Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 23
Bandaríska alríkislögreglan bætti í gær William Bradford Bishop Jr., fyrrverandi starfsmanni bandaríska utanríkisráðuneytisins, á listann yfir þá tíu glæpamenn sem hún vill helst koma höndum yfir. Lögreglu- yfirvöld hafa Bishop grunaðan um að hafa myrt konu sína, móður og þrjá syni; 5, 10 og 14 ára, á heimili þeirra í Bethesda í Maryland, 1. mars 1976. Bishop hefur fengið viðurnefnið „fjölskyldutortímandinn“ en síðast sást til hans daginn eftir að morðin voru framin, í Norður-Karólínu, þar sem talið er að hann hafi lagt lík- amsleifar fórnarlamba sinna í grunna gröf og kveikt í þeim. Að sögn alríkislögreglunnar er Bishop afar greindur en hann út- skrifaðist frá Yale-háskóla og talar nokkur tungumál. Lögregluyfirvöld segja ekkert benda til þess að hann sé látinn og binda vonir við að al- menningur aðstoði við leitina. Þau segja að Bishop hljóti að vera ná- granni einhvers. „Þegar Bishop stakk af árið 1976 voru engir samskiptamiðlar, engin 24 stunda fréttaumfjöllun,“ er haft eftir FBI-fulltrúanum Steve Vogt á heimasíðu alríkislögreglunnar. Hún hefur heitið 100.000 Bandaríkjadöl- um í fundarlaun fyrir Bishop. Myrti konu sína, móður og syni Ljósmynd/FBI Eftirlýstur Listamaður var fenginn til að gera brjóstmynd af Bishop eins og hann gæti litið út í dag. FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 Íbúar Blenheim á Nýja-Sjálandi tóku vel á móti Vilhjálmi Breta- prins og fjölskyldu hans þegar þau heimsóttu borgina í gær. Hertoga- hjónin eru á þriggja vikna opinberu ferðalagi um Nýja-Sjáland og Ástr- alíu en yngsti meðlimur fjölskyld- unnar, krónprinsinn Georg Alex- ander Loðvík, er með í för og hefur heldur betur stolið sviðsljósinu af móður sinni, Katrínu Middleton. Hann mun þó ekki fylgja foreldrum sínum hvert fótmál, heldur verður hann í umsjá spænsku fóstrunnar Maríu Teresu Turrion í höfuðborg- inni Wellington, á meðan Vil- hjálmur og Katrín heimsækja bæi og borgir Nýja-Sjálands. Hertogafjölskyldan heimsækir Nýja-Sjáland AFP Krónprinsinn vinsæll Danmörk. AFP. | Svokölluð neyslu- herbergi hafa verið tekin í notkun í öllum helstu borgum Danmörku en þangað geta sprautufíklar leitað til að neyta fíkniefna, fengið hreinar nálar og jafnvel aðstoð við að finna til þess fallna æð. Fyrsta herbergið var opnað í Kaupmannahöfn í októ- ber 2012 og vilja stuðningsmenn framtaksins meina að það hafi dreg- ið úr dauðsföllum vegna ofneyslu. Rasmus Koberg Christiansen, umsjónarmaður tveggja af þremur ríkisreknum neysluherbergjum í höfuðborginni, segir þau viðurkenn- ingu á ríkjandi ástandi. „Ekkert land hefur leyst eiturlyfjavandann. Það eru lönd sem útdeila dauða- dómum vegna fíkniefnaneyslu en þau eiga samt við vandamál að stríða,“ segir hann. Þeir sem eru fylgjandi herbergj- unum segja þau m.a. draga úr því að sprautur og nálar séu skildar eft- ir á víðavangi og hamli útbreiðslu smitsjúkdóma. Þá benda þeir á að dregið hafi úr dauðsföllum vegna of- neyslu frá því að herbergin voru opnuð en þau voru 210 árið 2012, samanborið við 285 árið 2011. 500-800 neytendur á dag Aðstöðu af þessu tagi er að finna víðar í Evrópu, t.d. í Þýskalandi, Hollandi og á Spáni. Danir hafa hins vegar vakið athygli fyrir að vera fyrsta þjóðin í meira en áratug til að grípa til þessa ráðs í baráttunni gegn fíkniefnum. Framtakið virðist njóta almenns stuðnings og hefur mætt lítilli andstöðu. „Þetta er betra en að vera á göt- unni,“ segir Kais Neni, 46 ára þriggja barna faðir, sem er háður kókaíni og heróíni. Hann er einn þeirra 2.400 einstaklinga sem hafa notað eitt herbergjanna í höf- uðborginni frá því það var opnað en þangað leita daglega 500-800 manns. Gagnrýnendur úrræðisins óttast að það muni gera fíklunum of auð- velt fyrir en þessu er Koberg Christiansen ósammála. „Þetta er afar erfitt umhverfi. Það er harð- neskjulegt og það öðlast enginn hér auðveldara líf.“ Neysluherbergi í öll- um helstu borgum  Dauðsföllum vegna ofneyslu fækkar Morgunblaðið/Ómar Fíkniefni Framtakið nýtur almenns stuðnings í Danmörku. Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! kl. 13:00Upplestur 20% afsláttur Við aðstoðum þig við að velja spilin. Afmælisgjafir - fermingargjafir - tækifærisgjafir. Velkomin í nýja verslun Sendum um allt land spilavinir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.