Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Flugmálafélag Íslands stendur að
flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli
í dag, laugardaginn 29. maí, kl. 12-
16. Eins og áður verða tugir flyg-
ilda til sýnis allt frá stórum far-
þegaflugvélum til flugmódela. Í
loftinu verða fjölbreytt sýning-
aratriði sem gefa vísbendingu um
flóruna í íslenskum flugheimi. Með-
al flugatriða verður Landhelg-
isgæslan með sýningaratriði,
Hercules-flutningavél, Boeing 757
vél Icelandair, listflug m.a. á svif-
flugu, fisflug, módelflug og margt
fleira en atriðin eru á þriðja tug
talsins. Í upphafi sýningarinnar
verður mynduð 10 manna stjarna í
fallhlífarstökki en stökkvararnir
munu stökka úr DC-3 flugvélinni
Páli Sveinsyni. Ókeypis er á sýn-
inguna en hún er í samstarfi við
ýmsa aðila sem tengjast flugi. Að-
alstuðningasaðilarnir eru Ice-
landair og Isavia.
Flugsýning á Reykja-
víkurflugvelli í dag
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sýning Boeing 757 farþegaþota
mun fara yfir svæðið í lágflugi.
Glæsilegir kaupaukar
fylgja öllum keyptum
La Mer vörum.
Sérfræðingur frá La Mer
verður í versluninni föstudag,
laugardag og sunnudag.
RESCULPT
formar og lagar
Handverks- og hönnunarsýning
eldri borgara á Seltjarnarnesi
verður opnuð á uppstigning-
ardag, fimmtudaginn 29. maí kl.
15, að Skólabraut 3-5, en þar
getur að líta afrakstur vetr-
arstarfs hópsins. Meðal þess sem
þar ber fyrir augu eru smíðam-
unir frá félagsskap sem nefnir
sig Timburmenn, glerverk úr
glersmiðju, handgert bókband
auk þess sem sýndur verður for-
láta altarisdúkur sem hand-
vinnukonur hafa verið að sauma
og til stendur að gefa kirkjunni.
Í tilefni dagsins verður guðsþjón-
usta í Seltjarnarneskirkju helguð
eldri borgurum og hefst hún kl.
14.00. Þeir taka þátt í söng og
hugvekju og boðið er upp á
kaffiveitingar á eftir. Hand-
verkssýningin verður opin
fimmtudag kl. 15.00-17.00 og
föstudag og laugardag kl. 14.00-
17.00.
Handverkssýning á
Seltjarnarnesi
Að störfum Handverkshópurinn situr við
útsaum á hinum nýja altarisdúk kirkjunnar.
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Reykjanesbær varð til við samein-
ingu sveitarfélaganna þriggja,
Hafna, Keflavíkur og Njarðvíkur 11.
júní 1994 og fagnar því 20 ára af-
mæli innan fárra daga. Í Reykja-
nesbæ búa rúm-
lega 14.000
manns en land-
svæði bæjarins
nær frá norð-
urmörkum Kefla-
víkur og út á
Reykjanestá.
Bæjarkjarnarnir
þrír byggðust
kringum sjósókn
og fiskverkun,
sem einkenndist
m.a. af miklum flutningum og ferð-
um bæði fólks og vöru, enda segir
Sigrún Ásta Jónsdóttir, for-
stöðumaður Byggðasafnsins, það
einkenna sögusýninguna „Þyrping
verður að þorpi“, sem opnuð verður í
dag í Miðlofti Bryggjuhúss.
„Það sem einkennir þessa sýningu
er flæði. Það flæðir svolítið á milli
tíma, milli staða og út í náttúruna.
Við erum með náttúrutengingu
þannig að við getum séð söguna í
samhengi, t.d. hvað varðar efnivið í
húsagerð og hvernig umhverfið
skapar manninn og menningin um-
hverfið. Allt þetta er svo í samhengi
við ferðlög, þ.e. flæði fólks á milli
staða. Fólk kom hingað, stoppaði í
nokkra mánuði og fór til baka. Fólk
sem bjó hér fór líka annað í vinnu á
sumrin því það var minnst að gera í
fiskveiðunum þá. Svo voru bændur
að koma hingað í verslunarferð til að
versla með skreiðina og kaupa af
kaupmanninum og á haustin þurfti
að koma með vistirnar fyrir vertíð-
ina. Þannig að það er alltaf einhver
hreyfing. Síðan eru miklar sögur af
fólki sem er að labba hérna á milli,
kannski svolítið tragískar sögur því
þetta eru mikið sögur af fólki sem
verður úti, en það er líka vísbending
um mikla hreyfingu á milli staða. Við
megum svo ekki gleyma komu
breska og bandaríska hersins.“
Tilurð sýningar Byggðasafnsins
er þó fyrst og fremst sú að verið er
að taka Bryggjuhús Duushúsa form-
lega í notkun eftir áralanga end-
urgerð. „Hugmyndin er sú að hér á
Miðloftinu verði grunnsýning frá
Byggðasafninu, þar sem sagan verð-
ur sögð á víðum skala. Þannig eigum
við möguleika á því að hafa minni
þematengdar sýningar annars stað-
ar í húsinu sem standa stutt, líkt og
við höfum gert í Gryfjunni,“ sagði
Sigrún Ásta í samtali við blaðamann.
Gryfjan er eitt af fjölmörgum menn-
ingarrýmum Duushúsa þar sem
einnig er sýning frá Byggðasafni en í
dag verður að auki opnuð sýning á
fatnaði og skarti eftir hönnuði af
Suðurnesjum. Þá er ótalið Bíóhús,
listasalur og bátasalur.
Sigrún Ásta sagði að hugmyndin
væri að sýningin stæði í um áratug,
að henni gæti fólk alltaf gengið. „Við
munum leggja áherslu á ákveðin at-
riði í sögu bæjarfélagsins sem munu
halda sér, en sjáum líka fyrir okkur
að sýningin geti tekið breytingum.
Ég er spennt fyrir sjaldtölvuleið-
sögn og að nota litla skjái þar sem
fólk getur bæði flett og hlustað. Ég
myndi vilja þróa eitthvað svoleiðis
með þessari sýningu og leyfa henni
að hreyfast með nýjum þáttum.“
Sýningin flæðir
Þegar farið er aftur til landnáms
er fundur landnámsskálans í Höfn-
um það sem vakin er athygli á á sýn-
ingunni. Sagt verður frá rannsókn-
inni og uppgreftri skálans sem hófst
árið 2009. Í skálanum fundust
nokkrir dæmigerðir munir 9. öld og
er hluti þeirra nú til sýnis í Víkinga-
heimum. „Frá landnámsskálanum
förum við yfir í torfbæinn Stekkjar-
kot en þetta eru hlutir sem fólk get-
ur síðan skoðað með berum augum.
Þarna er okkar saga. Með því að láta
sýninguna flæða á milli þá erum við
að opna á þessar gáttir, þannig að
sagan er ekki bara klippt og skorin.
Hér erum við aftur komin að flæðinu
úti í náttúruna og þar á veðrið stóran
þátt,“ sagði Sigrún Ásta.
Þyrping verður að þorpi
Bryggjuhús Duushúsa í Reykjanesbæ verður formlega opnað almenningi með
fjórum nýjum sýningum Reykjanesbær fagnar 20 ára afmæli innan fárra daga
Morgunblaðið/Ljósmyndasafn Reykjanesbæjar
Miðloftið Eitt sýningarrýmið af fjórum í húsinu heitir Miðloftið og er því
ætlað að hýsa sýningu Byggðasafnsins næsta áratuginn eða svo.
Sigrún Ásta
Jónsdóttir
Bryggjuhúsið er elsta húsið í
Duuskjarnanum. Það er þrílyft
timburbús, byggt árið 1877 af
danska kaupmanninum Hans Peter
Duus sem vörugeymsluhús fyrir
Duusverslun. Húsið reis upp af
Duusbryggju til að auðvelda allan
flutning frá bryggjunni. Teinar lágu
frá bryggju inn í húsið í miðju
þannig að hægt var að keyra vagn-
ana beint inn. Í húsinu hefur
vinduhjólið á efstu hæðinni varð-
veist sem og brunnur á neðstu
hæðinni sem notaður var til að
sækja vatn fyrir verslunina. Brunn-
urinn hefur verið yfirbyggður með
gleri og vekur athygli gesta.
Reykjanesbær hefur á undan-
förnum árum staðið í endurgerð á
Bryggjuhúsi og metnaður verið
lagður í að varðveita allt heillegt í
húsinu og færa það í upprunalegt
horf. Bærinn hefur kostað endur-
bæturnar að mestu leyti en fengið
styrki frá Húsfriðunarsjóði ríkisins
og Menningarsjóði Suðurnesja. Í
húsinu eru fjögur sýningarrými,
Gestastofa, Miðloft, Erlingsstofa
og Ris. Sýning Byggðasafnsins,
Þyrping verður að þorpi, er í Mið-
lofti. Formleg opnun hússins verð-
ur kl. 14.00 í dag.
Tengill: reykjanesbaer.is/
byggdasafn
Elsta húsið í Duuskjarnanum
BRYGGJUHÚSIÐ VAR BYGGT ÁRIÐ 1877
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Bryggjuhúsið Þetta sögufræga hús
verður nú opnað almenningi.
Sjómannadagurinn er á sunnudag
en Vestmannaeyingar hefja hátíð-
arhöld í tilefni hans með söngva-
kvöldi í Akóges klukkan 22.00 í
kvöld, fimmtudagskvöld.
„Þetta byrjar klukkan tíu og
verður siglt eitthvað fram eftir
nóttu,“ sagði Árni Johnsen. „Þeir
koma til liðs við okkur að þessu
sinni þeir Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson.“ Auk þeirra
kemur fram hörkulið heima-
manna. Þeirra á meðal er Árni
Johnsen, Einar Hallgríms söngv-
ari og gítarleikari, Frikki bassi,
Finnur nikka og Jarl Sig-
urgeirsson svo nokkrir séu nefnd-
ir. Það verða því bæði land-
krabbar og sjómenn sem stíga á
svið og flytja sjómannalög og
önnur lög.
Söngvakvöldið fyrir sjó-
mannadag í Eyjum var lengi haft
á föstudagskvöldinu en hefur nú
verið flutt á fimmtudagskvöld.
gudni@mbl.is
Sjómannalögin sungin í Eyjum í kvöld
Rúmlega 600 manns höfðu um
klukkan 15:30 í gær sótt um að
ráðstafa séreignarsparnaði inn á
fasteignalán en opnað var fyrir
slíkar umsóknir í gærmorgun á
vef embættis ríkisskattstjóra.
Skúli Eggert Þórðarson rík-
isskattstjóri segir fjöldann vera
heldur meiri en embættið átti von
á.
Í gær höfðu rúmlega 38 þúsund
manns sótt um leiðréttingu verð-
tryggðra fasteignalána en opnað
var fyrir umsóknir um slíka leið-
réttingu í byrjun síðustu viku.
Umsóknirnar hafa borist frá 97
löndum, langflestar þó frá Íslandi
eða 93%, 1,4% frá Noregi og 1,4%
frá Bretlandi en færri frá öðrum
löndum. pfe@mbl.is
Margir sóttu strax
um að fá að ráðstafa
séreignarsparnaði