Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Sá einfaldasti í uppsetningu, tjaldast með fortjaldi á örfáum mínútum
Tjaldvagnar
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - isband@isband.is - www.isband.is
Opið vi
rka dag
a
frá 10-
18
laugard
aga
11-15
Verð frá 1.190.000,-
Framúrskarandi tjalddúkur — Álfelgur
Á yfirstandandi kjör-
tímabili hefur verið unn-
ið í mikilli og góðri sam-
vinnu meiri- og
minnihluta skipulags-
nefndar að deiliskipulagi
nokkurra hverfa bæj-
arins með það markmið
að ljúka skref fyrir skref
skipulagningu bæjarins í
heild. Vinna sem þessi
tekur alla jafna nokkurn
tíma, þar sem þess er gætt að hafa
mikið og ítarlegt samráð við íbúa og
fjöldi kynningarfunda haldinn í því
skyni. Engu að síður miðar verkinu vel
og er útlit fyrir, að um mitt þetta ár
verði búið að deiliskipuleggja ríflega
helming allrar byggðar bæjarins og
það í breiðri sátt.
Lítilsháttar fækkun íbúa
stendur til bóta
Íbúum Seltjarnarness hefur fjölgað
um 1% á liðnu ári og eru nú um 4.400,
en hafði fækkað lítillega árin áður og
er eðlileg skýring á því. Ekki eru hér í
bæ sömu aðstæður og víðast annars
staðar. Þar er landrými nægt til þess
að ný hverfi geti risið á óbrotnu landi
og íbúafjöldi haldið viðstöðulítið áfram
að vaxa eftir því sem þjóðinni fjölgar.
Seltjarnarnes er landminnsta sveitar-
félag Íslands og hefur því ekki sömu
möguleika og önnur bæjarfélög að
þessu leyti. Það er ekki stefna okkar
að sækja land út í sjó með fyllingum
eða byggja á vestursvæðunum. En við
höfum í nánu samráði við íbúa skipu-
lagt nýja byggð við
Bygggarða, auk þess
sem auðir bygg-
ingareitir hafa verið
skipulagðir. Þannig
horfum við nú fram á
fjölgun íbúa í bænum.
Með haganlega
hönnuðum húsum sem
bæjaryfirvöld hafa með
skipulagsaðgerðum sín-
um beitt sér fyrir að rísi
verður m.a. bætt úr
þeirri þörf sem verið
hefur fyrir fleiri tiltölulega litlar og
meðalstórar íbúðir. Þessar nýbygg-
ingar fela í sér tækifæri fyrir ungt fólk
sem er að byrja búskap og sömuleiðis
eldri bæjarbúa sem vilja minnka við
sig.
Fróðlegt yfirlit yfir stærð
íbúðarhúsnæðis
Fróðlegt er annars að skoða hvern-
ig háttað er stærð íbúðarhúsnæðis í
bænum. Í töflunni er að finna heildar-
yfirlit yfir þær rúmlega 1600 íbúðir og
einbýlishús sem eru á Seltjarnarnesi.
Eins og sést á töflunni eru nær 17%
allra íbúða í bæjarfélaginu innan við
80 fermetrar. Þá er fjöldi íbúða 100
fm eða minni meiri en húsnæðis yfir
200 fm að stærð. Þetta mun líklega
koma sumum á óvart, því töluvert
hefur verið gert úr því að minni og
meðalstórar íbúðir væru fáar í bæn-
um.
Nálægt 200 nýjar íbúðir – um-
ferðaræðar höfuðborgarinnar
mikilvægar
Í skipulagsvinnu síðustu missera
hefur verið skipulögð byggð þar sem
áður var iðnaðarsvæði við Bygg-
garða. Tekur hin nýja byggð mið af
þeirri sem fyrir er í grenndinni og
verða þarna ýmist einbýlishús, rað-
hús eða fjölbýlishús. Hæð húsa þ. á
m. fjölbýlishúsanna mun ekki fara yf-
ir það sem verið hefur á svæðinu og
gott rými verður fyrir götur, gang-
stíga, svo og leiksvæði og útivist íbúa
utan lóða. Á þessu svæði og fáeinum
öðrum á Nesinu munu rísa nálægt
200 nýjar íbúðir. Mun hlutfall lítilla
íbúða hækka enn frekar frá því sem
nú er. Í ljósi alls þessa er ég þess full-
viss að hér mun brátt verða gott
framboð á íbúðum í öllum stærðum
fyrir allar fjölskyldustærðir og bær-
inn halda áfram að eflast.
Auk framangreindra þátta sem
lúta að skipulagningu og bygging-
arstarfsemi í bæjarfélaginu sjálfu er
vert að geta þess, að í svæð-
isskipulagsnefnd höfuðborgarsvæð-
isins hefur af hálfu Seltjarnarness
verið lögð rík áhersla á að tryggja að
sem greiðfærast sé um helstu akst-
ursleiðir Seltirninga inn í borgina og
áfram út úr henni. Reykjavíkurborg
og Seltjarnarnes hafa, vegna þessa,
gert samkomulag um að akreinum á
stofnbrautum vestan Kringlumýr-
arbrautar og akreinum á Mýrargötu/
Geirsgötu verði ekki fækkað nema í
samkomulagi við Seltjarnarnesbæ.
Það er stefna þeirra sem farið hafa
með skipulagsmálin á Seltjarnarnesi
og stjórn bæjarfélagsins að unnið
verði áfram í eindrægni að skipulags-
málunum á komandi árum í náinni
samvinnu við bæjarbúa. Einungis
þannig verður bæjarskipulagið sú
umgjörð um blómlegt og fagurt
mannlíf sem við öll viljum.
Skipulagsmál á Seltjarnarnesi
Eftir Bjarna Torfa
Álfþórsson
Bjarni Torfi Álfþórsson
» Seltjarnarnes er
landminnsta sveitar-
félagið og ekki mikil
tækifæri til stækkunar
Við munum samt ekki
sækja land út í sjó eða
byggja á vestursvæð-
unum.
Höfundur er formaður skipulags-
nefndar og forseti bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness.
Stærð íbúðarhúsnæðis á Seltjarnarnesi
Íbúða- eða húsastærð Fjöldi Hlutfall hvers stærðar- Uppsafnað – hverjum
í fermetrum íbúða flokks af heildinni stærðarflokki bætt við
Innan við 60 88 5,5 % 5,5 %
60 -70 98 6,1 % 11,6 %
70 -80 84 5,2 % 16,8 %
80 -90 85 5,3 % 22,1 %
90 -100 76 4,7 % 26,9 %
100 - 120 196 12,2 % 39,1 %
120 - 150 285 17,8 % 56,8 %
150 – 200 309 19,3 % 76,1 %
200 – 250 219 13,6 % 89,7 %
250 – 300 110 6,9 % 96,6 %
300 eða meira 55 3,4 % 100%
Hafnfirðingar vilja
breytingar. Það er
komið meira en nóg
af tólf ára stjórn
vinstri manna í bæj-
arstjórn í Hafnarfirði.
Skoðanakannanir
sýna að meirihlutinn
er kolfallinn og að
fólk kallar eftir nýj-
um hugmyndum, nýju
fólki og nýrri framtíð-
arsýn. Eina leiðin til þess að
tryggja að breytingar verði að
veruleika er að Sjálfstæðisflokk-
urinn fái öflugan stuðning í kosn-
ingunum á laugardag.
Öguð fjármálastjórn
er besta kjarabótin
Við sjálfstæðismenn höfum lagt
fram tillögur að því hvernig hefja
megi sókn í bænum okkar eftir
tímabil stöðnunar. Það þarf með
skipulegum hætti að fjölga at-
vinnutækifærum, kynna bæinn
betur og laða að ný fyrirtæki. Það
er lykilatriði að auka tekjur sveit-
arfélagsins til að hægt sé að
tryggja þjónustu sem stenst sam-
anburð við nágrannasveitarfélögin,
ráðast í ný verkefni og greiða niður
skuldir.
Við sjálfstæðismenn viljum fara
vel með skattfé bæjarbúa, leita
allra leiða til að auka skilvirkni og
koma í veg fyrir sóun í rekstri bæj-
arins. Öguð og ábyrg fjár-
málastjórn er besta kjarabótin fyr-
ir Hafnfirðinga. Vinstri menn í
Hafnarfirði hafa sýnt að það skipt-
ir máli hverjir stjórna
því þeir hafa komið
bænum í þá stöðu að
bæjarfélagið greiðir
gríðarlega fjármuni í
vexti á hverju ári sem
betur væri nýttir í efl-
ingu þjónustu við bæj-
arbúa og lækkun
álaga.
Viljum vinna með
Hafn-
firðingum að breyt-
ingum
Hafnfirðingar eiga það besta
skilið. Hafnarfjörður hefur allt til
þess að verða fyrirmyndarbær með
frábæru mannlífi. Við sjálfstæð-
ismenn erum bjartsýn á að hægt sé
að snúa við blaðinu og rífa bæinn
okkar upp!
Við sjálfstæðismenn bjóðum
fram samhentan og öflugan hóp
fólks með fjölbreytta reynslu sem
er tilbúinn að byggja upp og vinna
með Hafnfirðingum. En til þess að
svo megi verða, þurfum við á þín-
um stuðningi að halda í kosning-
unum á laugardaginn. Það gefst
ekki annað tækifæri næstu fjögur
árin. Horfum björt fram á veginn
og setjum X við D.
X-D fyrir breyting-
ar í Hafnarfirði
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur
Rósa Guðbjartsdóttir
» Við sjálfstæðismenn
erum bjartsýn á að
hægt sé að snúa við
blaðinu og rífa bæinn
okkar upp!
Höfundur leiðir framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði.
Í Garðabæ er að-
staða til íþróttaiðk-
unar til fyrirmyndar.
En samræming á
íþróttasvæðinu í bæn-
um er óhjákvæmileg.
Í Breiðumýri er sár-
leg vöntun á gervi-
grasvelli fyrir fótbolt-
ann og í Ásgarði
liggur fyrir að end-
urbætur þurfa að vera
á sundlauginni svo eitthvað sé
nefnt.
Góð vísa er aldrei of oft kveðin,
íþrótta og æskulýðsstarf skiptir
alltaf máli og á að standa öllum til
boða. Við vitum öll hversu mikið
forvarnargildi felst í því að börnin
okkar stundi einhverskonar íþrótta-
eða æskulýðsstarf. Í Garðabæ er
málum þannig háttað að hvatapen-
ingar, að upphæð 27.500 kr. á ári,
eru lagðir til sé barn í einhverskon-
ar íþróttum eða æskulýðsstarfi. Það
er vel. Hins vegar er það nú svo að
íþróttir eiga ekki við alla.
Sláandi upphæð
Ef við setjum upp einfalt dæmi,
tökum vísitölufjölskylduna, hjón
með tvö börn. Eldra barnið, fætt
árið 2000, æfir fótbolta
og er í framhaldsnámi
við tónlistarskólann.
Fyrir þetta greiða for-
eldrarnir 159 þúsund.
Yngra barnið, fætt árið
2002, er í skátunum og
söngnámi við tónlistar-
skólann. Fyrir þetta
greiða foreldrarnir
rúm 118 þúsund. Sam-
anlagður útlagður
kostnaður við íþrótta-
og tónlistarnám
barnanna er rúmlega
277 þúsund. Þegar
hvatapeningur er tekinn með þá er
upphæðin 222 þúsund á ári eða
tæplega 19 þúsund á mánuði.
Það getur verið erfitt fyrir fjöl-
skyldur að standa straum af þess-
um kostnaði ásamt öðru sem fylgir
íþrótta- og tómstundastarfi barns,
svo ekki sé talað um önnur útgjöld
sem fylgja heimilisrekstri.
Hvatapeningar hækkaðir
Við viljum að öll börn, sama hver
staða fjölskyldunnar er, hafi jafnan
aðgang að því metnaðarfulla og
blómlega starfi sem unnið er hjá
íþrótta- og æskulýðsfélögum og
ekki síður tónlistarskóla bæjarins.
Við hjá Samfylkingunni viljum gera
enn betur en nú er gert. Við viljum
hækka hvatagreiðslur til barna á
kjörtímabilinu.
Fjárhagsstaða foreldra á aldrei
að standa í vegi fyrir því að barn
geti stundað íþróttir eða tóm-
stundastarf.
Í okkar huga er þetta einfalt,
betri bær fyrir okkur öll.
Setjum X við S á laugardaginn.
Íþrótta og æsku-
lýðsmál í Garðabæ
Eftir Guðrúnu
Örnu
Kristjánsdóttur
Guðrún Arna
Kristjánsdóttir
» Við vitum öll hversu
mikið forvarnargildi
felst í því að börnin okk-
ar stundi einhverskonar
íþrótta- eða æskulýðs-
starf.
Höfundur skipar 2. sæti á lista Sam-
fylkingar og óháðra í Garðabæ.