Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
TILBOÐ
EX20
skrifstofustóll
ALMENNT VERÐ
95.026 kr.
TILBOÐSVERÐ
66.518 kr.
Hæðarstillanlegt bak
Armar hæða- og
dýptarstillanlegir
Dýptarstilling á setu
Hallastilling á baki,
fylgir hreyfingu notanda
Hæðarstilling setu
Mótstöðustilling fyrir
mismunandi þyngd notanda
Sjálfstæð „fljótandi“
hallastilling setu fylgir hreyfingu
notandans
Mjúk hjól
STOFNAÐ 1956
Íslensk
hönnun
& handverk
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Auðvitað er mikil vinna að stýra
stóru fyrirtæki og dagurinn er oft
langur. Vona þó að í sumar verði
laus stund svo ég komist nokkra
daga í vegavinnu með strákunum.
Geti verið á vörubílnum eða í öðrum
verkefnum þar sem mannskap þarf
á. Slíkt væri góð tilbreyting,“ segir
Óskar Sigvaldason framkvæmda-
stjóri Borgarverks ehf. í Borgarnesi.
Í byrjun þessa mánaðar gengu í
gegn kaup Borgarverks á hluta af
starfsemi Ræktunarsambands Flóa
og Skeiða ehf. á Selfossi. Bæði fyr-
irtækin eru gamalgróin og í áranna
rás hafa stjórnendur þeirra róið á
svipuð mið, sinnt jarðvinnu, vega-
gerð og lagt klæðningar á þjóðvegi.
Vesturland hefur verið heimavöllur
Borgarverks en framkvæmdir á
Suðurlandi verið þunginn í starfsemi
Ræktunarsambandsins.
Skapar möguleika
Rekstur Ræktó – eins og Selfoss-
fyrirtækið er jafnan kallað – hefur
verið þröngur síðustu ár og ýmis
vandi steðjað að. Þreifingar hafa
verið um sölu um skeið og varð lend-
ingin sú að Borgarverk keypti jarð-
vinnu- og klæðningardeildir. Jóhann
Ólafsson, sem rekur Viðskiptahúsið
ehf., tók svo þann partinn sem snýr
að jarðborunum.
„Þessi kaup skapa okkur ýmsa
möguleika. Nýting á tækjum og
mannskap verður betri og starfsem-
in eflist,“ útskýrir Óskar Sigvalda-
son. Bætir við að menn í verktaka-
starfsemi hafi lengi vitað að
breytingar væru í aðsigi hjá Ræktó.
„Við sáum möguleika á samlegð-
aráhrifum og hagræðingu og
ákváðum að nýta þá.“
Mætast austur á landi
Höfuðstöðvar Borgarverks verða,
segir Óskar, í Borgarnesi. Á Selfossi
verður þó áfram öflugur rekstur
með 15 til 20 starfsmönnum. Stað-
setningu starfsstöðva segir hann þó
ekki aðalatriðið, enda séu verkefnin
víða um land. Þar megi nefna veg-
klæðningar sem bæði Borgarverk og
Ræktó hafa með höndum. Samein-
aður rekstur muni sinna þeim með
þremur vinnuflokkum, mannskap
sem þegar er farinn út á þjóðvegina.
Í hverjum klæðningaflokk eru tíu til
tólf menn með tjörubíla, vörubíla,
valtara, sópara og fleiri tæki.
„Við stillum þessu þannig upp að
einn flokkurinn sér um Snæfellsnes,
Dali og Vestfirði, sá næsti fer úr
Borgarfirði norður í land og strák-
arnir frá Selfossi taka hringinn
rangsælis og mæta Borgfirðing-
unum austur á landi,“ segir Óskar.
Gatnagerð og breikka vegi
Samningar Vegagerðarinnar við
Borgarverk eru þeir að fyrirtækið
mun í ár leggja slitlag á alls 280 km.
eða 1,9 milljón fermetra. Raunar eru
Borgarverksmenn með fleiri járn í
eldinum. Eru þessa dagana að
breikka hringveginn efst í Norður-
árdal við sporð Holtavörðuheiðar.
Þegar því sleppir svo tekur upp-
bygging Svínvetningabrautar við
Blönduós við. Einnig uppbygging
vegar að nýrri brú við Reykjadalsá í
Dölum. Þá er fyrirtækið í ýmsum
verkefnum við gatnagerð og fleiru
slíku, t.d. í Borgarnesi og á Selfossi.
„Þegar við sáum að þessi kaup
færu í gegn var sett vinna í að út-
vega fleiri verkefni, sem tókst. Í
sumar verða hjá okkur 55 til 60
manns í vinnu og nóg framundan.“
Starfsemi í 40 ár
Það var árið 2005 sem Kristinn
Sigvaldason og Óskar Sigvaldason –
sem ekki eru bræður – keyptu ráð-
andi hlut í Borgarverki ehf. af Sig-
valda Arasyni, föður Óskars. Um
Sigvalda er það að segja að hann
stofnaði fyrirtæki sitt árið 1974.
Hafði þá gert út vörubíla og vinnu-
vélar frá 1955. Hann á nú 17% hlut í
Borgarverki.
„Ég sogaðist strax sem strákur
inn í þennan bransa og fann mig þar.
Byrjaði á skóflunni, var svo á tækj-
um en hef síðustu 10 –15 árin að
mestu verið í stjórnun. Svona rekst-
ur er viðamikill. Tilboðsgerð er
tímafrek og verkkaupar gera æ
meiri kröfur,“ útskýrir Óskar.
Aldrei á rétta staðnum
Það var ögrun að sigla fyrirtæk-
inu út úr hruninu, segir Óskar.
Borgarverksmenn hafi þó verið
heppnir. Stórt verkefni fyrir Orku-
veitu Reykjavíkur, sem var bygging
dælustöðva við sveitaþorpin í Borg-
arfirði sem unnið var að 2008 til
2010, hafi tryggt tekjustreymi.
„Yfirtaka eins og nú, þegar við
kaupum hluta af starfsemi Ræktó,
er vandaverk, og að mörgu er að
hyggja þegar starfsemin er á tveim-
ur stöðum. Stundum hef ég sagt að
maður sé aldrei á rétta staðnum
þegar ný viðfangsefni koma upp,
hvar sem það er á landinu,“ segir
Óskar að síðustu.
Dagar á vörubíl eru góð tilbreyting
Borgarverk ehf. í Borgarnesi færir út kvíarnar Kaupir jarðvinnu og klæðningaflokk á Selfossi
Betri nýting fæst með kaupunum á mannskap og tækjum Mikil umsvif og verkefnin um allt land
Framkvæmdir Frá vegagerð norður í Strandasýslu á síðasta ári.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Athafnamaður „Þegar við sáum að þessi kaup færu í gegn var sett vinna í að útvega fleiri verkefni, sem tókst. Í
sumar verða hjá okkur 55 til 60 manns í vinnu og nóg framundan," segir Óskar Sigvaldason framkvæmdastjóri.
Velta Borgarverks síðustu árin hefur verið að jafnaði
800 til 900 milljónir króna. Með kaupunum á jarð-
vinnu- og klæðningaflokknum á Selfossi reiknar Ósk-
ar Sigvaldason með að veltan verði rúmur milljarður
kr. „Afkoman í fyrra var góð. Viðhald á þjóðvegunum
hefur mætt afgangi síðustu ár. Nú þarf að bæta þar úr
og þá munar um að vera með þrjá klæðningaflokka.
Sömuleiðis er ávinningur að því að nema land á Sel-
fossi, enda er Árborg vaxandi sveitarfélag. Og þegar
íbúum fjölgar krefst það þess að hafist sé handa um
verklegar framkvæmdir,“ segir Óskar.
Klæðningaflokkurinn á Selfossi var í vikunni við
störf við Eyrarbakka.. „Það eru níu karlar í þessu gengi og sá sem lengst-
an starfaldurinn hefur er búinn að vera í þessu frá 1979. Ég frá 1991 og sá
sem skemmst hefur verið er búinn með þrjú ár. Það er munur fyrir mig
sem stjórnanda að vera með svona þrælvana menn. Þetta gengur vel,“
segir Eyjólfur Kristmundsson verkstjóri.
Verklegar framkvæmdir af
stað þegar íbúum fjölgar
VELTAN Á ÁRINU VERÐUR UM EINN MILLJARÐUR KR.
Vegurinn Í sumar gerir Borgarverk út þrjá klæðningaflokka, einn tekur vestanvert
landið, annar fer norður og sá þriðji er á Suðurlandi. Myndin er úr Þjórsárdalnum.
Eyjólfur
Kristmundsson