Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 58
Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 hberg@hberg.is | hberg.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Við Reykjavíkurhöfn, mitt á milli Kolaportsins og Hörpu, stendur lítill grænn skúr merktur Rent a Rod Reykjavík. Eins og nafnið gefur til kynna er þar hægt að leigja veiðistöng og eiga notalega stund dorgandi af hafn- arbakkanum. Jakob Hrafnsson stofnaði Rent a Rod Reykjavík sumarið 2013. „Ég bjó í Vesturbænum sumarið áður og var að ganga um hafnarsvæðið með dóttur minni Elínu Maríu, sem þá var 8 ára. Sjórinn var spegilsléttur, glampandi sól og fallegur sumar- dagur í alla staði, og þegar komið var út að höfninni sáum við hvar fiskarnir syntu þar um. Elínu datt í hug að gæti verið gaman að reyna að veiða fisk og mér leist vel á hug- myndina,“ segir Jakob sem sjálfur hefur lengi verið veiðimaður og starfað sem leiðsögumaður. „En ég áttaði mig um leið á að það væri töluverð fyrirhöfn að þurfa að fara alla leið heim og grafa upp veiðigræjurnar. Ég fór að hugsa með mér hvað það væri nú gott ef hægt væri að finna einhvern þarna á svæðinu til að einfaldlega leigja veiðistöngina af á fljótlegan og ein- faldan hátt.“ Eru að komast á kortið Gekk Jakob með hugmyndina í maganum yfir veturinn og lét verða af því að hefja rekstur ári síðar, eftir að hafa fengið grænt ljós hjá Faxa- flóahöfnum. Hann segir hafa gengið ágætlega til þessa, reksturinn standi nokkurn veginn undir sér og fari vaxandi. „Það tekur ákveðinn tíma að koma þjónustu af þessu tagi á kortið hjá bæði heimamönnum en ekki síður ferðamönnum. Fólk þarf að læra að við erum til staðar og er- um ekki á förum, og þá fara fleiri að gera ráð fyrir heimsókn til okkar þegar leiðin liggur niður í miðbæ- inn.“ Leigan á veiðistönginni kostar 2.990 kr. fyrir klukkustundina og fylgir með poki af rækjum til að nota sem agn, sökkur og spúnn. „Til að hafa þetta einfalt og allt uppi á borð- um fylgir með stönginni allt sem þarf til að dorga og gengið út frá því að tveir deili hverri stöng svo að sé t.d. ekki of dýrt fyrir foreldri og barn að koma saman til að dorga.“ Hjálpa byrjendum af stað Starfsmaður á vakt veitir þeim sem vilja leiðsögn og aðstoð við að byrja veiðarnar. Segir Jakob að við- skiptavinir Rent a Rod Reykjavík séu fjölbreytilegur hópur með mis- mikla veiðireynslu. „Kúnnahópurinn skiptist nokkurn veginn til helminga á milli Íslendinga og erlendra ferða- manna. Ófáir eru fjölskyldufólk sem er að skoða miðbæinn með börn- unum en hingað koma líka stórir og smáir hópar fullorðinna sem langar að staldra við og reyna eitthvað nýtt, og oft starfsmannafélög. Að taka stutt dorg í Reykjavíkurhöfn getur verið hluti af hefðbundinni ferð í bæ- inn, þar sem öndunum er gefið brauð, pylsa keypt hjá Bæjarins bestu og litið inn í Hörpu, en dorgið getur líka verið skemmtilegt krydd t.d. fyrir starfsmannahópinn til að fá ferkst sjávarloftið í lungun og reyna að fá fiskinn til að bíta á agnið áður en haldið er á veitingastað í kvöld- verð, í leikhús eða á tónleika.“ Yfir sumarið er opið frá kl. 10-18 virka daga og um helgar frá 11-17 og hægt að hafa opið lengur fyrir hópa eftir samkomulagi. Það er ekki flókið að dorga, að sögn Jakobs, og mjög skemmtileg iðja. „Það er skrítið að dorgið virðist hafa lagst af hér á suðvesturhorninu en er meira stundað úti á lands- byggðinni. Þegar ekið er eftir hring- veginum og farið niður að bryggju má þar oft finna einhvern dorgandi, og í borgum Evrópu er jafnan þétt settinn bryggjukanturinn eða brýrn- ar þar sem hægt er að dorga.“ Jakob grunar að lítil dorghefð í borginni skrifist kannski á það hvað við eigum góðar veiðiár. „Það er náttúrlega eitthvað sem aðrar þjóðir hafa ekki, að það sé nánast bara fimm mínútna ferðalag í ágæta sil- ungs- eða laxveiðiá, sama hvar þú býrð, eða hægt um vik að halda út á sjó og veiða þar meira en nóg af fiski í soðið.“ Marhnútar og laxar Segir hann fiskana í Reykjavíkur- höfn vera vel á sig komna og af ýms- um tegundum. „Það er hluti af spennunni að þú veist aldrei hvað bítur á. Hér hafa veiðst þorskar, kol- ar og ufsar, ófrýnilegir marhnútar, en líka makríll og stórvaxnir laxar.“ Flestir sleppa fiskinum en sumir vilja taka veiðina með sér heim og segir Jakob að fiskurinn í höfninni eigi að vera fínn í ofninn eða á grillið. „Hafið umhverfis Reykjavík er hreint, og þó svo að umferð skipa og ýmis starfsemi í höfninni kunni endrum og sinnum að menga út frá sér þá eiga sér stað stöðug vatns- skipti með flóði og fjöru.“ Minnir Jakob á að dorgið snúist annars umfram allt um að taka það rólega í stutta stund og njóta þess að vera til. „Margir láta einfaldlega fara vel um sig á hafnarbakkanum næst græna skúrnum okkar, á með- an aðrir rölta um hafnarsvæðið og reyna að finna hinn fullkomna veiði- stað, jafnvel úti á varnargarðinum. Svo er bara að prófa, spjalla við veiðifélagana og fylgjast með hvern- ig gengur, kannski gæða sér á hress- ingu úr sjoppunni okkar og fylgjast með mannlífinu og náttúrunni á hafnarsvæðinu.“ Laxar og þorskar hafa bitið á  Nýtt fyrirtæki leigir veiðistangir og allt tilheyrandi fyrir dorgveiðar á besta stað við Reykjavíkurhöfn  Bæði heimamenn og erlendir gestir hafa gaman af að taka stutt dorg í miðborgarferðinni og nóg er af fiski Morgunblaðið/Árni Sæberg Upplifun „Að taka stutt dorg í Reykjavíkurhöfn getur verið hluti af hefðbundinni ferð í bæinn, þar sem öndunum er gefið brauð og pylsa keypt hjá Bæjarins bestu,“ segir Jakob Hrafnsson hjá Rent a Rod Reykjavík. Flugur Veiðistangaleigan er með allt til alls og starfsmaður veitir ráðgjöf. SUMARIÐer tíminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.