Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 Hljómsveitin GusGus mun hita upp á tón- leikum Justins Timber- lake 24. ágúst í Kórn- um í Kópavogi, auk bandaríska plötusnúð- arins Dj Freestyle Steve, skv. tilkynningu frá Senu. Mexico, næsta breiðskífa Gus- Gus, mun koma út á Ís- landi 11. júní, tveimur vikum áður en hún verður gefin út erlend- is og eitt lag af plöt- unni, „Crossfade“, hef- ur þegar verið gefið út á smáskífu. Síðasta breiðskífa GusGus, Arabian Horse, kom út fyrir þremur árum. GusGus hitar upp fyrir Timberlake Mexico Kápa næstu plötu GusGus. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sorrí nefnist nýútkomin plata Prins Póló, þ.e. tónlistarmannsins, fjár- bóndans og bulsugerðarmannsins Svavars Péturs Eysteinssonar sem semur öll lög og texta auk þess að sjá um hljóðfæraleik, söng, upp- tökustjórn, hljóðblöndun og hönn- un. Einn lagatexta samdi Svavar þó ekki, við lagið „Kosmós“ en þann texta á Pétur Már Gunnarsson. Vinna við plötuna hófst í byrjun árs 2012 og hafa sum laga hennar þegar komið út og þá einsömul, eins og Svavar orðar það. Má þar m.a. nefna „Bragðarefi“, „Tipp Topp“ og „Landspítalann“. Ýmsir lögðu Svav- ari lið við gerð plötunnar, bæði við flutning laga og tæknivinnu á borð við hljóðritun og tónjöfnun og má þar nefna Árna Rúnar Hlöðversson, Axel Flex Árnason og Berglindi Häsler, betri helming Svavars. Fallegur bolur Blaðamaður sló á þráðinn til Svavars sem býr með fjölskyldu sinni á Karlsstöðum í Berufirði og spurði hann fyrst hvaðan plötutitill- inn kæmi. „Ég hitti fallega smiðinn, sem er Pétur Magnússon, smiður í Bol- ungavík, á förnum vegi rétt eftir að ég gaf út síðustu plötu og hann var í appelsínugulum Svala-bol. Mér fannst þetta mjög fallegur bolur vegna þess að ég kalla mig stundum Svala, það kemur fyrir að ég kvitti undir „Svali“ á góðum degi. Ég sagði honum að ég gæti vel hugsað mér að klæðast þessum bol við tækifæri og einhverjum vikum síðar kom hann til mín með bolinn inn- pakkaðan í gjafapappír og bað mig að undirrita skjal. Á því kom fram að ef ég myndi þiggja þessa gjöf þyrfti ég að nefna næstu plötu Prins Póló í höfuðið á honum. Mig langaði svo í þennan bol að ég þáði gjöfina og kvittaði undir. Svo fór Pétur á brott með skjalið og löngu síðar, ár- ið 2012, fór ég að gera plötu. Hún var tilbúin tveimur árum síðar og þá hét hún bara Sorrí af því hún gat ekki heitið í höfuðið á Pétri. Það hafði það mikið vatn runnið til sjáv- ar að ég varð að svíkja þetta lof- orð,“ segir Svavar. Með plötuheitinu biðji hann fallega smiðinn afsökunar á samningsbrotinu sem og með fyrsta laginu á plötunni, „Fallegi smiðurinn“. Svavar segist vera að leita sér að smiði en líklega sé svo mikið að gera hjá Pétri eftir að lagið um hann kom út að ómögulegt sé að fá hann til að rétta nagla, hvað þá meira. Kóróna fyrir hverja tónleika – Er Prins Póló aukasjálf þitt eða hvernig varð hann til? „Það var þannig að ég bjó á Seyð- Fallegi smiðurinn beðinn afsökunar  Prins Póló sendir frá sér breiðskífuna Sorrí  Pétur Magnússon, smiður í Bolungavík, fær lag í sárabætur fyrir samningsbrot  Tónlistin dansvæn sem fyrr en hefur þó harðnað með árunum Sorrí Prins Póló með nýjustu afurð sína, Sorrí, sem hefur að geyma ný lög og önnur sem komið hafa út einsömul. isfirði með fjölskyldunni, 2008-9 og setti upp stúdíó í kjallara hússins sem við bjuggum í og var með óskrifað blað um hvernig músík ég ætlaði að gera. Ég byrjaði að gera músík án formerkja og það sem kom út úr því var pínu sjoppulegt, það var einhver sjoppustemning í þessu, svona nýbylgju-sveita- ballastemning. Svo fór ég út í sjoppu, keypti mér Prins Póló og skírði verkefnið því nafni,“ segir Svavar sem ber alltaf forláta papp- írskórónu þegar hann er í hlutverki prinsins. „Ég bý alltaf til nýja kór- ónu fyrir hverja tónleika og þegar vel liggur á mér reyni ég að aðla einhvern inn í hirðina, veiti honum kórónu og aðalstign.“ – Nú er þetta popptónlist, gróft skilgreint og ansi dansvæn, mikið um dansvæna takta í lögunum ... „Já, einhvern tíma þegar við vor- um að halda tónleika fór fólk að dansa og ég hafði aldrei lent í því áður, fannst ansi athyglisvert að hreyfa fólk með dansi. Ég ákvað að halda í þá stemningu og hef reynt að gera meira úr því en minna,“ segir Svavar. Tónlist Prins Póló hafi harðnað með árunum. Svavar segist þó ekki meðvitað semja lög sem hægt sé að dansa við heldur þróist þau ómeðvitað í þá átt. Vakúmpakkað líf Textar Prins Póló eru býsna súr- realískir á köflum og meinfyndnir en einn stingur þó í stúf á plötunni, við lagið „Vakúmpakkað líf“. Í hon- um má finna harða gagnrýni á kjötát og segir m.a: „Þau myrtu þig/ til að seðja mig. Leifarnar af dráp- inu/ í kæliborðinu. Er nauðsynlegt að éta þau?“ „Það er svolítið grimmt lag,“ segir Svavar kíminn þegar blaðamaður nefnir þetta til- tekna lag. „Sigvaldi Ástríðarson, formaður Samtaka grænmetisætna á Íslandi, hrópaði mikið húrra yfir þessu lagi,“ bætir Svavar við og segist hafa samið lagið í bílnum þegar hann var að keyra heim frá Drangsnesi um síðustu jól þar sem allsvakalegt kjötát hafði verið stundað. „Þetta er náttúrlega svakaleg kjöthátíð, búið að vakúm- pakka ansi mörgum lífum og mér var þetta mjög hugleikið. Ég fór bara að raula þetta lag, mjög mörg lög verða til hjá mér undir stýri því ég bý úti í sveit og er alltaf að keyra langar leiðir án þess að stoppa. Undir slíkum kringumstæðum verða oft til heilu lögin og þetta er eitt af þeim,“ segir Svavar. Hann hafi sungið lagið í símann sinn og farið beint í hljóðver að takak það upp þegar heim var komið. Svavar mun ekki halda formlega útgáfutónleika vegna plötunnar en Prins Póló mun hins vegar troða upp á Sumarmölinni, tónlistarhátíð sem haldin verður á Drangsnesi 14. júní. Þá mun hann einnig troða upp á LungA, listahátíð unga fólksins á Seyðisfirði, 19. júlí og frekara tón- leikahald á landsbyggðinni er fyr- irhugað á komandi misserum. Hvað ertu að bauka? Setja niður lauka gera klárt fyrir vorið skella sér í slorið. Mikið hlakka ég til það hlakkar í mér. Krakkarnir saman að gera eitthvað gaman. Við negrarnir hegrarnir frændurnir. Diffrun og tegranir engar helvítis megranir. Við erum óþokkar löðrandi af kynþokka. Við erum melirnir og syndaselirnir. Gleypum nokkrar ellur og grillum saman gellur. Förum á þjóðhátíð í Eyjum áður en við deyjum. Við erum ótrúlega nettir íllaðir kettir og ansi vel í sveit settir. Við keyrum flotta bíla og notum endaþarmsstíla innflutta frá Kína massadrullufína. Bragðarefir TEXTABROT AF SORRÍ www.prinspolo.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.