Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Brasilíumenn fögnuðu á sínum tíma
ákaft þegar ákveðið var að heims-
meistarakeppnin í fótbolta 2014 yrði
haldin þar í landi. Seldar hafa verið
nú þegar nærri þrjár milljónir miða
og er það nýtt sölumet á HM. En
fjáraustur vegna keppninnar, 3,6
milljarðar dollara, hefur breytt stöð-
unni. Nú segja 48% íbúanna að það
hafi verið góð hugmynd að fá keppn-
ina, hlutfallið var 79% árið 2008.
Margir eru fokreiðir og hótað er
hvers kyns mótmælum. Jafnvel lög-
reglan hótar verkfalli og strætó-
stjórar og stjórnendur járnbrauta
segjast ætla að lama samgöngur
fyrsta keppnisdaginn, 12. júní.
„Þetta getur orðið blóðugur júní,“
segir Guilherme Boulos, leiðtogi
samtakanna Heimilislausir verka-
menn. Þau hafa staðið fyrir fjölda-
mótmælum undanfarna tvo fimmtu-
daga í Sao Paulo, stærstu borg
Brasilíu. kjon@mbl.is
Hlakka
ekki leng-
ur til HM
Brasilíumenn sjá
eftir peningunum
AFP
Mótmæli Vegfarendur í Rio de Janeiro á leið fram hjá veggspjaldi með mynd af knattspyrnuhetjunni Neymar. Mál-
uð hefur verið á hann svört hetta eins og Svarta fylkingin, hreyfing sem berst gegn HM í Brasilíu, notar.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins
hittust á óformlegum fundi í Brussel
á þriðjudag og ræddu stöðuna eftir
kosningarnar til þings ESB um
helgina. Herman van Rompuy, for-
seti ráðherraráðsins, samkundu leið-
toganna, sagði í gær að umræðurnar
hefðu einkum snúist um mikinn
framgang flokka sem ekki styðja
sambandið. Sér hefði verið falið að
ráðgast við ESB-þingið um endur-
skoðun á starfsáætlun sambandsins
næstu fimm árin, einkum með það í
huga að efla hagvöxt.
Að öðru leyti virðist ekki hafa ver-
ið eining um viðbrögð enda skoðanir
leiðtoganna 28 mjög skiptar. David
Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði óhjákvæmilegt að
brugðist yrði við, ekki dygði að yppta
bara öxlum og halda áfram á sömu
braut. „Við þurfum nýtt markmið,
þar sem ESB einbeitir sér að því
sem skiptir máli,“ sagði hann. „ESB
á ekki að vera of stórt í sniðum, ekki
of ráðríkt og á ekki að blanda sér í
alla skapaða hluti.“
Helle Thorning-Schmidt, for-
sætisráðherra Danmerkur, orðaði
sömu hugsun með því að segja að
ESB ætti ekki að skipta sér af hlut-
unum eingöngu vegna þess að það
gæti það. Vandinn er, að sögn leið-
arahöfundar Jyllandsposten, að
framkvæmdastjórn ESB og þing
sambandsins vilja meiri samruna en
leiðtogarnir þurfa að taka tillit til
kjósenda, hjá þeim verði efasemdir
um stefnu sambandsins æ sterkari.
Hugsanlegt er að reglugerðum verði
fækkað og þær einfaldaðar og minni
áhersla verði nú lögð á aðhald í efna-
hagsmálum, að sögn BBC.
Nýr forseti framkvæmdastjórnar-
innar tekur senn við. Formlega er
það ráðherraráðið, helsta valda-
stofnun sambandsins, sem kýs hann
en þingið vill nú hafa hönd í bagga.
Jean-Claude Juncker frá Lúxem-
borg hefur stuðning margra hægri-
flokka. En hann er hins vegar mikill
samrunasinni og eru Bretar því and-
vígir honum. Hinn líklegasti fram-
bjóðandinn, þýski vinstrimaðurinn
Martin Schulz, segir að hlusta beri
betur á skoðanir þeirra sem gagn-
rýna sambandið.
Vilja endurskoða starfsáætlun
Ekki eining um viðbrögð við framgangi efasemdarmanna í ESB-kosningum
Herman van
Rompuy
David
Cameron
Maya Angelou,
einn þekktasti
rithöfundur úr
röðum blökku-
manna í Banda-
ríkjunum, er lát-
in, 86 ára að
aldri. Auk rit-
starfanna var
Angelou þekkt
fyrir að berjast
fyrir auknum borgararéttindum
svartra. Hún var prófessor við há-
skólann í N-Karólínu.
Angelou ólst upp við kröpp kjör,
kærasti móðurinnar nauðgaði
henni þegar hún var átta ára. Hún
sagði til hans og maðurinn var
drepinn. Hún varð þá sannfærð um
að rödd hennar ætti sök á dauða
hans. „Ég þagði í fimm ár,“ sagði
Angelou. Þekktust var Angelou fyr-
ir sjálfsævisögu sína, Ég veit af
hverju fuglinn í búrinu syngur.
kjon@mbl.is
Rithöfundurinn og
ljóðskáldið Maya
Angelou látin
BANDARÍKIN
Maya Angelou
Forseti rúss-
neska sjálfstjórn-
arlýðveldisins
Tsjetsjeníu,
Ramzan Kadý-
rov, vísaði því á
bug í gær að
tjsetsjenskir her-
menn berðust
með uppreisn-
armönnum, hlið-
hollum Rúss-
landi, í Úkraínu. Ef þar væru
einhverjir Tsjetsjenar væru þeir
þar á eigin ábyrgð.
Rússar háðu mannskæð stríð
gegn sjálfstæðissinnum í Tsjetsj-
eníu eftir hrun Sovétríkjanna.
Kadýrov, sem grunaður er um
tengsl við glæpasamtök, snerist að
lokum á sveif með Rússum. Hefur
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
látið honum eftir stjórn í héraðinu.
Þar beitir Kadýrov mikilli hörku en
hefur komið á sæmilegum friði.
kjon@mbl.is
Ekkert tsjetsjenskt
herlið í Úkraínu
Ramzan Kadýrov
FORSETI TSJETSJENÍU
Herforingjastjórnin í Taílandi segist
hafa látið lausa úr haldi 124 karla og
konur sem voru meðal þeirra 253
sem handtekin voru eða kölluð til yf-
irheyrslu í valdaráninu 22. maí. Eru
leiðtogar Rauðskyrtanna, sem styðja
fyrrverandi forsætisráðherra lands-
ins, Yingluck Shinawatra, nú frjálsir
ferða sinna en hafa þurft að undirrita
yfirlýsingu um að þeir muni ekki
taka þátt í pólitískum aðgerðum.
Yingluck er laus úr haldi en ferða-
frelsi hennar er nokkuð skert eins og
Rauðskyrtanna. Bhumibol, háaldr-
aður konungur landsins, lagði á
mánudag blessun sína yfir valdarán-
ið en hershöfðingjarnir sögðust hafa
gripið til þess til að koma á stöðug-
leika eftir margra mánaða óeirðir
sem kostuðu tugi manna lífið. Leið-
togi þeirra segir að tekið geti langan
tíma að koma aftur á lýðræði.
Viðskiptalífið er sagt vera að fær-
ast í eðlilegt horf en litlir hópar and-
stæðinga hershöfðingjanna hafa efnt
til mótmæla í Bangkok. Hermenn
hafa bundið enda á þær aðgerðir.
kjon@mbl.is
AFP
Þakklæti Stuðningsmaður hersins færir hermönnum í Bangkok rósir. Hers-
höfðingjarnir segjast ekki ætla að sætta sig við neinar mótmælaaðgerðir.
Liðsmenn Yingluck
lausir úr haldi