Morgunblaðið - 29.05.2014, Síða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Vinir í borginni Tveir þolinmóðir vinir bíða frekar daprir í bragði eftir eiganda sínum fyrir utan verslun í Austurstræti í Reykjavík og láta sem þeir sjái ekki kisuna sem þeir voru festir við.
Golli
Á laugardaginn tök-
um við mikilvæga
ákvörðun um næstu
fjögur ár, – og í sumum
tilfellum miklu lengri
tíma. Margt af því sem
gert verður á næstu ár-
um mun hafa áhrif um
langa framtíð, hvort
sem um er að ræða
ákvarðanir sem varða
skipulagsmál eða
hvernig staðið er að þjónustu við
börn í sveitarfélaginu.
Það er ánægjulegt að tekjur sveit-
arfélaganna fari vaxandi og skulda-
staða þeirra almennt sé að batna, en
um leið er brýnt að
halda þétt um stjórn-
artaumana. Þegar rof-
ar til í fjármálunum er
alltaf sú freisting fyrir
hendi að auka útgjöld,
en nú þegar útlit er fyr-
ir að slakinn í hagkerf-
inu sé að hverfa er mik-
ilsvert að sveitarfélögin
fari sér varlega. Þá
skiptir forgangsröðun
máli og ábyrgð í verk-
efnavali. Fjárfesting
ríkis og sveitarfélaga
er enn við sögulegt lágmark, enda er
víða uppsöfnuð viðhaldsþörf eftir
mögur ár og innviðir sem þarf að
hlúa að.
Litlar álögur ásamt ábyrgð og
ráðdeild í rekstri sveitarfélaga eru
lykilhugtök í stefnuskrám okkar,
enda kemur það skýrt fram í kjörum
íbúanna hvernig sveitarfélag þeirra
er rekið. Þannig má nefna að í
Reykjavík hafa álögur á meðalfjöl-
skyldu aukist um rúmar 400.000 kr.
á kjörtímabilinu, en á sama tíma
hafa gjaldskrár á Seltjarnarnesi
lækkað að raungildi. Þar er afkoma
bæjarsjóðs jákvæð og skuldir fara
lækkandi. Munurinn á skuldabyrði
hvers íbúa í þessum tveimur sveit-
arfélögum er gríðarlegur, eða um
það bil tólffaldur, Reykvíkingum í
óhag.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins um allt land hafa sett góða
þjónustu við íbúa ásamt valfrelsi og
virðingu fyrir ólíkum lífsstíl á odd-
inn. Öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf
hefur verið í öndvegi í stefnu flokks-
ins á sveitarstjórnarstiginu og hafa
sjálfstæðismenn verið brautryðj-
endur í að auka val foreldra og nem-
enda í skólamálum. Við leggjum
áfram mikla áherslu á að koma til
móts við mismunandi þarfir skóla-
barna með betri menntun og betra
menntakerfi að leiðarljósi.
Við sjálfstæðisfólk höfum löngum
haft þá skoðun, að undir stjórn Sjálf-
stæðisflokksins sé almannafé best
varið til að veita góða og nauðsyn-
lega þjónustu í heimabyggð. Dæmin
sanna þetta víða um land og íbúar
þeirra sveitarfélaga finna það glöggt
á eigin hag hversu þýðingarmikil
skýr sýn og örugg tök á rekstri eru.
Það er mikilvægt að nýta kosn-
ingaréttinn og hafa þannig áhrif á
hvernig veigamiklum verkefnum í
okkar nánasta umhverfi er stjórnað.
Veljum meira frelsi, betri þjónustu
og lægri útgjöld. Setjum X við D á
laugardaginn.
Eftir Bjarna
Benediktsson »Undir stjórn Sjálf-
stæðisflokksins er
almannafé best varið til
að veita góða og nauð-
synlega þjónustu í
heimabyggð.
Bjarni Benediktsson
Höfundur er formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Kjósum valfrelsi og ábyrgð
Niðurstöður kosn-
inga til Evrópuþingsins
um síðustu helgi komu
um margt á óvart. Svo-
kallaðir efasemd-
arflokkar um ágæti
Evrópusambandsins og
yfirlýstir andstæðingar
þess rökuðu að sér fylgi
og fengu flest atkvæði
eða á bilinu 25-27% í
fjórum ríkjum sam-
bandsins, þ.e. í Bretlandi, Frakk-
landi, Danmörku og Grikklandi.
Fleiri framboð í þessum sömu lönd-
um lýstu yfir andstöðu við þróun
ESB. Í samanburði við hliðstæðar
kosningar fyrir fimm árum er nið-
urstaðan nú sláandi og ætti fljótt á lit-
ið að geta styrkt andstöðuöflin á Evr-
ópuþinginu og heima fyrir í
viðkomandi þjóðríkjum. Þannig er
hins vegar um hnútana búið í Evr-
ópusambandinu að annað og meira
þarf til að knýja fram raunverulegar
breytingar á grunnstefnunni sem er
niðurnjörfuð í samþykktum þess, síð-
ast í Lissabonsáttmálanum frá 2005.
Enginn pólitískur meirihluti er til
staðar eða í sjónmáli sem líklegur er
til að hrófla við þessum undirstöðum.
Niðurstaða nýafstaðinna kosninga í
Frakklandi og Bretlandi kann vissu-
lega að hafa áhrif á
stjórnmálaþróun í þess-
um löndum á næstu ár-
um og þá um leið á
stöðu Evrópusam-
bandsins, en það er
sýnd veiði og langt frá
því að vera gefin.
Brotakennd and-
staðan
úr ólíkum áttum
Andstaðan við ráð-
andi stefnu ESB kemur
úr mörgum áttum og á
sér mismunandi forsendur. Að baki
henni eru ósamstæð öfl sem ekki eru
líkleg til að ná saman um grundvall-
arbreytingar. Tilraunir ráðandi
meirihluta í ESB og ýmissa frétta-
miðla til að stimpla andófið sem birt-
ist í nýafstöðnum kosningum sem ein-
hlítan stuðning við öfgasinnaða
hægriflokka eru hins vegar ekki að-
eins einföldun heldur beinlínis rang-
ar. Í Grikklandi var vinstrifylkingin
Syriza sigurvegari kosninganna og
fjölgaði fulltrúum hennar á Evr-
ópuþinginu sexfalt frá því fyrir fimm
árum. Í Danmörku fékk Danski þjóð-
arflokkurinn 26,6% atkvæða og Þjóð-
fylkingin gegn ESB, studd m.a. af
Einingarlistanum sem telst lengst til
vinstri, bætti við sig fylgi og fékk
8,1%. Það er því langsótt að túlka at-
kvæði meira en þriðjungs danskra
þátttakenda í þessum kosningum
sem stuðning við hægri öfgastefnu.
Afstaða almennings til innflytj-
endastefnu í einstökum ESB-löndum
á sér mismunandi rætur, bæði sögu-
lega og hvað inntak snertir. Í sumum
tilvikum eru tengsl við fasíska hug-
myndafræði augljós og hafa ekki far-
ið leynt, t.d. þegar í hlut á FPÖ í
Austurríki. Á sama tíma og AfD, ný-
stofnaður þýskur andstöðuflokkur við
ESB, náði 7% fylgi hlaut þarlendur
nasistaflokkur (NPD) sem starfað
hefur frá 1964 1% atkvæða sem dugði
honum fyrir einu þingsæti.
Breytingar samt ekki í sjónmáli
Þótt margháttuð ókyrrð sé innan
Evrópusambandsins í kjölfar kosn-
inganna ber að hafa í huga að stóru
flokkasamsteypurnar, sósíal-
demókratar, hægriflokkahópurinn og
frjálslyndir, halda áfram yfir-
burðastöðu sinni á Evrópuþinginu,
svo og í ráðherraráði og fram-
kvæmdastjórn ESB. Þessar fylk-
ingar hafa um áratugi verið að heita
má samstiga um þau skref í átt að
miðstýrðu og ólýðræðislegu ESB
sem stigin hafa verið síðasta ald-
arfjórðung. Sósíaldemókratar hafa
þar ekki haft neina sérstöðu. Hægri-
menn sem töpuðu nú allmörgum
þingmönnum frá kosningunum 2009
eru áfram stærsti flokkahópurinn og
kandidat þeirra til formennsku í
framkvæmdastjórninni í Brussel,
Jean-Claude Juncker (f. 1954), fv. for-
sætisráðherra Lúxemborgar, er tal-
inn líklegur til að hreppa hnossið.
Breski stjórnmálafræðingurinn
Richard Whitman segir í viðtali við
blaðið Information um kosn-
ingaúrslitin um helgina: „Vandinn við
stóru flokkasamsteypurnar er að þær
ýta kjósendum í aðrar pólitískar áttir.
Það er ekki lengur mikill munur á
miðhægri og miðvinstri, svo að spurn-
ingin er hvert snúa kjósendur sér í
leit að öðrum kostum. … Svartsýn
túlkun á úrslitunum er að jaðarhóp-
arnir verði pólitískt gjaldgengir. Mót-
sögnin er hins vegar að ávinningur
fyrir ESB-gagnrýna flokka í löndum
eins og Danmörku, Bretlandi og
Frakklandi hefur ekki mikla þýðingu
fyrir stefnu Evrópusambandsins,
heldur fremur á innanlandsvett-
vangi.“
Í orði hafa ýmsir leiðtogar ESB-
ríkja látið að því liggja síðustu daga
að nú verði að hægja á samrunaferl-
inu og taka meira tillit til viðhorfa í
aðildarríkjum. Ólíklegt er að slíkt
standi til boða nema til langtum meiri
tíðinda dragi, pólitískra eða efna-
hagslegra.
Til umhugsunar
Í Evrópusambandinu er þannig um
hnútana búið að markaðsfrjáls-
hyggjan er niðurnjörfuð í sáttmálum
bandalagsins. Þeim verður ekki hnik-
að nema aðildarríkin 28 nái um það
samkomulagi. Ef út af bregður er
dómstóllinn í Lúxemborg reiðubúinn
að bregðast við. ESB-kerfið leggur
meginlínurnar fyrir ríkisstjórnir að-
ildarlandanna, alveg sérstaklega inn-
an evrusvæðisins. Í þessu kerfi gerist
ekkert af skyndingu heldur þarf til
þess víðtæka pólitíska samstöðu og
langan tíma. Af þessum sökum duga
skammt til breytinga pólitískar hrær-
ingar af þeim toga sem menn urðu nú
vitni að í kosningunum til Evrópu-
þingsins. Íslendingar eru svo lán-
samir að hafa enn ekki ánetjast þessu
kerfi nema að því leyti sem gerist
með þátttöku í Evrópska efnahags-
svæðinu. Gæfa okkar sem þjóðar
liggur við að ekki verði gengið lengra
á þeirri braut.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Ýmsir leiðtogar
ESB-ríkja segja að
hægja verði á samruna-
ferlinu og taka tillit til
viðhorfa í aðildarríkjum.
Ólíklegt er þó að slíkt
standi til boða.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Kosningaúrslitin til Evrópuþingsins duga skammt