Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
Það verðurkannski eitt-hvað tekið
létt á því með barna-
börnunum. Ég fæ að
sækja þau í leikskól-
ann í tilefni dagsins
og ætla að gera eitt-
hvað skemmtilegt
með þeim. Ætli við
fjölskyldan reynum
ekki svo að borða
saman góðan mat
um helgina,“ segir
Baldur Pálsson bif-
reiðasmiður sem er
fimmtugur í dag.
Baldur býr í Grinda-
vík og er giftur
Katrínu G. Hilm-
arsdóttur, þau eiga
þrjú börn og þrjú
barnabörn auk þess
sem það fjórða er á
leiðinni.
Baldur segist ekki
ætla að slá upp
veislu núna en stefn-
ir á hátíðahöld í
haust. „Þetta þarf svolítinn aðdraganda þar sem stórfjölskyldan er
út um allan heim. Ég reyni að stíla inn á að hafa alla á landinu og því
verður veislan ekki fyrr en í haust. Þetta verður bara gleði út allt
árið,“ segir Baldur léttur í lund en stórfjölskyldan kemur alltaf sam-
an á afmælistímum hjá hverjum og einum. „Það er sama hversu
stórt afmælið er; það er alltaf komið saman og borðaður góður mat-
ur. Við notum þetta tækifæri til að hittast og mér finnst það góð
regla.“
Baldur er fæddur og uppalinn í Reykjavík, bjó um tíma í Vest-
mannaeyjum, þaðan sem eiginkona hans er, flutti síðan til Hafnar-
fjarðar og þaðan til Grindavíkur. „Mér finnst gott að búa í Grinda-
vík, þetta litla samfélag á betur við mig en það stóra.“
Baldri finnst ljómandi gott að eldast enda getur hann með aukn-
um aldri sinnt áhugamálinu sínu meira sem eru mótorhjól. „Ég fékk
mér mótorhjól þegar ég varð afi fyrir fimm árum og reyni að hjóla
þegar ég get,“ segir Baldur, sem fer jafnvel á rúntinn í dag.
ingveldur@mbl.is
Baldur Pálsson er fimmtugur í dag
Afmæli Baldur Pálsson í Grindavík er fimm-
tugur í dag. Áhugamál hans eru mótorhjól.
Fékk sér mótorhjól
þegar hann varð afi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Bolungarvík Jakob Helgi fæddist
30. maí kl. 18.44. Hann vó 3.090 g og
var 47 cm langur. Foreldrar hans eru
Ásta Ákadóttir og Þorsteinn Elías
Sigurðsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Kristinn Jökull fæddist
18. maí kl. 4.35. Hann vó 3.090 g og
var 49 cm langur. Foreldrar hans eru
Margrét Ósk Óskarsdóttir og Kristinn
Magnússon Michelsen.
F
ríða fæddist í Reykjavík
11.4. 1939 og ólst þar
upp, lengst af á
Kambsveginum í
Kleppsholtinu.
„Kleppsholtið var svolítið sér á báti í
borgarmyndinni, nokkurs konar
þorp út af fyrir sig, óralangt frá
miðbænum. Það var töluvert fyr-
irtæki að „fara í bæinn“ með stræt-
isvagni sem hét Kleppur og var nú
númer 3. Síðan kom Kleppur -
Hraðferð – ef manni lá á, en hann
var númer 13.
En þetta var yndislegt umhverfi,
stutt í óbyggða víðáttuna, með kart-
öflugörðum, njólabreiðum og
ósnortnum Vatnagörðunum þar sem
við krakkarnir renndum okkur á
sleðum og skautuðum á Fúlutjörn.“
Fríða lauk stúdentsprófi frá MR
1959, var í námi í blaðamennsku í
University of Arkansas í Bandaríkj-
unum 1959-60 og í námi í ensku við
HÍ 1960-62.
Fríða var fréttamaður hjá Ríkis-
útvarpinu sumarið 1961 og blaða-
maður á Tímanum frá ársbyrjun
1962 til 1982. Hún var auk þess rit-
stjóri Lögbergs Heimskringlu í
Winnipeg í Kanada 1976-77, ritstjóri
Sáms, blaðs Hundaræktarfélags Ís-
lands, í nokkur ár og ritstjóri 19.
júní 1984-85. Þá var hún blaðamað-
ur hjá Fróða í átta ár.
Fríða var sjálfsætt starfandi
blaðamaður frá ársbyrjun 1982, hef-
ur skrifað í ýmis tímarit frá þeim
tíma, lengst í Hús og híbýli, í rúm 20
ár samfleytt, skrifaði í Lyfjatíðindi
og Frjálsa verslun um langt árabil
og var í fimm ár ritstjóri Umhyggju,
tímarits Félags til stuðnings lang-
veikum börnum.
Fríða sat í stjórn Blaðamanna-
félags Íslands 1973-83, hefur setið í
samninganefnd félagsins frá 1974 og
sat í stjórn Lífeyrissjóðs blaða-
manna 1979-1999. Hún var fram-
kvæmdastjóri Blaðamannafélags Ís-
lands á árunum 1979-99.
Borgarbarnið flutti úr bænum
En hvað er annars að frétta af
Fríðu eftir að blaðamenn eru hættir
að fá hjá henni lykla að sumar-
bústöðunum í Brekkuskógi?
„Ekkert annað en það að við hjón-
in ákváðum að kaupa okkur hús í
Fríða Björnsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri BÍ – 75 ára
Fjölskyldan Fríða og Bergsveinn halda sín fyrstu jól í Þorlákshöfn, ásamt börnunum, Val og Völu Ósk.
Blaðamaður af lífi og
sál og er enn á fullu
Fríða og Mandla Tíkin er Rauða-
krosshundur, þjálfuð til að gleðja
eldri borgara á vistheimilum.