Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 35
Þorlákshöfn og fluttum síðan búferl- um 30. apríl, 2012. Ég tek það skýrt fram að það var ekki út af „hruninu“. Við tókum enga koll- steypu í þessu blessaða „hruni“. Við bara ákváðum að breyta til. Þarna var að vísu rennt svolítið blint í sjó- inn því ég hef alltaf búið í Reykjavík en eiginmaðurinn er reyndar frá Hólmavík. En ég sé ekki eftir þessu. Þorlákshöfn er fallegur staður. Þar er vel tekið á móti manni. Hér er blómstrandi félagslíf og ég er nátt- úrlega komin í stjórn Félags eldri borgara og kvenfélagsins og hef verið í óðaönn að hjálpa þessum góðu konum að gefa út afmælisblað vegna 50 ára afmælis kvenfélagsins 9. maí nk. Eiginmaðurinn fer svo í hverri viku á svokallað Karlarabb á 9-unni, Félagsmiðstöð eldri borgara í bænum og heyrir þar sitthvað nýtt og gamalt um lífið hér.“ Fjölskylda Fríða giftist 17.11. 1963 Berg- sveini Jóhannessyni, f. 13.8. 1937, húsasmíðameistara og fyrrverandi starfsmanni hjá Slippfélaginu. For- eldrar Bergsveins voru Jóhannes Bergsveinsson, f. 20.10. 1908, d. 3.8. 1989, verkstjóri í Reykjavík, og k.h., Kristín Jónsdóttir, f. 11.11. 1908, d. 7.12. 1994, húsfreyja. Börn Fríðu og Bergsveins eru Valur Bergsveinsson, f. 29.6. 1968, hótelstjórnunarfræðingur, MBA og ráðgjafi, búsettur í Þorlákshöfn, og Vala Ósk Bergsveinsdóttir, f. 18.5. 1978, BA í ensku og MA í alþjóða- almannatengslum, enskukennari og stundar nú MA-nám við HÍ, búsett í Reykjavík. Albróðir Fríðu er Trausti, f. 5.1. 1943, fyrrverandi kennari við Hóla- brekkuskóla í Reykjavík, var kvæntur Sigurlínu Kristjánsdóttur sem er látin. Hún var starfsmaður Kennarasambands Íslands. Hálfbróðir Fríðu, samfeðra, var Bragi, f. 30.7. 1932, d. 6.1. 1997, lög- fræðingur hjá Landsbanka Íslands, en fyrri kona hans var Helga Tryggvadóttir en þau slitu sam- vistum og seinni kona Braga var Sigríður Jóhannesdóttir, starfs- maður við Landsbankann, en þau slitu einnig samvistum. Foreldrar Fríðu voru Björn Guð- finnsson, f. 21.6. 1905, d. 27.11. 1950, prófessor í íslensku við HÍ, og f.k.h., Halldóra Andrésdóttir, f. 14.9. 1909, d. 27.7. 1993, hjúkrunarkona. Seinni kona Björns var Sigríður Pétursdóttir, f. 18.8. 1918, d. 8.3. 1968, hjúkrunarkona. Úr frændgarði Fríðu Björnsdóttur Fríða Björnsdóttir Halldóra Jónsdóttir húsfr. Jón Jónsson vinnum. á Hvoli í Mýrdal Erlendína Jónsdóttir húsfr. í Rvík Halldóra Andrésdóttir húsfr. í Rvík Andrés Ágúst Jóhann Guðnason fisksali í Rvík Jóhanna Andrésdóttir frá Syðra-Langholti, af Reykjaætt. Bróðurdóttir Helga í Birtingarholti, afa Ásmundar Guðmundssonar biskups Guðni Halldórsson b. á Lágafelli í Mosfellssveit Vigdís Einarsdóttir húsfr. á Vogi, af Ormsætt Guðbrandur Einarsson b. á Vogi á Fellsströnd Sigurbjörg Guðbrandsdóttir húsfr. í Litla-Galtardal Guðfinnur Jón Björnsson búfr. í Litla-Galtardal á Fellsströnd Björn Guðfinnsson prófessor í íslensku við HÍ Gestur Guðfinnsson skáld og blaðamaður við Alþýðublaðið Agnes Guðfinnsdóttir húsfr. í Ytra-Skörðugili Björn Jónsson skólastjóri Hagaskóla Magnús Jón Björnsson tannlæknir Björg Þuríður Guðfinnsd. húsfr. í Rvík Guðfinna Ragnarsdóttir, fyrrv. kennari við MR og ættfræðingur Agnes Guðfinnsdóttir húsfr. á Ytrafelli Björn Ólafsson b. á Ytrafelli á Fellsströnd Katrín Andrésdóttir húsfr. á Neðri-Brunn- stöðum á Vatnsleysustr. Magnús Andrésson prófastur og alþm. á Gilsbakka Eyjólfur Andrésson b. á Kirkjubóli í Hvítársíðu Páll Andréss. formaður í Nýjabæ Elín Pálsd. húsfr. Björg Björgólfs. húsfr. í Hafnarfirði Geir Gunnarss. alþm. Lúðvík Geirsson fyrrv. alþm. og bæjarstj. Í Hafnarfirði og fyrrv. form. BÍ Andrés Eyjólfss. alþm. í Síðumúla Þórður Eyjólfss. hæstaréttar- dómari í Rvík Magnús Þórðars. framkvæmdastj. NATÓ á Íslandi Guðrún Þórðardóttir kennari og ættfræðingur. Kjartan Magnúss. borgarfulltrúi Þórður Þórarinss. framkvæmdastj. Sjálfstæðis- flokksins Pétur Magnússon alþm. og ráðherra Ásgeir Pétursson fyrrv. sýslum. og bæjarfógeti í Kópavogi Stefán Pétursson lögfr. og bankastj. Landsbankans Einar Stefánsson augnlæknir Margrét Guðmundsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Guðmundur Í. Guðmundss. alþm. og ráðherra ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 Erlingur Davíðsson ritstjórifæddist á Stóru-Hámundar-stöðum á Árskógsströnd 11.4. 1912. Hann var sonur Davíðs Sigurðssonar, hreppstjóra þar, og Maríu Jónsdóttur húsfreyju. Meðal systkina Erlings voru Ingólfur grasa- fræðingur og Haraldur, bóndi á Stóru-Hámundarstöðum. Eiginkona Erlings var Katrín Kristjánsdóttir frá Eyvík á Tjörnesi. Erlingur lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1935, var ráðsmaður við Laugaskóla í Reykjadal, stjórnaði kornrækt KEA á Klauf í Öngulstaða- hreppi frá 1939 og síðar gróðurhús- unum á Brúnalaug, var afgreiðslu- maður og auglýsingastjóri Dags á Akureyri frá 1950 og sinnti afgreiðslu Tímans og Samvinnunnar. Erlingur hóf fljótlega að skrifa smágreinar í Dag og þegar Haukur Snorrason, sem hafði verið ritstjóri Dags og Samvinnunnar, varð ritstjóri Tímans í Reykjavík tók Erlingur við ritstjórn Dags sem þá var að vísu enn vikublað en þó það stærsta og út- breiddasta á landsbyggðinni. Önnur blöð á Akureyri voru þá Íslendingur, Verkamaðurinn og Alþýðumaðurinn. Erlingur var ritstjóri Dags 1955- 79. Hann kom sér upp föstum frétta- riturum á Norðurlandi, jók mjög fréttaskrif blaðsins og útbreiðslu þess og bætti fjárhaginn. Blaðið eignaðist eigið húsnæði og prentvél og var síð- ar breytt úr vikublaði í dagblað. Erlingur var vinnusamur og af- kastamikill. Hann var pólitískur í anda ungmennafélaga og samvinnu- hreyfingar og eindreginn málsvari góðtemplara en fremur frábitinn flokkspólitísku þrasi. Auk þess var Erlingur afkastamik- ill rithöfundur, sendi frá sér 18 bindi af viðtalsbókunum Aldnir hafa orðið, en bækur hans urðu 32 samtals, s.s. Jói norski, Miðilshendur Einars frá Einarsstöðum og Furður og fyrir- bæri. Þá stofnaði hann tímaritið Súl- ur, ásamt Jóhannesi Óla Sæmunds- syni fornbókasala. Erlingur var mikill áhugamaður um stangveiði, í ám, vötnum og á sjó. Þá starfaði hann mikið í Félagi aldr- aðra á Akureyri, sat í fyrstu stjórn þess og var formaður félagsins um skeið. Erlingur lést 17.7. 1990. Merkir Íslendingar Erlingur Davíðsson 105 ára Hlíf Böðvarsdóttir 85 ára Baldur Guðmundsson 80 ára Anna Rut Haubitz Halla Helga Skjaldberg Óskar Veturliði Grímsson 75 ára Jón Sigurjónsson Selma Guðmundsdóttir 70 ára Ásdís Nikulásdóttir Bjarni Þ. Hagen Gunnar Halldórsson Hallgrímur Sigurðsson Jóhann Alexandersson Jón G. Sigurðsson Tove Dahle 60 ára Guðmundur S Kristjánsson Guðný Jónsdóttir Guðrún Sigríður Vignisdóttir Halla Sjöfn Hallgrímsdóttir Hallfríður Alfreðsdóttir Hrafn Jónasson Ingibjörg A. Guðlaugsdóttir Jens Sigurðsson Sigurður S. Jóhannsson Tómas Tryggvason Þorsteinn Jónsson Þorsteinn Pálsson 50 ára Baldur Pálsson Borgþór Sveinsson Eva Yngvadóttir Guðfinna Björg Jóhannsdóttir Guðjón Símonarson Guðmundur Ingason Gunnar Mýrdal Einarsson Helena Rafnsdóttir Kristín Jónsdóttir Ragnar Aðalsteinn Magnússon Sigrún Traustadóttir Sólveig S. Guðmundsdóttir Tryggvi Ólafsson 40 ára Anna Elísabet Bjarnadóttir Ágústa Hlín Gústafsdóttir Birgitta Heiðrún Guðmundsdóttir Brynjólfur Jón Baldursson Jónína Marteinsdóttir Kristín Guðbrandsdóttir Ragnheiður Valdimarsdóttir Rakel Elín Garðarsdóttir Rögnvaldur Helgason 30 ára Arnar Helgi Hlynsson Baldur Ágúst Sigþórsson Birkir Örn Hreinsson Bjarki Eiríksson Davíð Guðjón Pétursson Fanney Bjarnþrúður Þórsdóttir Höskuldur Björgúlfsson Íris Ósk Kjartansdóttir Kristinn Vignir Helgason Kristín Ósk Jónasdóttir Lilja Björk Sigurdórsdóttir Linda Tommelstad Malgorzata Maria Plociniczak Rógvi Lamhauge Valgerður Helga Einarsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Valdís ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk sveinsprófi í matreiðslu frá Hótel- og veitingaskól- anum og starfar á Hótel Natura í Reykjavík. Bróðir: Hreinn Hjart- arson, f. 1979, fram- reiðslumaður. Foreldrar: Bragi Guð- jónsson, f. 1947, slökkvi- liðsmaður á Keflavík- urflugvelli, og Ingibjörg Júlíusdóttir, f. 1955, sjúkraliði. Valdís Sigurlaug Bragadóttir 30 ára Oddný lauk BA- prófi í uppeldis- og menntunarfræði, stundar MA-nám í námsráðgjöf og er ráðgjafi hjá Vinnu- málastofnun. Maki: Haraldur A. Ein- arsson, f. 1981, aðstoð- arskólastjóri. Dóttir: Rakel Elísa, f. 2009. Foreldrar: Kristján Bjarnason, f. 1952, og Ragna Hannesdóttir, f. 1951. Oddný Þóra Kristjánsdóttir 30 ára Sóley býr í Reykjavík, lauk BA-prófi í vöruhönnun og diplóma- prófi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands, og er umbúðahönnuður hjá Sif Cosmetics. Maki: Grétar Sveinn Theodórsson, f. 1980, al- mannatengill. Dóttir: Iðunn Guðný, f. 2012. Foreldrar: Þórir Bald- ursson, f. 1944, og Guð- rún Pálsdóttir, f. 1957. Sóley Þórisdóttir Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Fermingarsprengja Fallegir skartgripir á frábæru verði Hringur 4.700 Hringur 5.900 Hringur 8.900 Hálsmen 8.600 Hálsmen 7.200 Hálsmen 6.750

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.