Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 9
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014
JEPPADEKK FRÁ DICK CEPEK
Trail Country er fínmynstrað alhliða
jeppadekk sem er rásfast og þægilegt í
akstri innanbæjar, en býr einnig yfir
frábærum aksturseiginleikum á vegum úti.
Trail Country er frábært alhliða
heilsársdekk fyrir flestar gerðir
jeppa og jepplinga.
Fun Country var sérstaklega hannað
með það í huga að ná fram einstökum
askturseiginleikum við erfiðar aðstæður,
auk þess að vera bæði hljóðlátt og
endingargott við akstur innanbæjar.
Fun Country er ætlað nútíma jeppum
sem vilja komast lengra!
Dekkið er fáanlegt í stærðum frá 32“ til 37“.
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | arctictrucks.is
Kíktu á úrvalið
á vefversluninni
á michelsen.is
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
FOSSIL
23.000 kr.
ADIDAS
13.700 kr.
CASIO
13.000 kr.
JACQES LEMANS
30.400 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
ASA HRINGUR
13.400 kr.
ASA LOKKAR
7.800 kr.
ASA HÁLSMEN
19.300 kr.
Glaðlegarskyrtur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Verð kr. 12.900
Str. S-XXL
Laugavegi 63 • S: 551 4422
FRANKLYMAN
Glæsikjólar
Skoðið laxdal.is/kjólar
www.laxdal.is
20-30%
afsláttur
föstudag til
laugardags
Bæjarráð Akureyrarbæjar telur að
þrátt fyrir úrskurð innanríkisráðu-
neytisins um að ólögmætt hafi verið
að víkja Snorra Óskarssyni úr starfi
kennara við Brekkuskóla á Akureyri
vegna bloggskrifa hans um samkyn-
hneigð hafi það verið rétt ákvörðun.
Snorra var vikið úr starfi sínu árið
2012, en greint var frá úrskurði ráðu-
neytisins í fyrradag.
Snorri ráðfærir sig nú við lögfræð-
ing sinn um hvort hann eigi að höfða
skaðabótamál á hendur bænum.
„Þeim er ekki stætt á að sniðganga ís-
lenskt dómskerfi,“ segir Snorri um
afstöðu Akureyrarbæjar til úrskurð-
arins. Hann segist hafa hug á að snúa
aftur til kennslu, en óttast að það gæti
reynst erfitt vegna brottrekstursins.
„Ég sótti nýlega um kennarastöðu, en
fékk hana ekki,“ segir Snorri og tekur
fram að það hafi ekki verið á Akur-
eyri. „Ég fékk litlar skýringar á því,
en ég er næsta viss um að eitthvað
annað en fagleg sjónarmið hefur þar
ráðið för.“ annalilja@mbl.is
Ekki stætt á að snið-
ganga dómskerfið
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samtök kaupmanna og fasteignaeig-
enda við Laugaveg áttu í vikunni
fund með embættismönnum borg-
arinnar þar sem afstaða kaupmanna
til þróunarinnar á Laugaveginum
var kynnt og áhyggjum lýst af því
raski sem verður af fyrirhuguðum
framkvæmdum á svæðinu.
Benda samtökin m.a. á að umferð
um Laugaveginn hafi snarminnkað á
seinni árum og afnema þurfi þreng-
ingar á götunni ofanverðri og á
Snorrabrautinni. Borgin þurfi að
grípa til fleiri aðgerða til að snúa
þróuninni við, t.d. banna hjólreiðar á
gangstéttum, bæta lýsingu og um-
hirðu og fjölga bílastæðum.
„Hér er allt steindautt“
Gunnar Guðjónsson, eigandi Gler-
augnamiðstöðvarinnar og formaður
samtakanna, segir lítið hafa komið
út úr fundinum annað en að embætt-
ismennirnir hafi hlustað á sjónarmið
kaupmanna en engin umræða farið
fram. Gunnar segir kaupmenn hafa
komið á framfæri áhyggjum sínum
af þróuninni við Laugaveg og áhrif-
um gatnaframkvæmda og lokunar á
Laugavegi. Einnig vilja samtökin að
lagt verði bann við hjólreiðum á
gangstéttum Laugavegarins, en
hjólandi umferð var leyfð þar á ný
árið 2012 eftir að hafa verið bönnuð í
nokkur ár að frumkvæði kaup-
manna.
„Hjólreiðar á gangstéttum eru
stórhættulegar og hafa valdið slys-
um þegar viðskiptavinir eru að koma
út úr verslunum eða öðrum fyrir-
tækjum við Laugaveg. Einnig lögð-
um við áherslu á að Laugavegurinn
yrði opinn allan ársins hring og ekki
yrði farið í þessar sumarlokanir.
Þær hafa valdið okkur miklum skaða
og ekki náð neinum tilgangi eða
hæðum,“ segir Gunnar og bendir á
að mikið mannlíf sé á Laugaveginum
þegar bæði bílar og fólk geti farið
þar um.
„Hér er allt steindautt þegar göt-
unni er lokað. Mannlífið í miðborg-
inni er ekki það sterkt að það geti
þolað lokanir á götum í tíma og
ótíma,“ segir Gunnar.
Íslenskri verslun útrýmt
Rüdiger Þór Seidenfaden, eigandi
Gleraugnasölunnar, er heldur ekki
sáttur við þróunina á Laugavegi.
Verslun hans hefur verið starfandi í
áratugi við Laugaveg 65 og nú íhug-
ar hann alvarlega að flytja sig um
set. Hann segir að borgaryfirvöld
séu að fara í þveröfuga átt í sinni
skipulagsvinnu og hreinlega sé verið
að útrýma íslenskri verslun við
Laugaveginn. Búið sé að fækka bíla-
stæðum og þrengja aðgengi með
stöðugum framkvæmdum.
„Hér er verið að bola burtu rót-
grónum fyrirtækjum. Það verður
ekkert eftir nema hótel og ferða-
mannaverslanir. Erlendir ferða-
menn vilja ekki koma hingað og
versla með öðrum erlendum ferða-
mönnum heldur þar sem Íslending-
arnir eru,“ segir Rüdiger og er einn-
ig ósáttur við hjólreiðar á gang-
stéttum og hundahald á Laugavegi.
Það líði varla sá dagur að hann þurfi
ekki að byrja á því að hreinsa hunda-
skít fyrir framan sína verslun.
„Ef borgin hlustar ekkert á raddir
okkar kaupmanna þá munum við
einfaldlega flytja annað. Borgarfull-
trúarnir búa bara í 101 og hugsa
ekki út fyrir rammann. Við þurfum
að byggja upp alvöru verslunargötu
í þessari nyrstu höfuðborg heims,“
segir hann.
„Fyrirtækjum
er bolað í burtu“
Kaupmenn funduðu með borginni
Morgunblaðið/Rósa Braga
Laugavegur Kaupmenn eru líka
ósáttir við lokanir á sumrin.
mbl.is
alltaf - allstaðar