Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 Aðstoðarmaður Magnús Ragnarsson. ● Magnús Ragnarsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri markaðs- setningar- og vörusviðs hjá Símanum, en fyrirtækið tilkynnti skipulagsbreyt- ingar í gær. Auk hans mun Birna Ósk Einarsdóttir taka við sem fram- kvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs, en hún stýrði áður markaðssetningu og vörum. Guðmundur Stefán Björnsson verður framkvæmdastjóri nýs sviðs sem heitir upplýsingatæknisvið. Hann gegndi áður starfi framkvæmdastjóra sölu- og þjónustusviðs. Magnús Ragnarsson fer frá Illuga til Símans BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Sex ástæður eru fyrir því að nýsköp- unarfyrirtæki hafa blómstrað í Finn- landi á undanförnum fjórum árum. Áður hafi samfélagið í raun verið fjandsamlegt vaxtarfyrirtækjum. Fyrst ber að nefna lög sem heimiluðu einkarekstur háskóla árið 2009 og sköpuðu þeim meiri sveigjanleika. Í kjölfarið sameinuðust þrír háskólar í Aalto og hefur sá skóli ungað út og stutt vel við bakið á frumkvöðlum. Þetta sagði Petri Rouvinen, for- stöðumaður hjá finnsku hagrann- sóknastofnuninni ETLA, á Nýsköp- unarþingi í gær. Uppgangur Í annan stað séu fyrirtæki á borð við leikjafyrirtækin Supercell, sem býr til leikinn Clash of Clans, og Ro- vio, framleiðandi Angry Birds, góðar fyrirmyndir. Fyrir ári hafi helmings- hlutur í Supercell, sem þá var þriggja ára gamalt með 150 starfsmenn, ver- ið keyptur á 1,5 milljarða evra. Rovio hafi búið til 50 leiki, og enginn þeirra gengið vel, áður en Angry Birds kom út, sem notið hefur mikilla vinsælda. „Angry Birds var 51. leikur Rovio,“ sagði Rouvinen. Veltan í finnska leikjaiðnaðinum hafi aukist í 900 milljónir evra úr 250 milljónum á milli áranna 2012 og 2013. Starfsmönnum hafi fjölgað í 2.200 úr 1.800 á sama tíma. Hnignun Nokia „Í þriðja lagi er að nefna hnignun Nokia,“ sagði hann. Símaframleið- andinn var risi í finnsku efnahagslífi og um aldamótin lagði hann til 4% af vergri landsframleiðslu. Á undan- förnum árum hefur rekstur fyrirtæk- isins gengið erfiðlega. Rouvinen sagði að margir hefðu ályktað í kjöl- farið að ekki væri hægt að treysta á vinnu hjá stórfyrirtækjum og áhugi á sprotafyrirtækjum hefði glæðst. Fyrir fimm árum hefði fólk almennt haft lítinn áhuga á að starfa hjá þeim. Minni kostnaður, meiri tekjur Í fjórða lagi hafi kostnaður við að koma á fót hugbúnaðarfyrirtæki minnkað, t.d. vegna skýlausna, og möguleikinn á að ná til mikils fjölda með ódýrum hætti aukist, t.d. í gegnum App Store sem Apple rekur. Áður fyrr hafi tölvuleikjafyrirtæki þurft að setja leiki á diska, pakka þeim í umbúðir og senda í fjölda verslana víða um heim, sem hafi verið kostn- aðarsamt. Í fimmta lagi nefndi hann alþjóðavæðinguna og hve auðvelt sé að út- vista verkefnum. Stærð fyrirtækja og hvar þau séu staðsett í heiminum skipti æ minna máli. Ríkisstuðningur Loks nefndi hann aðgerðir stjórn- valda – og nýtti tækifærið til að árétta mikilvægi kerfisbreytinga á háskólum landsins sem sagt hefur verið frá – og nefndi framlög ríkisins til uppbyggingarverkefna. Annars vegar hafi það lagt fé í svokallaða Vigo-hraðla. Það séu fjárfestingar- sjóðir sem einkafjárfestar og hið op- inbera leggi fé í og styðji við bakið á fyrirtækjum á frumstigum þeirra. Einkafjárfestarnir stýri sjóðunum en þeir hafa lagt þeim til 220 milljónir evra og hið opinbera 70 milljónir. Vigo hafi fjárfest í 90 fyrirtækjum. Rouvinen sagði að téð Supercell hefði sprottið fram úr Vigo-hraðli. Hins vegar leggi hið opinbera fé í Tekes- sjóði sem leggi fjármuni í rannsókn- ar- og þróunarverkefni. Einkarekstur háskóla sáði fræjum Morgumblaðið/Þórður Nýsköpun Finninn Petri Rouvinen sagði að hningun Nokia hefði glætt áhuga á sprotafyrirtækjum í heimalandinu.  Nýsköpunarfyrirtæki hafa blómstrað í Finnlandi á undanförnum fjórum árum að sögn hagfræðings  Einkarekstur háskóla lagði hönd á plóg  Finnsk tölvuleikjafyrirtæki hafa náð góðum árangri Angry Birds » Petri Rouvinen er hagfræð- ingur og forstöðumaður finnsku hagrannsóknastofn- unarinnar ETLA. Hann hélt er- indi á Nýsköpunarþingi í gær. » Finnsk tölvuleikjafyrirtæki hafa átt mikilli velgengni að fagna á undanförnum árum. » Fyrirtækin Supercell sem framleiðir tölvuleikinn Clash of Clans og Rovio sem fram- leiðir Angry Birds hafa gengið sérstaklega vel. » Veltan í finnska leikjaiðn- aðinum hefur aukist í 900 milljónir evra úr 250 millj- ónum á milli áranna 2012 og 2013. ● Síminn sagði upp á annan tug starfs- manna í gær. Félagið tikynnti skipu- lagsbreytingarnar sem fela meðal annars í sér að nýtt svið, upplýsinga- tæknisvið, verður stofnað, segir á mbl.is Á fundi með starfsfólki sagði Orri Hauksson, forstjóri Símans, að mikill kostnaður hefði verið hjá fyrirtækinu og að ráðist væri í breytingarnar vegna hagræðingarkröfu. Meðal þeirra sviða sem munu minnka eru vöru- og mark- aðssetningarsvið. Uppsagnir hjá Símanum ● Carl Icahn fjárfestir hefur ákveðið að hætta baráttunni um að eBay selji PayPal og að hann fái að til- nefna tvo stjórnarmenn netfyrirtæk- isins. Á sama tíma var ákveðið að bæta einum óháðum stjórnarmanni við stjórn eBay. Sá sem varð fyrir valinu heitir David Dorman og er stjórnarformaður lyfjakeðjunnar CVS. Þetta kemur fram í erlendum fjöl- miðlum. Icahn hefur unnið að upp- skiptingunni mestallt árið. John Donahue, forstjóri eBay, hefur fullyrt að fyrirtækin séu meira virði saman en sitt í hvoru lagi, því eBay sendi viðskipti til PayPal. Carl Icahn sleppir eBay STUTTAR FRÉTTIR                                      !  "# #$$ % %#!  "" %! ""% &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 $ %"  "  %!% " %  %  ## %!$ "" #" %#    %# # %! %"%  ! %!% ""  "" $ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands í ár. Það er markaðsleiðandi í Evr- ópu á sviði heimilisfjármála- hugbúnaðar, með sautján við- skiptavini í fjórtán löndum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, af- henti Georg Lúðvíkssyni, fram- kvæmdastjóra og einum af stofnendum Meniga, verðlaunin á Nýsköpunarþingi í gær. Fyrirtækið hefur vaxið hratt frá stofnun í mars 2009 og er nú með starfsemi í Reykjavík, Stokkhólmi og London. Starfsmenn Meniga eru nú um 80, og þar af eru 60 á Íslandi. Stærstu markaðir Meniga eru Þýskaland, Spánn og Suður- Afríka. Hugbúnaður Meniga nær til, eða mun fljótlega ná til, um fimmtán milljóna netbankanot- enda í fjórtán löndum. Vaki, hátæknifyrirtæki sem framleiðir tæki og búnað fyrir fiskvinnslur, hlaut verðlaunin í fyrra. Við val á verðlaunahafa er m.a. litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskap- andi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Meninga verðlaunað NÝSKÖPUNARVERÐLAUN ÍSLANDS AFHENT Georg Lúðvíksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.