Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 20% afsláttur Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Borgarráð felldi í gær tillögu Sjálf- stæðisflokksins um að íþróttafélagið Fylkir fengi 7,8 milljóna króna styrk til að ljúka við kaup og uppsetningu sæta í áhorfendastúku félagsins. Þess í stað var samþykkt að veita fé- laginu 4 milljóna króna styrk til að klára verkefnið en það mun ekki duga til að ljúka uppsetningunni, að sögn Björns Gíslasonar, formanns Fylkis. „Reykjavíkurborg styrkir okkur við byggingu stúkunnar en sá styrkur er innan við helmingurinn af heildarkostnaði framkvæmdarinnar. Okkur finnst það sérkennilegt í ljósi þess að hingað til hefur verið í gildi svokölluð 80/20 regla þar sem borgin stendur undir 80 prósentum kostn- aðarins og íþróttafélögin fjármagna hin 20 prósentin,“ segir Björn. Fylk- ir hefur neyðst til þess að fara út í byggingu áhorfendastúku en sam- kvæmt alþjóðlegum reglum sem KSÍ er bundið af verða öll félög í efstu deild að vera með áhorfendastúku sem uppfyllir ákveðin skilyrði eins og að á henni sé þak og sæti fyrir 1.200 manns. „Fylkir hefur verið á undanþágu frá KSÍ en nú er komið að því að við verðum að byggja stúku við keppn- isvöllinn okkar og það kostar okkur um 200 milljónir. Þrátt fyrir styrk frá borginni og KSÍ þarf félagið að leggja út bróðurpartinn sjálft,“ segir Björn, en nú þegar hefur Fylkir lagt út 42 milljónir. Gert að byggja stúku en fá einungis helming í styrk  Íþróttafélagið Fylkir þarf að greiða bróðurpartinn sjálft Morgunblaðið/Árni Sæberg Styrkur Fylkir fær ekki það sem þarf til að ljúka stúkubyggingu. Netöryggissveit til lögreglunnar Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að netöryggissveit, sem hefur verið starfrækt af Póst- og fjarskipta- stofnun, PFS, frá árinu 2011, verði færð til ríkislögreglustjóra. Verður hún hluti af almannavarnadeild embættisins frá og með 1. sept- ember fái frumvarpið samþykki. Fram kemur í athugasemdum við frumvarpið að hvati að breyting- unum sé sá öryggisbrestur sem átti sér stað hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone á síðasta ári. Í minnisblaði Páls Ásgrímssonar lögmanns, sem hefur sérhæft sig í fjarskipta- og samkeppnisrétti, til innanríkisráðuneytisins kemur fram að tvíþætt hlutverk netöryggissveit- arinnar geti valdið hagsmuna- árekstrum. Annars vegar er hlut- verkið að hafa almennt eftirlit með fjarskiptafyrirtækjum og hins veg- ar að sinna þjónustuhlutverki við sömu aðila og aðra sem gera þjón- ustusamninga við netöryggissveit- ina. Jafnframt kemur fram að þörf sé á netöryggissveit sem sinni net- og upplýsingaöryggi stjórnvalda. Tekur ráðuneytið undir að hlut- verk netöryggissveitarinnar snúi einkum að þjónustu við fjarskipta- fyrirtæki á sviði net- og upplýsinga- öryggis sem fari ekki endilega vel saman við eftirlitshlutverk PFS við að framfylgja fjarskiptaregluverk- inu. Þá segir að netöryggisdeild hjá ríkislögreglustjóra sé í anda fyr- irkomulags sem þekkist erlendis. Hún gefi betri möguleika á að sam- hæfa skipulagningu viðbúnaðar og viðbragða vegna öryggisatvika sem snerta net- og upplýsingakerfi, at- vika sem kunna að hafa áhrif langt utan þeirra kerfa sem sveitinni var upphaflega ætlað að fylgjast með.  Vodafone-málið hvati að breytingum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkislögreglustjóri Til stendur að færa netöryggissveit til ríkislög- reglustjóra í september. Viðar Guðjónsson Hjörtur J. Guðmundsson Hóflega áætlað verður ríkið af um 8 millj- arða króna skatttekjum vegna undanskota gististaða frá virðisaukaskatti. Eru það um 17% af heildarveltu gististaða í landinu. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu sem Rannsóknarmiðstöð atvinnulífsins á Bifröst vinnur fyrir Samtök ferðaþjónustunnar og kynnt var á aðalfundi samtakanna í gær. Vinnu við hana lýkur í lok mánaðar. Gera má ráð fyrir að hluti þeirra sem stunda svarta starfsemi af þessu tagi sé með tilskilin leyfi og borgi til að mynda fast- eignaskatt af atvinnustarfsemi en gefi hins vegar mögulega ekki upp alla veltu til skattútreikninga. Ennfremur segir í skýrslunni að nokkrir kerfislægir þættir skapi hvata til skattsvika. Til að mynda lágt frítekju- mark námsmanna sem og meiri eftirspurn eftir en framboð á námsmönnum og bótaþegum yfir sum- artímann. Hækkun á frí- tekjumarki námsmanna eða breyting á atvinnu- leysistryggingakerfinu gæti hins vegar bætt úr málum. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, var kjörinn fram- kvæmdastjóri SAF á fundinum með um 55% atkvæða en Þórir Garðarsson, stjórnarfor- maður Iceland Excursions, fékk 45% at- kvæða. Grímur telur að eitt af verkefnum SAF sé að vinna með stjórnvöldum að því að útrýma svartri atvinnustarfsemi. „Á fundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fór í gær (fyrradag), þar sem greindar voru hag- stærðir í ferðaþjónustu, kom fram að miðað við kortaveltu erlendra ferðamanna hafa skatttekjur ekki haldist í hendur við aukin umsvif. Þessi skýrsla staðfestir klárlega að vandamálið er til staðar,“ segir Grímur. Úrbætur þarfar fyrir ímynd greinarinnar Hann segir að málið sé litið alvarlegum augum. Mikilvægt sé fyrir ímynd grein- arinnar að menn sjái sér ekki hag í því að stunda svarta atvinnustarfsemi. „Í okkar at- vinnugrein líkt og mörgum öðrum eru marg- ir smáir atvinnurekendur og einyrkjar. Þeg- ar menn eru að reka hlutina fyrir sjálfa sig í mjög smáum stíl, þá eru meiri líkur á því að menn geri hlutina á einfaldan hátt fremur en að lúta öllum reglum. En að sama skapi þarf að einfalda regluverk og skattaum- hverfi ferðaþjónustunnar þannig að menn sjái ávinning í því að hafa sína atvinnu- starfsemi uppi á yfirborðinu,“ segir Grímur. 17% af veltunni skotið undan  Ríkið verður að lágmarki af um 8 milljörðum vegna vangreidds virðisaukaskatts gististaða  Grímur Sæmundsen, nýkjörinn formaður SAF, telur að einfalda þurfi skattkerfið  Samstarf við stjórnvöld Morgunblaðið/Styrmir Kári Aðalfundur Fjölmenni mætti á aðalfund Sam- taka ferðaþjónustunnar sem fram fór í gær. Grímur Sæmundsen Á morgun lýkur þingi alþjóðlegu samtakanna Spirit of Humanity Forum, SoH Forum, sem hófst í Reykjavík í gær. Samtökin eru alþjóðlegur samstarfsvettvangur leiðtoga á ýmsum sviðum, m.a. stjórnmála, viðskipta og menntunar, sem vilja auka kærleika og samhygð í stjórnarháttum. Þingið er haldið í Hörpu, það sækja á þriðja hundrað manns og í gær stigu þátttakendur saman dans undir fjörugum trumbuslætti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dansað af kærleika og samhygð Leiðtogar á ýmsum sviðum víða að úr heiminum halda þing í Hörpu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.