Morgunblaðið - 29.05.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 2. júní, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes S. Kjarval
Verkin verða sýnd föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Perlur
Einstakt uppboð
á íslenskum
meistaraverkum
Jón Magnússon, fyrrverandi al-þingismaður, bendir á alþekkt-
an tvískinnung:
Hinir umburð-arlyndu í
Bjartri framtíð,
Vinstri grænum og
Samfylkingunni
hafa undanfarið
hneykslast á oddvita Framsóknar í
borgarstjórn fyrir efasemdir um
lóðaúthlutun fyrir mosku í Reykja-
vík.
Vilhallir fréttamenn þessa„umburðarlynda og víðsýna
fólks“ hafa elt uppi forystumenn
Framsóknarflokksins til að kreista
fram fordæmingu á flokkssystur
sinni.
Ummæli sem fréttahaukarnirtelja bera augljósan vott um
rasisma og þjóðernisofstæki.
Samt sem áður hefur oddvitiFramsóknar ekki mælt styggð-
aryrði um múslima eða veist að
trúarskoðunum þeirra eftir því sem
ég veit best. Á sama tíma er upplýst
að Kristín Soffía Jónsdóttir fram-
bjóðandi Samfylkingarinnar í
Reykjavík hefur látið frá sér fara
mun alvarlegri ummæli um trúar-
hóp en oddviti Framsóknar um
múslima. Svo bregður hins vegar við
að reynt er að þagga það niður og
forystumenn Samfylkingarinnar eru
ekki eltir á röndum til að fá afstöðu
þeirra til ummæla Kristínar Soffíu
Jónsdóttur.
Ummæli Kristínar Soffíu sem hérer vikið að um Aust-róm-
versku kaþólsku kirkjuna eru: „Öm-
urlegt að Reykjavíkurborg sé búin
að úthluta lóð til þessa skítasafn-
aðar. Þessi söfnuður má fokka sér.““
Hún er í Samfylkingunni, húnmá, segir „RÚV“.
Jón Magnússon
Með leyfi RÚV
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.5., kl. 18.00
Reykjavík 12 léttskýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 15 léttskýjað
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 8 skúrir
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 léttskýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 7 skúrir
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 15 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 15 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 12 súld
Hamborg 11 skýjað
Berlín 10 alskýjað
Vín 15 skýjað
Moskva 17 alskýjað
Algarve 22 skýjað
Madríd 21 skýjað
Barcelona 18 súld
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 13 alskýjað
Chicago 18 skýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:30 23:21
ÍSAFJÖRÐUR 2:54 24:07
SIGLUFJÖRÐUR 2:35 23:52
DJÚPIVOGUR 2:50 22:59
Vegna anna hjá
starfsmönnum
Ríkisendurskoð-
unar hefur ekki
verið hægt að
tímasetja verk-
lok rannsóknar
stofnunarinnar á
máli Seðlabanka
Íslands varðandi
málskostnað Más
Guðmundssonar
seðlabankastjóra.
Eftir að fram komu upplýsingar
um að bankinn hefði greitt máls-
kostnað seðlabankastjóra vegna
málsóknar Más gegn bankanum fór
bankaráð Seðlabankans fram á
rannsókn, en Már hafði stefnt bank-
anum vegna lækkunar á launum
sínum. Rannsókn Ríkisendurskoð-
unar, sem sögð er vera talsvert um-
fangsmikil, hófst um miðjan mars
síðastliðinn.
Verklok ekki tíma-
sett vegna anna
Úttekt á málinu
stendur enn yfir.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Lokatónleikar Karlakórs Hreppa-
manna verða haldnir í Gamla bíói í
Vestmannaeyjum 31. maí en þeir
eru hluti af tónleikaferðalagi kórsins
sem ber heitið „Nú sigla svörtu skip-
in“. Tónleikar verða einnig haldnir í
Grindarvíkurkirkju í kvöld klukkan
20 en tónleikarnir eru að sögn Helga
Más Gunnarssonar, formanns kórs-
ins, óður til hafsins og sjómennsk-
unnar. Bakgrunnur meðlima kórsins
liggur þó ekki þar. „Þetta er gamall
draumur stjórnanda okkar (Editar
Molnár, innsk. blm.) en henni þykir
sjómennskan á Íslandi vera afar
heillandi. Okkur þótti það svolítið
skemmtileg hugmynd að taka þetta
verkefni fyrir þar sem við búum í
sveitum lengst frá sjó. Einhverjir
okkar hafa þó farið á vertíð eða eitt-
hvað annað í þeim dúr svo við erum
ekki alveg ókunnugir sjómennsk-
unni,“ segir Helgi.
Eins og fyrr kom fram liggur bak-
grunnur meðlima ekki í sjómennsku
en meirihluti þeirra er bændur.
Sauðburður hefst yfirleitt í fyrra
hluta maí en að mörgu er að hyggja í
sauðburði og mikil vinna fylgir hon-
um. Aðspurður hvernig gengið hefur
að samtvinna störf kórsins með
þeirri vinnu segir Helgi: „Það hefur
verið smávegis vesen fyrir okkur að
manna þetta. Okkur hefur samt al-
veg tekist að bjarga þessu og nú er
bara endaspretturinn eftir hjá flest-
um,“ segir hann.
Réðu leikara og leikstjóra
Tónleikaferðalagið hófst í byrjun
apríl í Reykjavík en síðan þá hefur
kórinn sungið bæði á Flúðum og
Stokkseyri. „Við náðum að troðfylla
félagsheimilið á Flúðum á okkar
heimaslóðum. Svo komum við fram á
Stokkseyri í tengslum við bæjar-
hátíð sem haldin var þar fyrr í vor
en þeir tónleikar voru mjög vel sótt-
ir. Í því verkefni vorum við í sam-
starfi við Árborg og erum mjög
ánægðir með útkomuna,“ segir
Helgi.
Kórinn fékk til liðs við sig Gunnar
Björn Guðmundsson leikstjóra og
Magnús Guðmundsson leikara til að
gera viðfangsefninu enn betri skil en
í útfærslunni flytur Magnús ræður
sínar á milli söngatriða í sjómanns-
klæðum.
„Þetta hefur komið vel út og gest-
um hefur þótt þetta vera skemmti-
legt uppátæki. Menn voru kannski
svolítið hissa á fyrstu tónleikunum
en síðan hefur þetta bara gengið
vel,“ segir Helgi.
Bændur syngja óð til sjómennsku
Ljósmynd/Lýður Geir Guðmundsson
Karlakór Hreppamanna Hér má sjá mynd af kórnum í Eyrabakkafjöru.
Karlakór Hreppamanna heldur
tónleika víðsvegar um landið