Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
ViðskiptaMogginn, nýtt og endur-
bætt viðskiptablað Morgunblaðs-
ins, kemur út í dag. Blaðið mun
fylgja Morgunblaðinu á fimmtu-
dögum eins og verið hefur.
„ViðskiptaMogginn byggist á
þeirri hefð sem Viðskiptablað
Morgunblaðsins hefur skapað, en
að sjálfsögðu með breyttum
áherslum,“ segir Sigurður Nordal,
fréttastjóri viðskipta á Morg-
unblaðinu. „Við munum leitast við
að flytja fréttir um það sem helst
er á baugi í atvinnulífinu, auk ýt-
arlegra viðtala og fréttaskýringa
um efnahagsmál og viðskipti,“ seg-
ir hann.
Sigurður segir að fjallað verði
um atvinnulíf á breiðum grunni,
meðal annars með aukinni áherslu
á sjávarútveg og tengdar greinar.
Fagtengdum greinum verður fjölg-
að auk fjölbreytts efnis af léttara
tagi.
„Við munum svo birta valdar
greinar í hverri viku frá blaða-
mönnum Financial Times, sem
eins og flestir vita er virtasta við-
skiptablað heims. Blaðið er því
fjölbreytt blanda af fréttum, fróð-
leik og skemmtun og vonandi finna
þar flestir efni við sitt hæfi,“ segir
Sigurður.
ViðskiptaMogginn er nýtt og
endurbætt blað um viðskipti
„Fjölbreytt blanda af fréttum, fróðleik og skemmtun“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
ViðskiptaMogginn Sigurður Nordal skoðar eintak ásamt Guðmundi Gísla-
syni og Stefáni Þorsteinssyni prenturum í prentsmiðju Landsprents í gær.
Eigendur flugskýla hjá Fluggörðum
eru ósáttir við að Bílaleiga Akureyr-
ar hafi byrjað að girða af reit við flug-
skýli í sinni eigu, en framkvæmdir
hófust í gær. Alfhild Nielsen, formað-
ur ByggáBIRK, hagsmunafélags
eigenda flugskýla á vellinum, segir
að svæðið sem um ræði sé innan flug-
vallargirðingarinnar, og að bílaleigan
hafi helgað sér helmingi stærri lóð en
henni beri, en lóð Fluggarða er
óskipt. Þá er einnig gagnrýnt að í
þeim skipulagsreglum sem gilda um
svæðið, sem séu frá 2009, segi að
óheimilt sé að reka starfsemi sem
tengist flugi eða rekstri flugvallarins
með beinum hætti, nema flugvall-
arstjóri veiti tímabundna und-
anþágu, enda sé um að ræða starf-
semi sem tengist flugrekstri eða
rekstri flugvallarins, og sérstakar
ástæður mæli með undanþágunni.
Eigendur flugskýlanna segja að
starfsemi bílaleigunnar geti vart fall-
ið undir þá skilgreiningu, heldur eigi
meira skylt við ferðaþjónustu. „Við
teljum að þetta sé því á skjön við það
leyfi sem er fyrir svæðinu,“ segir Alf-
hild.
Bergþór Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar,
segir að fyrirtækið sé að reyna að
nýta sér eign sína sem best, þar sem
ekki sé um auðugan garð að gresja
þegar kemur að jarðnæði hjá flug-
vellinum. Bergþór hafnar því með
öllu að með framkvæmdunum sé ver-
ið að vega að Reykjavíkurflugvelli.
„Sjálfur vildi ég að hann væri þarna
um aldur og ævi.“ sgs@mbl.is
Ósætti um framkvæmdir
„Ekki verið að
vega að Reykja-
víkurflugvelli“
Morgunblaðið/RAX
Umdeild girðingarvinna Hópur fólks fylgdist með því þegar byrjað var að girða svæðið af fyrir Bílaleigu Akureyr-
ar. Skiptar skoðanir eru á því hvort afmörkun lóðarinnar standist gildandi skipulagsreglur um flugvallarsvæðið.
Þrefalt meira magn af norsk-ís-
lenskri síld mældist innan íslensku
fiskveiðilögsögunnar í nýafstöðnum
leiðangri rannsóknarskipsins Árna
Friðrikssonar en í leiðöngrum síð-
ustu tveggja ára. Þótt stofninn sé
enn á niðurleið gefa niðurstöður leið-
angursins vísbendingar um styrk
uppvaxandi árganga.
Norsk-íslenska síld var að finna á
stóru svæði í Austurdjúpi. Í leið-
angrinum mældust um 1,5 milljón
tonn af síld en til samanburðar má
geta þess að um hálf milljón tonna
mældist 2012 og 2013.
Megnið af síldinni var 8 ára fiskur
og eldri. Það er afleiðing þess að
sterkir árgangar hafa ekki komið inn
í stofninn og hann verið á niðurleið
frá 2009. Í tilkynningu frá Hafrann-
sóknastofnun kemur fram að fyrir-
séð er að sú þróun haldi áfram þar til
sterkir árgangar koma inn í stofninn
og ná veiðanlegum aldri. Þótt niður-
stöður leiðangursins, sem var sam-
eiginlegur með Norðmönnum, Fær-
eyingum, Rússum og ESB, liggi ekki
fyrir segir Hafró að vísbendingar
séu um styrk uppvaxandi árganga.
Stór árgangur kolmunna
Mikið magn kolmunna fannst fyrir
suðvestan og sunnan land, einnig við
landgrunnskant Færeyja og Noregs
og í úthafinu. Var það að megninu
eins árs kolmunni. Niðurstöðurnar
eru taldar benda til að árgangurinn
2013 kunni að verða stór en hann
kemur inn í veiðarnar á næsta ári.
Niðurstöður leiðangursins verða
notaðar við endurmat á stærð stofn-
anna og kynntar í haust.
helgi@mbl.is
Vísbendingar um styrk
uppvaxandi árganga
Mæla mikið magn af norsk-íslenskri síld og kolmunna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Síld Spriklandi á færibandi.
Tilraunin til þess
að búa til sam-
stöðu í samfélag-
inu um hóflegar
launahækkanir
hefur mistekist,
samkvæmt álykt-
un miðstjórnar
ASÍ um kjaramál
sem samþykkt
var í gær. Vísar
miðstjórnin þar til
þess að eftir að samið var um 2,8%
launahækkanir hafi stórir hópar sam-
ið um allt annað og meira en talið var
að væri til skiptanna. Taka yrði því
mið af þeirri stöðu þegar næstu
kjarasamningar yrðu gerðir.
„Það lá alltaf ljóst fyrir þegar
menn fóru í þetta ferli síðasta haust
að það þyrfti að vera um það sátt á
vinnumarkaði til að leiðin væri fær,
því að það getur ekki gengið að sumir
axli ábyrgð á verðbólgu og aðrir
áskilji sér rétt til þess að sækja sér
launahækkanir,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ.
Hann segir að gerð hafi verið grein
fyrir því fyrir nokkrum vikum að for-
ysta ASÍ sæi ekki að það yrði hægt að
nálgast næstu samninga með sömu
markmiðum og voru síðasta haust.
Sveitarstjórnir séu nýbúnar að semja
við kennara um töluverðar hækkanir
en geri síðan kröfu til þess að verka-
og iðnaðarmenn semji á öðrum for-
sendum. „Við viljum því leggja þeim
stuðning í því að það kemur ekki til
greina. Samtökin munu styðja þessa
félagsmenn til þess að fá sambæri-
legar hækkanir og sveitarfélögin hafa
mótað,“ segir Gylfi. „Þessi tilraun
hefur mistekist, því að ríki og sveit-
arfélög hafa samþykkt aðrar viðmið-
anir og þær viðmiðanir gilda núna í
samningum.“ sgs@mbl.is
Tilraun um
samstöðu
mistókst
Gylfi
Arnbjörnsson
Félagsmenn fái sam-
bærilegar hækkanir
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 41,9 millj.
Sandavað1 1 0Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Samtals að stærð 126,3 m²
Sér hannaðar allar innréttingar
Mikil lofthæð og innfeld lýsing
Útgengi út á svalir úr stofu og
baðherbergi
Stæði í bílakjallara
Glæsileg íbúð með útsýni allan hringinn
Væntingar slita-
búa föllnu bank-
anna hafa verið
óraunhæfar.
Tryggja þarf að
samhliða afnámi
gjaldeyrishaft-
anna séu lífskjör í
landinu varin, að
jafnræði gildi og
að þeim mikla ár-
angri sem þegar
hefur náðst verði ekki varpað fyrir
róða. Þetta sagði Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og efnahagsráðherra,
á ársfundi Fjármálaeftirlitsins í gær.
Hann sagði að framkvæmdastjórn
um losun haftanna yrðu fengnir er-
lendir ráðgjafar sem ynnu með
stjórnvöldum við að skilgreina nán-
ar efnahagsleg viðmið þegar
ákvarðanir yrðu teknar um næstu
skref. „Þar er einkum verið að horfa
til skilyrða fyrir undanþágum frá
höftunum, meðferðar aflandskróna
og áhrifa annarra þátta á greiðslu-
jöfnuð landsins næstu árin.“
Óraunhæfar vænt-
ingar slitabúanna
Bjarni
Benediktsson
Farþegi réðst á bílstjóra leigubif-
reiðar við Lönguhlíð í gær. Farþeg-
inn neitaði að greiða fyrir þjón-
ustuna. Bílstjórinn hafði samband
við lögreglu og var farþeginn hand-
tekinn. Rætt verður við hann þegar
víman hefur runnið af honum.
Réðst á bílstjóra