Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014
Fyrsta klippingin Þegar maður er orðinn tveggja ára bætast við nýjar áskoranir eins og að fara til rakara í fyrsta sinn. Elvar Bjarki fylgdist því vel með Jökli og skærunum enda mikið í húfi.
Eggert
Félags- og mannvís-
indadeild Háskóla Ís-
lands sýndi lofsvert
frumkvæði með því að
fá Stefán Ólafsson pró-
fessor til framsögu á
fundi, sem haldinn var
í gær, 10. apríl 2014,
um það, hvort háskóla-
kennarar séu í póli-
tískri krossferð.
Stefán hefur verið
forstöðumaður tveggja
stofnana háskólans, Félagsvísinda-
stofnunar og Borgarfræðaseturs.
Árið 1996 fengum við Hreinn Lofts-
son Félagsvísindastofnun til að gera
í kyrrþey skoðanakönnun um, hvaða
fylgi Davíð Oddsson gæti haft í kom-
andi forsetakjöri. Það kom okkur
mjög á óvart, þegar Matthías Jo-
hannessen ritstjóri birti löngu síðar
á netinu kafla úr dagbókum sínum,
þar sem segir svo við 8. maí 1996:
„Stefán Ólafsson félagsfræðingur
sagði okkur Styrmi í morgun í trún-
aði að nokkrir vinir Davíðs Odds-
sonar hefðu beðið Félags-
vísindastofnun um að gera könnun á
fylgi hans ef hann færi í forseta-
kjör.“ Rakti Stefán síðan niður-
stöður könnunarinnar nákvæmlega
fyrir ritstjórum Morgunblaðsins.
Samkvæmt þeim vildu þá margir
(eins og við Hreinn báðir), að Davíð
yrði frekar áfram forsætisráðherra
en að hann gæfi kost á sér í forseta-
embættið.
Heimsókn Stefáns á ritstjórnar-
skrifstofur Morg-
unblaðsins vorið 1996
verður að vísu frekar
kennd við hvíslingar en
krossferðir. En þegar
leið að kosningum 2003
fór Stefán í sannkall-
aða krossferð. Þá var
hann ekki lengur for-
stöðumaður Félags-
vísindastofnunar, held-
ur svokallaðs
Borgarfræðaseturs,
sem meiri hluti R-
listans í Reykjavík
kostaði af almannafé ásamt Háskól-
anum. Skömmu fyrir kosningarnar
gaf Borgarfræðasetur út skýrslu
um, að fátækt væri talsvert meiri á
Íslandi en í grannríkjunum. Stefán
skrifaði einnig um það blaðagrein.
Leiðtogar Samfylkingarinnar fögn-
uðu skýrslu Borgarfræðaseturs og
notuðu óspart í kosningabaráttunni,
þótt ýmsir leyfðu sér að efast op-
inberlega um niðurstöðurnar. Í febr-
úarbyrjun 2007 birtist síðan yf-
irgripsmikil skýrsla hagstofu
Evrópusambandsins um fátækt og
tekjuskiptingu í Evrópulöndum, og
var fátækt á Íslandi árin 2003-2004
samkvæmt henni einhver hin
minnsta í álfunni. Fátæktartal Stef-
áns reyndist úr lausu lofti gripið.
Þegar leið að kosningum 2007 tók
Stefán að skrifa í blöð og tala í út-
varp um, að tekjuskipting á Íslandi
væri að verða miklu ójafnari en ann-
ars staðar á Norðurlöndum. Notaði
hann tölur frá 1995 til 2004 máli sínu
til stuðnings og hafði stór orð um
breytingar á íslenska velferðarrík-
inu. Leiðtogar Samfylkingarinnar
fögnuðu skrifum Stefáns og vitnuðu
iðulega í þau. Þegar áðurnefnd
skýrsla hagstofu Evrópusambands-
ins birtist í febrúarbyrjun 2007 kom í
ljós að Stefán hafði notað rangar töl-
ur í samanburði sínum. Í tölum um
tekjur fyrir Ísland hafði hann reikn-
að með söluhagnaði af hlutabréfum,
en honum var sleppt í tölum um
tekjur fyrir aðrar þjóðir. Þegar sam-
bærilegar tölur voru skoðaðar kom í
ljós að tekjuskipting á Íslandi árið
2004 var síst ójafnari en annars stað-
ar á Norðurlöndum. (Hún varð hins
vegar talsvert ójafnari 2004-2008,
eftir að klíkukapítalismi Baugs leysti
af hólmi markaðskapítalismann, en
þess má geta, að Stefán gagnrýndi
Baugsmenn aldrei í valdatíð þeirra.)
Þegar Bretar ætluðu eftir banka-
hrun að neyða íslenskan almenning
til að greiða skuldir, sem hann hafði
ekki stofnað til, fór Stefán í þriðju
krossferð sína og nú fyrir því að láta
undan kröfum Breta. Á bloggi sínu
27. júní 2012 skrifaði hann til dæmis:
„Það verður ljósara með hverjum
degi sem líður að þjóðin var gróflega
blekkt með málflutningi sumra and-
stæðinga samningaleiðarinnar í Ice-
save-málinu. Forsetinn gerði einnig
alvarleg mistök þegar hann vísaði
Icesave III (Buchheit-samningnum)
í þjóðaratkvæðagreiðslu, á röngum
forsendum og gegn mjög rúmum
meirihluta á Alþingi.“ Hálfu ári síðar
kvað EFTA-dómstóllinn upp úr-
skurð í málinu og staðfesti þá skoðun
mína og margra annarra, þar á með-
al þorra kjósenda, að íslenskur al-
menningur ætti ekki að greiða
skuldir, sem hann hefði ekki stofnað
til.
Ég kann síðan enga skýringu á
dagbókarfærslu Össurar Skarphéð-
inssonar, þáverandi utanríkis-
ráðherra, 8. október 2012, í nýút-
kominni bók: „Í hringingum til mín
er línan klár. Stefán er innsti koppur
í búri Jóhönnu Sigurðardóttur.
Hann er á launum við að skrifa
spannarþykkar skýrslur fyrir Guð-
bjart Hannesson sem Jóhönnuvæng-
urinn ætlar að etja fram gegn Árna
Páli.“ Hitt veit ég af eigin reynslu, að
fáir háskólakennarar eru betur til
þess fallnir en Stefán Ólafsson að
fræða menn um pólitískar kross-
ferðir og jafnvel hvíslingar líka.
Eru háskólakennarar í pólitískri krossferð?
Eftir Hannes Hólm-
stein Gissurarson
» Fáir háskólakenn-
arar eru betur til
þess fallnir en Stefán
Ólafsson að fræða menn
um pólitískar kross-
ferðir og jafnvel
hvíslingar líka.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Höfundur er prófessor í
stjórnmálafræði.