Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Svona er heima hjá Eik og …
2. Kvittaði á rangan …
3. Ruslabílar borgarinnar við 365
4. Uppsagnir hjá Símanum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Myndlistarmennirnir Libia Castro
og Ólafur Ólafsson, sem voru fulltrú-
ar Íslands á Feneyjatvíæringnum árið
2011, eru í hópi heimsþekktra sam-
tímalistamanna sem eiga verk á sýn-
ingu sem var opnuð í samtíma-
listasafninu í Ósló í gærkvöldi.
Sýningin er haldin í tilefni tveggja
alda afmælis norsku stjórnarskrár-
innar og fjalla listaverkin öll á ein-
hvern hátt um borgaralega óhlýðni,
sjálfstæðisbaráttu og kynferðislega
eða menningarlega sjálfsmynd fólks.
Meðal annarra sýnenda eru kínverski
andófsmaðurinn Ai Weiwei, sem sagð-
ur er áhrifamesti myndlistarmaður
heims um þessar mundir, rússnesku
andófskonurnar í Pussy Riot, hinn ís-
lenskættaði Norðmaður Gardar Eide
Einarsson, Turner-verðlaunahafinn
Jeremy Deller og Rirkrit Tiravanija,
sem hefur sýnt hér á Listahátíð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólafur og Libia á
andófssýningu í Ósló
Mikil uppi-
standshátíð fer fram
í Reykjavík í lok
október á þessu ári,
ný hátíð sem standa
mun 23.-26. október
og nefnist Reykjavík
Comedy Festival. Í
tilkynningu frá
Senu, sem stendur fyrir hátíðinni, seg-
ir að fyrsti grínistinn sem fram kemur
á Íslandi hafi verið staðfestur og er sá
Englendingurinn Stephen Merchant.
Hann hefur starfað náið með landa
sínum Ricky Gervais til margra ára og
þá m.a. að gamanþáttunum The Office
og The Ricky Gervais Show.
Merchant með
uppistand á Íslandi
Á laugardag Norðan og norðvestan 10-18 m/s, snjókoma og síðan
él um landið norðanvert og frystir, en heldur hægari sunnantil, úr-
komulítið og hiti 2 til 6 stig. Lægir mikið um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 13-20 fyrir hádegi með
rigningu einkum um landið sunnanvert, en slyddu eða snjókomu á
Vestfjörðum. Snýst í suðvestan 5-10 með skúrum síðdegis.
VEÐUR
Stjörnumenn, með Matt-
hew James Hairston í aðal-
hlutverki, unnu óvæntan
og sannfærandi sigur á KR-
ingum, 95:76, í þriðja leik
liðanna í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í körfu-
knattleik í Vesturbænum í
gærkvöld. Þar með þurfa
liðin að mætast í fjórða
sinn í Garðabæ á sunnu-
dagskvöldið. Hairston
skoraði 41 stig og tók 16
fráköst í leiknum. »2
Sannfærandi
Stjörnumenn
Ísland sigraði Möltu, 8:0, í undan-
keppni heimsmeistaramóts kvenna í
knattspyrnu í gær. Harpa Þorsteins-
dóttir skoraði þrjú markanna og Dóra
María Lárusdóttir skoraði og kom mik-
ið við sögu í sínum 102. landsleik.
„Breiddin í leik-
mannahópnum hefur
aukist. Ekki veitir af
því næstu leikir verða
erfiðari,“ segir Dóra
María. »4
Breiddin í leikmanna-
hópnum hefur aukist
Haukar tryggðu sér í gærkvöld deild-
armeistaratitil karla í handknattleik
þriðja árið í röð og í sjötta sinn á síð-
ustu sjö árum þegar þeir gerðu jafn-
tefli við Akureyringa í næstsíðustu
umferðinni. Baráttan um fjórða sætið í
úrslitakeppninni harðnaði til muna en
Fram, FH og ÍR bítast um það í loka-
umferðinni. ÍR gæti líka lent í næst-
neðsta sæti og farið í umspil. »2-3
Sjötti sigur Hauka í
deildinni á sjö árum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það er gaman að móta nýja hefð og
vera í spennu á milli ólíkra hefða. Í
söfnuði sem stofnaður var fyrir ekki
ýkja mörgum árum – og er ekki einu
sinni kominn með eiginlega kirkju-
byggingu – er slíkt mögulegt. Við
höfum meira svigrúm en margir aðr-
ir. Hér fylgjum við sígildu messu-
formi með sálmasöng en hér eru líka
messur þar sem djasstónlist og
gospelsöngur kemur í stað sálm-
anna. Og nú ætlum við að rokka,“
segir séra Kjartan Jónsson, sókn-
arprestur í Ástjarnarsókn í Hafn-
arfirði.
Led Zeppelin, Kiss, U2,
Janis Joplin og AC/DC
Á sunnudagskvöld kl. 20 halda
Ástirningar rokkmessu í Víðistaða-
kirkju. Messan sjálf fylgir föstu
formi, en í stað sálma syngur kirkju-
kórinn rokklög með íslenskum lof-
gjörðartextum eftir Kópavogsprest-
ana sr. Guðmund Karl Brynjarsson
og sr. Gunnar Sigurjónsson. Upphaf
þessa var, segir Matthías V. Bald-
ursson, tónlistarstjóri Ástjarnar-
kirkju, að fyrir þremur árum var þar
messa með lögum írsku rokksveit-
arinnar U2. Hún þótti lukkast vel og
er í minnum höfð. Það réð því að
ákveðið var að gera eitthvað í svip-
uðum dúr – og blanda saman rokki
og ritningu.
„Nú má segja að við stígum skref-
ið lengra með því að koma til messu
með rokklög sem Led Zeppelin,
Kiss, U2, Janis Joplin og
AC/DC hafa gert fræg.
Stairway to heaven er
virkilega fallegt lag í ís-
lenskri útgáfu.
Kirkjukórinn er bú-
inn að æfa stíft í
tvær vikur og svo
höfum við haft þau
Pál Rósinkranz og
Áslaugu Helgu Hálfdánardóttur
með okkur og svo hóp frábærra
hljóðfæraleikara. Það munar um
menn eins og til dæmis Friðrik
Karlsson. Nú er þetta allt að smella,
kórinn var á æfingu og er kominn
með þá tilfinningu í tónlistina sem
þarf að vera,“ segir Matthías.
Messa sem hreyfir við fólki
„Mér finnst það auka gildi þessa
hvað textar prestanna tveggja eru
ljómandi fínir. Boðskapur textanna
er kröftugur og þetta er messa sem
mun hreyfa við fólki. Þarna verður
talsverður hávaði,“ segir Matthías
sem segir kirkjustarfið í Ástjarnar-
sókn frjálslynt. Fólk sé óhrætt og
raunar áfram um að fara nýjar leið-
ir, til dæmis í tónlistarstarfi.
Hávaði og kröftugur boðskapur
Ástirningar
halda rokkmessu
í Víðistaðakirkju
Morgunblaðið/Golli
Kraftur Tónlistarstjórinn Matthías V. Baldursson og Kirkjukór Ástjarnarkirkju á æfingu með ólgandi rokk í æðum.
Ritningargrein komandi sunnu-
dags, sem er pálmasunnudagur, er
úr tólfta kapítula Jóhannesarguð-
spjalls þar sem segir frá því þegar
Jesús reið á asna inn til Jerúsalem
og var fagnað af fólki með
pálmagreinar. Allt lék þá í
lyndi, en loft var lævi bland-
ið og ekki leið á löngu
uns draga tók til
tíðinda; svika og
krossfestingar.
„Lögin sem flutt verða í mess-
unni hæfa deginum vel og erindi
dagsins kemst alveg til skila með
prédikun. Messan er ekkert þynnt
út þó að þessi háttur sé hafður á,“
segir sr. Kjartan Jónsson. Hann
hefur þjónað í Ástjarnarsókn sl.
fjögur ár, þar sem eru um 5.000
sóknarbörn sem búa á Völlunum
og í Áslandinu – sem eru nýjustu
hverfin í Hafnarfirði og raunar enn
í byggingu.
Fagnað með pálmagreinum
ROKKA FEITT Á PÁLMASUNNUDEGINUM