Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014
Nemendur í Hagaskóla söfnuðu
a.m.k. 2,2 millljónum króna á góð-
gerðardeginum Gott mál sem hald-
inn var í fimmta skipti í gær. Að
sögn Sigríðar Ástu Eyþórsdóttur,
kennara í skólanum, liggur end-
anleg upphæð ekki fyrir, en hún
gaf þó upp að hún væri ekki lægri
en í fyrra þegar 2,2 milljónir kr.
söfnuðust. Að þessu sinni völdu
börnin að styrkja börn í Sýrlandi í
gegnum Barnaheill og SOS barna-
þorp. Að sögn Sigríðar mættu mörg
þúsund manns á hátíðina þar sem
hver einasti bekkur í skólanum
útbjó sína fjáröflun. Buðu nem-
endur m.a. upp á keilu, kaffihús,
héldu bingó, happdrætti og seldu
frumsamdar örsögur og ljóðabæk-
ur. ,,Þetta skapar góða stemningu á
milli nemenda. Einn nemandi sagði
í dag: það er svo gott að líða svona
vel í hjartanu,“ segir Sigríður.
vidar@mbl.is
Gott að líða
svona vel í
hjartanu
Söfnuðu að lág-
marki 2,2 m. króna
Góðgerðardagur Nemendur í Haga-
skóla bökuðu m.a. kökur til að selja.
„Þetta er starfsemi sem okkur Sál-
verjum þótti verðugt að leggja lið.
Hugmyndina fékk ég í hádeginu á
tónleikadegi og lét prenta 50 auka-
eintök af tónleikaveggspjaldinu í
snarhasti. Svo sátum við sveittir og
árituðum fyrir tónleika og mér skilst
að færri hafi fengið en vildu,“ segir
Stefán Hilmarsson söngvari.
Á dögunum færði hljómsveitin
Sálin hans Jóns míns Barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans 250
þús. kr. að gjöf. Upphæðin safnaðist
í nóvember á 25 ára afmælistón-
leikum sveitarinnar í Hörpu. 50
spjöld voru árituð og seld á 5.000 kr.
hvert. Til viðbótar fékk BUGL 51.
spjaldið með peningagjöfinni.
Stefán segir að engin ákveðin
ástæða eða tilefni hafi verið til þess
að áðurnefndu málefni var lagt lið.
„Eins og margt í heilbrigðisþjónustu
er starfsemi BUGL í sífelldri fjár-
þörf, þó enginn efist um hve miklu
hún skiptir fyrir fjölda barna og fjöl-
skyldur þeirra. Þetta varðar okkur
öll og því ljúft að geta lagt dulítið af
mörkum,“ segir Stefán.
Sálin hefur haft hægt um sig það
sem af er ári, enda var 25 ára afmæl-
isárið í fyrra – með tónleikum og
böllum – annasamt. En á laugardag
koma Sálverjar koma fram á Spot í
Kópvogi og munu svo troða upp á
Selfossi laugardaginn fyrir páska,
19. apríl. sbs@mbl.is
Seldu spjöld og studdu BUGL
Gjöf Stefán Hilmarsson og Ágústa Ingibjörg Arnardóttir hjá BUGL.
Sálverjar leggja lið Afmælistónleikar Ljúft að geta
lagt dulítið af mörkum, segir Stefán Hilmarsson söngvari
Bragi Guð-
brandsson, for-
stjóri Barna-
verndarstofu, var
í gær einróma
kjörinn formaður
Lanzarote-
nefndar Evr-
ópuráðsins.
Meginhlutverk
nefndarinnar er
að hafa eftirlit
með framkvæmd samnings Evr-
ópuráðsins um vernd barna gegn
kynferðislegu ofbeldi. Samning-
urinn er kenndur við spænsku
borgina Lanzarote þar sem hann
var opnaður til undirritunar.
Auk eftirlits með samningnum
skal nefndin eiga frumkvæði að efl-
ingu vitundar og miðlun bestu
þekkingar á þessu sviði á meðal að-
ildarríkjanna. Alls hafa 30 aðild-
arríkja ráðsins fullgilt samninginn
en hann tók gildi á Íslandi í byrjun
árs 2013 en öll ríki ráðsins utan
eitt hafa undirritað samninginn, 46
að tölu.
Bragi formað-
ur Lanzarote-
nefndar
Bragi
Guðbrandsson