Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Það hefur verið
ánægjulegt að fylgjast
með þróun mála hjá
Kópavogsbæ und-
anfarin misseri þótt
ýmislegt hafi gengið á í
pólitíkinni á þeim bæn-
um. Ég fékk það hlut-
skipti árið 2009 að taka
við starfi bæjarstjóra.
Við blöstu mikil og erf-
ið verkefni enda
skammt liðið frá hruni íslensks efna-
hagslífs og ljóst að Kópavogsbær
þurfti að draga verulega saman í
rekstri. Sem betur fer tókst ágæt
samstaða meðal bæjarfulltrúa um að
árangursríkast væri að takast sam-
an á við verkefnin sem þá voru fram-
undan. Bæjarstjórnin setti sér skýr
markmið. Hagræða skyldi í rekstri
þar sem reynt væri að veita áfram
sömu þjónustu með minni tilkostn-
aði en áður. Langtímamarkmiðið var
að lækka skuldir. Kópavogsbær
þurfti að endurfjármagna lán á þess-
um tíma og aflaði lánsfjár á markaði.
Lánveitendur, sem voru aðallega líf-
eyrissjóðir, fengu ítarlega kynningu
frá bænum þar sem fram kom og að
allar tekjur af framtíðarsölu lóða
færu í niðurgreiðslu skulda. Það
tókst að hagræða í rekstri og endur-
fjármagna lán þannig að ekki kom til
greiðslufalls, sem þó gerðist hjá
sveitarfélögum við þessar óvenju-
legu og ótrúlegu aðstæður á þessum
tíma.
Festa og stöðugleiki
Við kosningarnar árið 2010 lét ég
af störfum sem bæjarstjóri enda
leitaði ég ekki eftir
endurkjöri í bæj-
arstjórn. Ég hef þó
fylgst vel með. Und-
anfarin tvö ár hefur Ár-
mann Kr. Ólafsson
gegnt starfi bæj-
arstjóra. Ég þekkti Ár-
mann vel og hafði trú á
að hann myndi leysa
verkefnið vel af hendi.
Það sem stendur upp
úr er að hann hefur
staðið í lappirnar þegar
á hefur reynt og ekki
hvikað frá þeirri stefnu, sem sveitar-
félagið markaði við hrun efnahags-
lífsins. Skuldir hafa lækkað, afgang-
ur af rekstri hefur aukist,
þjónustustig hefur haldist gott og
skattar eru teknir að lækka. Hin
stóra mynd er skýr. Í aðdraganda
kosninga vill gjarnan bregða svo við
að gefnir eru út kosningavíxlar í von
um betri uppskeru í kosningum. Ný-
samþykkt fjárhagsáætlun Kópa-
vogsbæjar fyrir árið 2014 er hins
vegar engin kosningaáætlun. Hún er
í takt við fyrri áætlanir bæj-
arstjórnar þar sem aðhalds er gætt í
rekstri og áhersla lögð á skulda-
lækkun. Hér er mikilvægt að hafa í
huga að bærinn greiðir um 1,5 millj-
arða króna í vexti og verðbætur og
því mikilsvert að lækka skuldir.
Öflugur listi
Sjálfstæðismenn í Kópavogi völdu
frambjóðendur sína í prófkjöri 8.
febrúar síðastliðinn þar sem 2872
sjálfstæðismenn tóku þátt í að stilla
upp lista. Óhætt er að fullyrða að vel
tókst til og í boði er mjög öflugur
listi með fjórum konum og tveimur
körlum í sex efstu sætum listans.
Þessir frambjóðendur koma úr ólík-
um áttum og hafa mismunandi
reynslu sem ég tel að efli listann. Í
þeirri vinnu sem nú er í gangi í að-
daganda kosninganna er ljóst að
frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
er einstaklega samhentur og vinnu-
samur hópur sem á eftir að reynast
bæjarfélaginu vel.
Traust forysta
Núverandi bæjarstjóri í Kópavogi
hefur veitt trausta forystu í mál-
efnum bæjarins og verið rödd skyn-
seminnar þegar kemur að rekstri
bæjarins. Hann hefur ekki hlaupið
útundan sér í aðdraganda kosninga
heldur komið fram af ábyrgð. Ár-
mann Kr. Ólafsson er ekki átaka-
stjórnmálamaður og því kannski
ólíkur þeim forystumönnum sem
mest hefur farið fyrir í Kópavogi
undanfarin ár. En hann er engu að
síður fylginn sér og kemur hlutum í
verk með sínu lagi. Í mínum huga er
enginn vafi að sveitarfélagið þarf
áfram á kröftum Ármanns að halda
og undir hans forystu muni sveitar-
félagið halda áfram á réttri braut.
Það mun koma Kópavogsbúum öll-
um til góða.
Áfram Kópavogur XD
Góður árangur í Kópavogi
Eftir Gunnstein
Sigurðsson » Skuldir hafa lækkað,
afgangur af rekstri
hefur aukist, þjón-
ustustig hefur haldist
gott og skattar eru
teknir að lækka.
Gunnsteinn Sigurðsson
Höfundur er fyrrverandi
bæjarstjóri í Kópavogi.
Strípur
Rótarlitun
• WOW þekur grá hár
• WOW lýsir dökka rót
• WOW tekur augnablik
• WOW endist á milli þvotta
• WOW 6 litir
HÁR
Dreifingaraðili
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á
ÓMISSANDI Í TÖSKUNA
Þetta er það næsta sem þú getur ekki verið án!
BEAUTY
INSIDERS´CHOICE
W I N N E R
COSMETIC EXECUTIVE
WOMEN UK
2014
Hvað þýðir það?
Jú, að okkur sé annt
um náungann og að
við viljum hag allra í
samfélaginu sem
bestan, að til dæmis
enginn verði útundan,
ef þannig má að orði
komast.
Allt frá því að
maðurinn komst út
úr hinum myrku mið-
öldum og hóf að trúa
á skynsemina á tímum upplýsing-
arinnar á 17. og 18. öld hafa
menn verið að glíma við hugtök
eins og mannréttindi, lýðræði og
frelsi. Fjölmargir og miklir heim-
spekingar hafa velt þessu fyrir
sér og þróað hugmyndir sem
tengjast þessu. Margar þessara
hugmynda liggja til grundvallar
nútímastjórnmálum eins og við
þekkjum þau.
Nútímamanninum finnst þetta
allt saman sjálfsagt og við teljum
það æskilegt að búa við þetta,
þ.e.a.s njóta mannréttinda, hafa
frelsi og iðka eða ástunda lýð-
ræði. Meðal annars um þetta snú-
ast borgarstjórnarkosningarnar,
þ.e. að kjósendur taki afstöðu til
mismunandi stefnumála, frá mis-
munandi flokkum sem bjóða þau
fram.
Dögun í Reykjavík er einn
þessara flokka (eða framboða) og
vil ég nota þetta tækifæri til þess
að hvetja alla sem hafa kosninga-
rétt til þess að nýta sér hann á
kjördag.
Smám saman þegar á 19. og 20.
öldina leið fæddist hugmyndin um
velferðarkerfi. Í stuttu máli má
segja að hún gangi út á að í sam-
félaginu sé myndað ákveðið ör-
yggisnet fyrir alla þegna þess,
þannig að þeir geti til dæmis not-
ið heilsugæslu og læknisþjónustu.
Það finnst okkur líka sjálfsagt.
Dögun í Reykjavík vill í raun
tengja hugtökin mannréttindi og
velferð og líta þannig á … „að
flest það sem í dag er flokkað
sem velferðarmál sé í raun mann-
réttindamál“, eins og segir í
stefnuskrá framboðsins, sem er
mjög ítarleg og má lesa á
www.dogunreykjavik.is.
Þar segir ennfremur að …
„Dögun í Reykjavík virðir mann-
réttindi allra hópa og vill að allir
fái notið þeirra án til-
lits til uppruna, þjóð-
ernis, litarháttar,
trúarbragða, stjórn-
málaskoðana, kyn-
ferðis, kynhneigðar,
aldurs, efnahags, ætt-
ernis, fötlunar, heilsu-
fars eða annarrar
stöðu“. Þá vill Dögun
að utangarðsfólk njóti
sömu mannréttinda
og sama aðgengis að
heilbrigðisþjónustu og
aðrir. Mannréttinda-
kaflinn í stefnu Dögunar er mjög
efnismikill.
Í sambandi við lýðræði leggur
Dögun „ríka áherslu á ákvörð-
unarrétt hinna ýmsu hópa sam-
félagsins og hvetur til lýðræð-
islegrar virkni íbúanna.
Framboðið telur að ýmsir mögu-
leikar séu til aukins lýðræðis á
sveitarstjórnarstiginu“. Dögun tel-
ur að í virku lýðræðissamfélagi fái
allar raddir notið sín og að
ákvarðanir geti verið teknar með
aðkomu þeirra sem málið varðar.
Hafa beri það í huga að … „þeir
sem hafa mestu þörfina hafa oft
lægstu röddina“.
Að lokum vil ég svo hvetja þig,
lesandi góður, til að kynna þér
stefnu Dögunar á heimasíðu okkar
og kjósa á kjördag – það er lýð-
ræðislegur réttur þinn og í raun
mannréttindi. Þitt atkvæði skiptir
máli!
Dögun í Reykjavík
er félagshyggju- og
mannúðarframboð
Eftir Gunnar Hólm-
stein Ársælsson
Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
» Í sambandi við lýð-
ræði leggur Dögun
„ríka áherslu á ákvörð-
unarrétt hinna ýmsu
hópa samfélagsins“
Höfundur er stjórnmálafræðingur og
í 5. sæti á lista Dögunar í Reykjavík.
Sundabraut er væg-
ast sagt þarfaþing
sem ekki hefur verið í
umræðunni í þeim
mæli sem hún ætti að
vera. Hugmyndir að
Sundabraut hafa verið
inni á aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar
frá árinu 1984. Innan-
ríkisráðherra og vara-
formaður Sjálfstæð-
isflokksins, Hanna
Birna Kristjánsdóttir, gaf um-
ræðunni vítamínsprautu nýlega
með tillögum um að setja málið í
gang sem fyrst. Hún orðaði það
reyndar ekki svona, en innihald
orðræðunnar var í þessa veru. Ég
tek heilshugar undir með henni og
hvet til þess að sveit-
arstjórnarmenn og
alþingismenn á höf-
uðborgarsvæðinu taki
höndum saman og
komi þessu verkefni í
gang á sýnilegan hátt.
Hugsa mætti sér að
strax eftir kosningar
um næstu helgi verði
stofnað einskonar sam-
starfsráð sveitarfélaga
og alþingismanna til
þess að ræða útfærslur
og gera tillögur um
framkvæmd. Sam-
starfsráðinu verði sett tímamörk
um skil á tillögum sem stjórnvöld
tækju síðan til skoðunar. Ýmislegt
er til á teikniborðinu um Sunda-
braut enda um stórverk að ræða.
Hlutverk samstarfsráðsins gæti
fyrst og fremst verið að ræða fjár-
mögnun og öryggisatriði en miklu
skiptir að hægt sé að rýma borgina
skjótt og örugglega, reynist það
nauðsynlegt.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
frá því umræðan um Sundabraut
kom fyrst upp á borðið en í sjálfu
sér hefur ekki mikið gerst. Höfum
hugfast að hér er um að ræða mikið
hagsmunamál, bæði fyrir íbúa höf-
uðborgarsvæðisins sem og þá sem
hingað eiga erindi. Sundabraut er
ekki bara þörf – hún er nauðsyn.
Sundabraut
Eftir Ásgerði
Halldórsdóttur
Ásgerður
Halldórsdóttir
» Ýmislegt er til á
teikniborðinu um
Sundabraut enda um
stórverk að ræða.
Höfundur er bæjarstjóri
Seltjarnarness.
Stutt í sumarfrí
í Gullsmáranum
Spilað var á 12 borðum í Gull-
smára mánudaginn 26. maí.
Úrslit í N/S:
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 227
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 198
Samúel Guðmundss. - Jón Hanness 185.
A/V
Magnús R. Jónsson - Pétur Jósefsson 216
Björn Pétursson - Valdimar Ásmundss. 211
Ágúst Vilhelmsson - Kári Jónsson 195
Lokaspiladagar fyrir sumarfrí
verða í næstu viku, mánudag og
fimmtudag.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Mánudaginn 26. maí var spilaður
tvímenningur hjá bridsdeild Félags
eldri borgara Spilað var á 11 borð-
um.
Efstu pör í N/S:
Siguróli Jóhannss. – Sigurður Jóhannss. 264
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 241
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 238
A/V
Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 293
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 279
Trausti Friðfinnss. – Guðl. Bessason 274
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
mbl.is
alltaf - allstaðar