Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Kynntu þér öll stefnumálin okkar á xdreykjavik.is og kjóstu dásamlega Reykjavík
Dásamlega Reykjavík
● Við ætlum að efla heimaþjónustu eldri borgara og bjóða upp á aukið val
um þjónustu.
● Við ætlum að lækka leigu og húsnæðisverð með auknu lóðaframboði – en
ekki á kostnað borgarbúa. Reykvíkingar eiga að hafa val um búsetukosti.
● Foreldrar eiga ekki að sitja uppi með kostnað vegna biðlista á leikskóla.
Borgin á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla – og foreldrar eiga
að hafa val um hvernig þeim fjármunum er ráðstafað.
● Skattar og gjöld á meðalfjölskyldu í Reykjavík hafa hækkað um 400.000 kr.
á fjórum árum. Við ætlum að létta byrðar borgarbúa.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
Á laugardag verður kosið
um valfrelsi borgarbúa
Við skipum 10 efstu sætin á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Nýsamþykkt Að-
alskipulag Reykjavík-
ur 2010-2030 er hin
raunverulega stefnu-
skrá núverandi borg-
arstjórnar. Viðamikl-
um framkvæmdum
þeirrar áætlunar hefur
nú þegar verið hleypt
af stokkunum og unnið
verður kappsamlega
að þeim áformum fái
núverandi borgaryfirvöld til þess
brautargengi í komandi kosningum.
Með góðu eða illu?
Borgarskipulag hefur alltaf áhrif
á mannlífið með beinum og óbeinum
hætti. En með þessu Aðalskipulagi
er brotið blað í sögu Reykjavíkur.
Nýju Aðalskipulagi er fyrst og síðast
ætlað að umbreyta ferðavenjum
borgarbúa á mjög róttækan hátt.
Skipulaginu er ætlað að tryggja að
stór hluti borgarbúa hætti að aka á
bílum sínum til og frá vinnu en fari
þess í stað gangandi, hjólandi eða
með almenningsvögnum.
Svona breytingum á ferðavenjum
fólks er hægt að ná fram með góðu
eða illu. Líklega myndu mun fleiri
ganga, hjóla eða taka almennings-
vagna til vinnu sinnar ef þeir kostir
yrðu álitlegri en þeir eru í dag. Í
þeim efnum má margt betrumbæta.
En það fer lítið fyrir slíkum áþreif-
anlegum áformum í nýju Að-
alskipulagi. Ferðavenjum okkar á
því ekki að breyta með góðu heldur
með illu: Með því að leggja stein í
götu okkar.
Gullinbrú verður þrengd úr
fjórum í tvær akreinar
Meginhugmynd borgaryfirvalda
og Aðalskipulags felst í þeim áform-
um að hægja svo á allri umferð
vélknúinna ökutækja að fólk gefist
upp á því að aka á bílum sínum til og
frá vinnu. Í Aðalskipulaginu er þetta
orðað svo, sem eitt helsta markmiðið
í samgöngumálum: „Götur verði
endurhannaðar sem borgarrými
með fjölþætt hlutverk.“ Breytingar
á Hofsvallagötu, Snorrabraut og
Borgartúni eru því einungis for-
smekkur að því sem koma skal.
Hringbrautinni á að gera sömu skil
innan skamms, sem og Miklubraut,
frá Lönguhlíð að Kringlumýr-
arbraut. Suðurlandsbrautin verður
þrengd, fjórum mikilvægum sam-
gönguæðum borgarinnar verður
breytt úr stofnbrautum í tengibraut-
ir, tuttugu tengibrautir missa það
hlutverk sitt og akreinum Gull-
inbrúar verður fækkað úr fjórum í
tvær, en sú brú er lífæð borgarinnar
við tæplega tuttugu þúsund manna
íbúðarhverfi.
Hér er langt í frá allt upp talið, en
skemmdarstarfsemi af þessu tagi á
gatnakerfi borgarinnar á að halda
áfram þar til vélknúin ökutæki í
einkaeign verða nánast ónothæf í
borginni. Á sama tíma verður bíla-
stæðum alls staðar fækkað, hlutfall
gjaldskyldra stæða stöðugt aukið og
reynt að fá stórfyrirtæki til að rukka
starfsmenn sína fyrir að nota stæði í
eigu fyrirtækjanna. Þetta kann að
hljóma lygilega en er engu að síður
skýlaus stefna núverandi borgaryf-
irvalda eins og hún er sett fram í Að-
alskipulaginu.
Tímaskattur á einkalíf
og atvinnulíf
Þessi samgöngustefna er glóru-
laus. Hún mun innan tíðar leggja
óheyrilegan tímaskatt á einstaklinga
og fyrirtæki. Búast má við að ferða-
tími fólks til og frá vinnustað muni
tvöfaldast á næsta kjörtímabili. Í
mörgum tilfellum mun ferðatími
vinnandi fólks til og frá vinnustað
lengjast sem nemur öllu sumarfríi
þess á ársgrundvelli. Sami tíma-
skattur verður lagður á gjörvallt at-
vinnulífið. Samgönguhættir í borg-
inni verða færðir áratugi aftur í
tímann með tilheyrandi dreifing-
arkostnaði á alla vöru og þjónustu
sem á endanum lendir á almenningi.
Auk þess mun umferðarmengun
aukast meira en í réttu
hlutfalli við lengingu
ferðatímans, umferð-
arþunginn mun í sí-
auknum mæli færast
inn í íbúðarhverfi þar
sem börn eru að leik og
á leið til og frá skólum,
og öryggi borgaranna
verður stórlega skert
með mun lengri við-
bragðstíma slökkviliðs,
sjúkrabíla og lögreglu,
og með því að setja al-
mannavarnaráætlanir
um fjöldaflutninga og rýmingu íbúð-
arhverfa í fullkomið uppnám.
Vegið að almennings-
samgöngum í flugi
Núverandi borgaryfirvöld virðast
algjörlega ónæm fyrir öllum rökum
er hníga að öryggisþáttum borg-
arbúa og landsmanna. Þann 1. apríl
sl. samþykkti borgarstjórn að leggja
niður neyðarflugbraut Reykjavík-
urflugvallar í ársbyrjun 2015, með
tilheyrandi uppnámi fyrir allt
sjúkraflug. Þetta er liður í þeim ein-
dregna ásetningi borgaryfirvalda að
leggja Reykjavíkurflugvöll niður,
þrátt fyrir rúmlega 70 þúsund undir-
skriftir borgarbúa og landsmanna
um hið gagnstæða.
Íslendingar eru flugþjóð og
Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýri
er þeirra aðal „lestarstöð“. Flug-
félag Íslands er að sama skapi eitt
mikilvægasta fyrirtæki um almenn-
ingssamgöngur hér á landi, en um
flugvöllinn fara nú um 450 þúsund
farþegar árlega. Það er deginum
ljósara að hverfi flugvöllurinn úr
Vatnsmýrinni verður stoðunum
kippt undan rekstrargrundvelli
þessa mikilvæga fyrirtækis í al-
menningssamgöngum. Mikill meiri-
hluti þessara 450 þúsund flug-
farþega mun þá stíga upp í einkabíla
og aka mörg hundruð kílómetra milli
Reykjavíkur og fjarlægra landhluta
á óburðugum þjóðvegum landsins
með tilheyrandi slysatíðni og um-
ferðarmengun. Á sama tíma og
borgaryfirvöld telja það hlutverk
sitt að útrýma einkabílum í Reykja-
vík, vinna þau því markvisst að því
að stórauka umferð einkabíla á þjóð-
vegum landsins. Svona er nú sam-
ræmið í samgöngustefnu borgaryf-
irvalda.
Götuvígi um alla borg
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur
» Samgönguhættir í
borginni verða færð-
ir áratugi aftur í tímann
með tilheyrandi dreif-
ingarkostnaði á vöru og
þjónustu sem á end-
anum lendir á almenn-
ingi.
Marta Guðjónsdóttir
Höfundur er varaborgarfulltrúi og
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.