Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Þú ferð aftur í tímann oghorfir á heiminn út frádraumsýn nítjándu ald-arinnar,“ útskýrir Ingi-
mar Oddsson, rithöfundur og
skrímslasetursstjóri á Bíldudal,
þegar hann er spurður um gufu-
pönk eða steampunk eins og það
kallast á ensku.
Fyrsta gufupönkhátíðin verður
haldin í sumar, 27.- 9. júní, í
Vesturbyggð og má segja að Ingi-
mar sé forsprakki hátíðarinnar,
enda mikill áhugamaður um hug-
arheim manna á nítjándu öld.
„Gufupönkið kemur frá rithöfund-
um eins og Arthur Conan Doyle,
Jules Verne og H.G. Wells.
Síðan gerist það í kringum
1984 að þetta orð, steampunk,
verður til í framhaldi af cyberpunk
sem var eins konar framtíðarstíll
en gufupönkið skar sig frá með því
að fara í afturhvarf til fortíðar og
horfa á framtíðina með augum
nítjándu aldar Viktoríuímabilsins,“
segir Ingimar.
Gufudót eða gufudrasl
Hátíðin í Vesturbyggð tekur
mið af þessum þankagangi og ef
einhver hélt að hér væri um tón-
listarhátíð að ræða, innblásna af
pönkstefnunni, þá er það af og frá
en nafnið gufupönk getur villt um
fyrir þeim sem það ekki þekkja.
„Ég held að pönk megi útfæra á ís-
lensku sem dót eða drasl og ef
maður kallaði þetta gufudót eða
gufudrasl, myndi það kannski
skýra stefnuna betur,“ segir Ingi-
mar.
Þegar skáldverk nítjándu ald-
ar eru skoðuð út frá gufupönkinu
má greina að menn hafi séð fyrir
sér að þeir ferðuðust um í loft-
skipum, uppáklæddir með pípu-
hatta og stór gleraugu.
„Menn ímynduðu sér jafnvel
að reiðhjól myndu knýja flugvélar
og gerðu sér hugmyndir um að vél-
in myndi losa manninn undan öllu
erfiði og framtíðin væri mjög björt.
Vélin sem slík var upphafin. Hún
var máluð og pensluð en í dag setj-
um við bara plast yfir allt,“ segir
hann.
Rýnt í gufupönkið
á Vestfjörðum
Það kann að hljóma undarlega að tala um afturhvarf til framtíðar. Þó er það alls
ekki svo galið þegar nútímatækni og klassísk fagurfræði nítjándu aldarinnar eru
verkfærin í þessu afturhvarfi. Hugmyndir manna á gufuöld um framtíðina voru
æði magnaðar og skrautlegar en þær verða í forgrunni á mikilli hátíð á Vest-
fjörðum í næsta mánuði þar sem konungsríkið Bíldalía tekur völdin.
Ljósmynd/Jón Arnarson
Konungur Bíldalíu Gufupönkið ein-
kenndist af því að horft var á fram-
tíðina með augum Viktoríutímabils-
ins og traust lagt á vélarnar sem
lausn undan erfiði.
Nú getur landsbyggðarfólk sannar-
lega glaðst því næsta sunnudag verð-
ur lagt af stað hringinn í kringum Ís-
land með gæðakvikmyndir frá Evrópu
í farteskinu. Þessi evrópska kvik-
myndahátíð er á vegum Evrópustofu
og Bíó Paradísar og stendur til 10.
júní. Komið verður við á Ólafsvík,
Hólmavík, Súðavík, Blönduósi, Húsa-
vík, Vopnafirði, Djúpavogi, Vík og á
Flúðum. Enginn aðgangseyrir verður á
hátíðina og myndirnar sem sýndar
verða eru þrjár. Antboy, margverð-
launuð dönsk fjölskyldumynd sem
segir frá 12 ára strák sem er bitinn af
maur og öðlast við það ofurhetju-
krafta. Vert er að taka fram að hún er
talsett á íslensku. Í íslensku kvik-
myndinni Málmhaus segir frá ung-
lingsstúlkunni Heru sem kennir sér
um dauða bróður síns og í sorginni
finnur hún sáluhjáp í þungarokki og
dreymir um að verða rokkstjarna. Bro-
ken Circle Breakdown er belgísk kvik-
mynd sem hefur farið sigurför um
heiminn, en þar segir frá ástum Elise
og Didier, hún á húðflúrsstofu og hann
spilar á banjó í blágresisbandi. Óvænt
ógæfa leikur þau grátt og reynir á
samband litlu fjölskyldunnar. Hring-
ferðin hefst með hátíðarsýningu í Hlé-
garði í Mosfellsbæ nú á sunnudag kl
14:30 þar sem Antboy verður sýnd.
Kaffiveitingar verða í boði og allir eru
velkomnir. Bíó Paradís kom sér nýver-
ið upp fullkomnum stafrænum sýn-
ingarbúnaði sem nýttur verður í hring-
ferðinni, sýningargæðin verða því í
hæsta gæðaflokki. Hægt er að fylgjast
með ferðalaginu á Facebooksíðunni:
EvropskKvikmyndahatid. Áætlanir um
hringferðina hafa vakið athygli, blaða-
maður breska dagblaðsins The Gu-
ardian mun slást í för og fjalla um há-
tíðina og hvernig hún fellur í kramið.
Vefsíðan www.bioparadis.is
Málmhaus Þar segir frá Heru sem fær útrás fyrir sorg í þungarokki.
Gæðamyndir sýndar úti á landi
Endilega …
… kíkið á Timburmenn á Nesinu
Altarisdúkur Konurnar sauma í dúkinn.
Félagsskapur sem nefnir sig
Timburmenn er meðal þeirra sem
sýna smíðamuni á handverks- og
hönnunarsýningu eldri borgara á
Seltjarnarnesi sem verður opnuð
í dag kl. 15 að Skólabraut 3-5.
Meðal afraksturs vetrarstarfs
þess hóps eru glerverk úr gler-
smiðju, handgert bókband auk
þess sem sýndur verður forláta
altarisdúkur, sem handavinnu-
konur hafa verið að sauma og til
stendur að gefa kirkjunni. Guðs-
þjónusta verður í kirkjunni kl. 14 í
tilefni dagsins og verður hún
helguð eldri borgurum sem ætla
að taka þátt í söng og hugvekju.
Boðið er upp á kaffiveitingar á
eftir. Handverkssýningin verður
einnig opin á morgun og laugar-
dag kl. 14-17 og hægt verður að
kaupa kaffi og vöfflur.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Kjarval
Gildir 29. maí - 01. jún verð nú áður mælie. verð
SS Ítalskar lambalærissneiðar....... 2.998 3.698 2.998 kr. kg
Goða grillb. 4 stk m/brauði ........... 798 935 798 kr. pk.
Holta kjúklingabringur 100% hr. .... 2.698 2.998 2.698 kr. kg
Ostaþrenna -3 ostar í pk ............... 899 989 899 kr. kg
Þykkvab. grillkartöflur fors. 750g ... 375 439 375 kr. pk.
Ariel Regular þvottaefni 2,73kg ..... 2.499 2.799 2.499 kr. pk.
Fjarðarkaup
Gildir 29. - 31. maí verð nú áður mælie. verð
Svínahnakki úrb. úr kjötborði......... 1.198 1.598 1.198 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði................. 1.598 2.398 1.598 kr. kg
Kindafille úr kjötborði ................... 2.898 3.498 2.898 kr. kg
Fjallalambs skyndigrill .................. 2.200 2.549 2.200 kr. kg
Fjallalambs lambalærissneiðar...... 2.393 2.769 2.393 kr. kg
Fjallalambs lambasirloin kryddað .. 2.126 2.465 2.126 kr. kg
FK grísakótelettur kryddaðar.......... 1.298 1.398 1.298 kr. kg
Hunt́s BBQ sósur 4 tegundir .......... 198 216 198 kr. stk.
Hamborgarar 2x115g m/brauði .... 490 540 490 kr. pk.
Coke dósir 12x0,33ml .................. 998 1298 83 kr. stk.
Krónan
Gildir 29. maí - 01. jún verð nú áður mælie. verð
Grísakótelettur ............................. 998 1.469 998 kr. kg
Grísakótelettur kryddaðar.............. 998 1.469 998 kr. kg
Lambafille m/fiturönd .................. 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Lambafille m/fitur. kryddað........... 3.998 4.498 3.998 kr. kg
Lambalæri kryddað ...................... 1.498 1.598 1.498 kr. kg
SS Grískar grísahnakkasneiðar ...... 2.068 2.298 2.068 kr. kg
Nóatún
Gildir 29. maí - 01. jún verð nú áður mælie. verð
Kindalundir úr kjötborði ................ 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Kindafille úr kjötborði ................... 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Ungnauta hamb. 90 g úr kjötb....... 169 198 169 kr. stk.
Ungnauta hamb. 120 g úr kjötb. ... 249 298 249 kr. stk.
Ungnauta hamb. 200 g úr kjötb. ... 349 398 349 kr. stk.
Lambalæri úrb. úr kjötb. ............... 2.698 3.198 2.698 kr. kg
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í dag kl. 18 verður stefnumót tveggja
manna þar sem opnuð verður inn-
setningin YESNOOUI í verslun JÖR
við Laugaveg. Þar fléttast fatasaum-
ur saman við hegðunarmynstur.
Dregin verður upp mynd af sam-
skiptum, hvernig við hreyfum okkur
innan í fötunum þegar við bregðumst
við nánasta umhverfi og ákvörðun er
tekin. Sýningin er samstarfsverkefni
myndlistarmannsins Haraldar Jóns-
sonar og fatahönnuðarins Guð-
mundar Jörundssonar. Verkin eru í
takmörkuðu upplagi og öll til sölu.
Stefnumót
Fatasaumur og
hegðunar-
munstur
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Stefnumót Þessir tveir ætla að mætast á innsetningunni í dag.
Nýjar
umbúðir
– sama
innihald
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
Polarolje
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887