Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.04.2014, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014 Nokkuð hefur verið til umræðu í fjöl- miðlum nýtt frumvarp til laga um opnun svo- nefndra spilahalla (e. Casino) á Íslandi. Lestur á frumvarpi og meðfylgjandi greinargerðar vekur upp ýmsar spurn- ingar um einstök at- riði og þær breyt- ingar á peningaspilamarkaði sem það hefur í för með sér, ef sam- þykkt verður. Í þessari fyrri grein verður fjallað um atriði er tengjast spilun peningaspila, spilavanda og hugsanleg áhrif spilahalla á þessa þætti. Í greinargerð með frumvarpi má sjá nokkuð ítarlega og jákvæða umfjöllun um rekstur spilahalla í Danmörku. Þar er einnig tilvísun í afmarkaðar niðurstöður einu rann- sóknar Dana á algengi spilafíknar og því komið á framfæri að algengi spilafíknar sé minna þar í landi (0,1%) en annars staðar á Norð- urlöndum. Af þessu má skilja, þó að það sé ekki beinlínis fullyrt í greinargerð, að hættulaust sé að opna spilahallir hér á landi þar sem spilafíkn sé svo lítil í Danmörku. Þetta er einkennileg framsetning rannsóknarniðurstaðna, sér- staklega í ljósi þess að hvergi á Norðurlöndum hefur verið gert eins lítið af rannsóknum á þessu sviði og í Danmörku. Hér á landi hafa til dæmis verið gerðar þrjár faraldsfræðilegar rannsóknir (árin 2005; 2007 og 2011) á spilun pen- ingaspila og algengi spilavanda meðal fullorðinna Íslendinga. Nið- urstöður síðustu rannsóknar frá árinu 2011 sýndu að um 76% Ís- lendinga spiluðu peningaspil og var algengi hugsanlegrar spilafíknar 0,8% (öryggismörk: 0,5%-1,4%) og u.þ.b. 1,7% (öryggismörk: 1,2 %-2,4%) til viðbótar áttu í veruleg- um vanda vegna þátttöku sinnar í peningaspilum. Þetta bendir ein- faldlega til þess að algengi spila- fíknar sé hærra hér á landi en í Danmörku, án spilahalla. Ljóst er að opnun spilahalla mun þýða aukið framboð af pen- ingaspilum, bæði meira af því sem þegar er í boði (spilakassar) og nýj- ar gerðir peningaspila (t.d. 21, pók- er, rúlletta) sem ekki hafa verið lögleidd hér áður. Það sem ein- kennir þessar tegundir pen- ingaspila er samfelld spilamennska með tiltölulega miklum spilahraða og tíðri endurgjöf vinninga en nið- urstöður erlendra rannsókna benda til að slík peningaspil hafi að öllu jöfnu sterkari tengsl við spila- vanda en aðrar tegundir. Í nið- urstöðum íslenskra rannsókna hef- ur líka endurtekið komið í ljós að besta forspá um spilavanda var þátttaka í spilaköss- um, póker og spilun á erlendum netsíðum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hug- myndir um opnun spilahalla verða til hér á landi. Reyndar minn- ir þetta frumvarp mjög á hugmyndir sem voru í gangi veturinn 2009/2010 en um þær hugmyndir ritaði und- irritaður greinargerð fyrir landlækni þar sem farið var nokkuð ítarlega í erlendrar rann- sóknir sem gera tilraun til að meta áhrif af opnun spilavíta á samfélög (skýrslu landlæknis má finna hér: http://www.velferdarraduneyti.is/ hbr/frettir/nr/32207). Niðurstöður þeirra rannsókna voru ekki ein- hlítar þar sem sumar sýndu fram á aukningu í spilun peningaspila og jafnvel spilavanda en aðrar ekki. Í stuttu máli var og er mín afstaða sú að gera megi ráð fyrir því að opnun spilahalla muni a.m.k. fyrst í stað auka á spilun peningaspila á höfuðborgarsvæðinu en síðan væri hugsanlegt að náðst gæti jafnvægi eða jafnvel dregið úr þátttöku, þeg- ar nýjabrumið er horfið. Nið- urstöður rannsókna á áhrifum spilahalla á spilavanda voru hins- vegar það tvíbentar að ómögulegt er að fullyrða hvort slíkar hallir leiða til meiri spilavanda eður ei. Hinsvegar er nauðsynlegt að huga að einkennum þeirra spila sem eru í boði innan spilahalla en slík peningaspil byggjast eins og áður sagði á samfelldri spila- mennsku, með miklum spilahraða og tíðri endurgjöf í formi vinninga. Niðurstöður erlendra rannsókna á hlutfalli tekna af mismunandi teg- undum peningaspila benda til að u.þ.b. 30-60% af tekjum spilakassa og borðspila eins og rúllettu, 21 og póker komi úr vasa þess fámenna hóps sem á við spilavanda að stríða. Engin ástæða er til að halda að það verði öðruvísi hér á landi og ekki ólíklegt að tilvist spilahalla muni leiða til þess að þeir sem eiga við vanda að stríða muni leita í meira mæli eftir þeirri þjónustu sem þar er í boði. Spilahallir munu því líklega auka á vanda þessa hóps. Fáeinar hugleiðing- ar um frumvarp til laga um spilahallir Eftir Daníel Þór Ólason Daníel Þór Ólason » Af þessu má skilja, þó að það sé ekki beinlínis fullyrt í grein- argerð, að hættulaust sé að opna spilahallir hér á landi þar sem spilafíkn er svo lítil í Danmörku. Höfundur er dósent í sálfræði við Háskóla Íslands og sinnir rannsóknum á sviði spilafíknar. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Atvinnublað alla sunnudaga ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á man n frá 69.500* 570 8600 / 472 1111 www.smyrilline.is *Netverð á mann miðað við staðgreiðslu, lágannatímabil. FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500* Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Komdu út að keyra… Berlín · Amsterdam · París Róm · Barcelóna? HVERNÆTLAR ÞÚAÐ GLEÐJA Í DAG? PÁSKABLÓMIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.