælust í sameiningunni og að
samlegðaráhrif gætu orðið mikil þótt
söfnin væru ólík. Engum verður sagt
upp vegna sameiningarinnar.
Fjögur söfn
í eina sæng
Nýja stofnunin hefur umsjón með
öllum menningarminjum í Reykjavík
Morgunblaðið/Arnaldur
Viðey Fjölbreytt menningar-
starfsemi fer fram í eyjunni.
Tweeter ein nýjung frá
Ármúla 24 • S: 585 2800