Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 77
77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Starfi Nýlistasafnsins áSkúlagötu lýkur með glæsi-brag á sýningunni æ ofaníæ þar sem sýnt er úrval
verka eftir Hrein Friðfinnsson,
ásamt samnefndri kvikmynd um líf
og list Hreins. Höfundar kvikmynd-
arinnar eru Markús Þór Andrésson
og Ragnheiður Gestsdóttir sem
jafnframt eru sýningarstjórar. Sýn-
ingin tengist Listahátíð í Reykjavík
því að meðan á hátíðinni stendur er
dagskrá sem samanstendur af ýms-
um viðburðum, þ. á m. sýning nýrra
vídeóverka eftir Hrein, gjörningur
Magnúsar Loga Kristinssonar, sem
leikur tvíburabróður Hreins í kvik-
myndinni, og sjónþing um sýning-
arframtakið.
Kvikmyndin er velheppnuð til-
raun til að fjalla með ferskum og ný-
stárlegum hætti um list Hreins – list
sem snýst að miklu leyti um óáþreif-
anlegar víddir tilverunnar – og því
felst talsverð áskorun í slíkri um-
fjöllun, hvort heldur sem er í formi
texta eða eftir öðrum tjáningar-
leiðum. Kvikmyndin æ ofaní æ er
listræn sköpun í sjálfri sér; þar
blandast saman skáldskapur og
raunveruleiki í mismunandi tíma og
rúmi – sem rúmast innan línulegrar,
en jafnframt brotakenndrar frá-
sagnar og tímaflakks kvikmynda-
formsins. Áhorfandinn sér þar tvær
útgáfur af Hreini, eina (leikna af
Magnúsi Loga) sem virðist tengjast
fortíð og öðrum landfræðilegum
stað en hin sem er Hreinn sjálfur
sitjandi við tölvu í herbergi í Amst-
erdam. Þar er hann í tengslum sím-
leiðis og rafrænt við önnur rými,
sum „frosin“ í tíma. Gluggi herberg-
isins er svo annar skjár út á götu-
lífið úti fyrir. Þegar tvíburinn birtist
þar í götunni, kemst rót á tímann
þrátt fyrir að önnur persóna í kvik-
myndinni – vísindakonan Aika (leik-
in af finnsku leikkonunni Kati Outl-
inin) á rannsóknarstofu tímans –
reyni allt hvað hún getur til að hafa
taumhald á honum. Kvikmyndin er
áferðarfalleg; litanotkun, hreyfing
og rýmishugsun markviss. Í henni
kemur tilveran fyrir sjónir sem í
senn hversdagsleg, töfrandi og dul-
arfull – rétt eins og hún birtist okk-
ur í listsköpun Hreins. Í kvikmynd-
inni eru vísanir í verk listamannsins
og þar með einnig í raunverulegan
en liðinn tíma sem nú er minning,
eins og hin útgáfan af Hreini virðist
öðrum þræði vera.
Á sýningunni sjálfri getur áhorf-
andinn virt fyrir sér ýmis verk frá
ferli Hreins sem flest tengjast kvik-
myndinni beint eða óbeint. Hann er
þá líkamlega staddur í sama rými og
verkin en kvikmyndin getur stuðlað
að því að ímyndunarafli áhorfandans
opnist leið inn í fortíðina (þegar
verkin urðu til) og slíkt ímyndað
rými á hann þá á vissan hátt sam-
eiginlegt með kvikmyndinni. Þessi
leikur með tíma og rúm er end-
urtekið stef í verkunum; hlutirnir
virðast eiga sér stað á sömu stund
en þó ekki. Á vegg getur að líta
verkið „Correspondence“ sem gert
er úr hversdagslegu efni og felur í
sér form- og litræna íhugun – en í
vídeóverkinu „Correspondence in
Red and Green (The Movie)“ kemur
að því er virðist merkingar- og til-
gangsþrunginn uppruni verksins í
ljós í atburðarás sem er bæði fárán-
leg og póetísk. Upp í hugann kemur
sýning Kristins E. Hrafnssonar í
Hverfisgalleríi fyrir skömmu með
fjórum ljósmyndum sem sýndu (frá
sjónarhorni ljósmyndarans) höfuð
Hreins snúast eins og tunglið á
sporbraut sinni um jörðu. Við hlið
hverrar ljósmyndar var ljósmynd,
tekin frá jörðu og á löngum tíma, út
í næturhimininn og alheiminn.
Myndirnar skerptu á misræminu í
skynjun mannsins (vegna þyngd-
araflsins) og ógnarsnúningshraða
jarðarkringlunnar. Í portrettverki
Kristins „birtist“ Hreinn okkur á
fjórum mismunandi augnablikum
mitt í þeim óskiljanlegu óravíddum
sem alheimurinn er – mitt í ráðgátu
og undursamlegri póesíu lífsins.
Þess má geta að Kristinn og Hreinn
áttu á dögunum áhugaverðan list-
rænan samleik í i8 galleríi í
Tryggvagötu en í listsköpun sinni
deila þeir heimspekilegum og vís-
indalegum áhuga.
Sýningin æ ofaní æ kveikir marg-
háttaða þanka um lífið, listina og
víddir tilvistarinnar. Sýningargest-
inum er boðið til þátttöku í sam-
hljómi og samtali milli kvikmyndar-
innar og verkanna á sýningunni.
Þannig fær hann örvandi innsýn í
listsköpun Hreins: vissulega má sjá
listamanninn sem tungl á eigin spor-
baug, sveipað dulúð og í sérstakri
afstöðu við þá jörð og það jarðlíf
sem það er þó nátengt. Slíka afstöðu
má lesa úr titli verksins „Tilraunir
til að tengjast óendanleikanum á
gólfi sem mun verða fjarlægt innan
skamms.“ Gólf þetta verður brátt
fjarlæg minning í sögu Ný-
listasafnsins.
Morgunblaðið/Einar Falur
Örvandi innsýn „Sýningin æ ofaní æ kveikir margháttaða þanka um lífið, listina og víddir tilvistarinnar. Sýning-
argestinum er boðið til þátttöku í samhljómi og samtali milli kvikmyndarinnar og verkanna á sýningunni.“
Í sömu andrá
Nýlistasafnið, Skúlagötu 28
Hreinn Friðfinnsson – æ ofaní æ
bbbbn
Hluti af Listahátíð í Reykjavík. Til 5. júní
2014. Opið þriðjud. – sunnud. kl. 12-17.
Aðgangur ókeypis. Sýningarstjórar:
Markús Þór Andrésson og Ragnheiður
Gestsdóttir.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Háskólakórinn hóf í gær árlega tónleikaferð sína, sem
að þessu sinni ber yfirskriftina Dansar og ástarkvæði,
með tónleikum í félagsheimilinu á Hvammstanga og í
kvöld heldur hann tónleika í Sauðárkrókskirkju kl. 20.
Einsöngvari er Guðmundur Davíðsson og stjórnandi
kórsins er Gunnsteinn Ólafsson. Annað kvöld heldur
kórinn tónleika í Siglufjarðarkirkju kl. 20 og á laug-
ardaginn í Dalvíkurkirkju kl. 16. Á efnisskrá kórsins
eru íslensk kórlög og útsetningar á íslenskum þjóð-
lögum.
Háskólakórinn í árlegri tónleikaferð
Tónleikaferð Háskólakórinn ásamt stjórnanda sínum, Gunnsteini Ólafssyni.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★ – BL, pressan.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Lau 31/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fös 30/5 kl. 20:00
Síðasta sýning!
Ferjan (Litla sviðið)
Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Mið 4/6 kl. 20:00 35.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas Fim 12/6 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k Fös 13/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið)
Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00