Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 56
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Mér finnst að borg-
aryfirvöld hafi verið
afar slöpp í því að
vinna gegn ýmsum
umhverfislýtum sem
er að finna víðsvegar
um borgina. Það hef-
ur oft áður á vett-
vangi Morgunblaðsins
verið fjallað um þau
mál, en því miður án
þess að gaumur hafi
verið gefinn að eðli-
legum ábendingum um það sem
betur má fara. Nú þegar dregur
að borgarstjórnarkosningum er
ekki úr vegi að kjósendur skoði
afrekaskrá núverandi meirihluta í
þeim efnum og íhugi hvort vítin
séu til þess að varast þau og hvort
þeir vilji hreina og snyrtilega
borg. Ég hvet Reykvíkinga til
þess að spyrja frambjóðendur til
borgarstjórnar þ.m.t. í öllum
Gnarrfylkingarafleggjurum hvað
þeim finnist um eftirfarandi og
hvort eða hvað eigi að gera í mál-
unum eða hvort afgreiða eigi út-
svarsgreiðendur með meira af því
sama?
Krot og málning
Veggjakrot er augljós
hörmungarsjón og slæm skemmd
á eignum. Þetta var að lagast
sums staðar um hríð þegar þáver-
andi borgaryfirvöld lögðu metnað í
að vera með stöðuga hreinsun sem
mér fannst nokkuð skynsamleg
sálfræðibarátta og skilaboð til
skemmdarvarganna um að þetta
yrði ekki liðið. Þetta tókst nokkuð
vel þar sem ég sá til og vargarnir
gáfust upp um hríð og var allt
hreinna og fallegra víða í nokkurn
tíma. Þetta hefur hins vegar
versnað aftur og mjög hin síðustu
ár og get ég vitnað um harmkvæl-
una við göngubrúna og á útbíuð-
um stöplunum undir Gullinbrú við
Grafarvog en ekkert er að gert,
hvað þá að þessi andskoti sé upp-
rættur úr miðbænum, sem er
vægast sagt hörmuleg borg-
arkynning. Hvað finnst frambjóð-
endum um sóðaskapinn? Á að gera
málarmeisturunum að greiða fyrir
skemmdirnar og svo sekta þá að
auki eða þá að mála sárvantandi
öryggismerkingar á götum eins og
sebrabrautir í staðinn? Finnst
þeim hverjum og einum svona lag-
að velviðunandi eða hvernig vilja
þeir að borgin bregðist við?
Bílakirkjugarðar
Ónýtir bílar og ým-
is efni og ónýtt föng
fyrir framan bygg-
ingar eða við götur
eru önnur lýti sem
eru látin viðgangast í
hverfum höfuðborg-
arinnar og alls kyns
tækja- og búnaðarhræ
víða og keyri ég dag-
lega fram hjá slíkum.
Hvað ætlar þú fram-
bjóðandi góður að
gera til þess að slíkt
verði alls staðar hreinsað burt eða
finnst þér þetta í lagi eins og frá-
farandi meirihluta augljóslega
finnst?
Frágangur
Ófrágengnar byggingar eru víða
um borgina og eru jafnvel bygg-
ingar, sem eru komnar til ára
sinna, enn ópússaðar, ómálaðar
eða óklæddar og eru hryggð-
armyndir að sjá og á þetta einkum
við iðnaðarhúsnæði. Hvað finnst
þér og þínum flokki um svona
slóðaskap? Finnst þér þetta sæma
höfuðborg landsins? Hvað ætlið
þið að gera í málunum?
Blettasár
Ókláraðir lóðablettir og smá
svæði, sem særa augun, eru því
miður víða þ.m.t. í eldri iðn-
aðarhverfum, sem ættu að vera
löngu fullgróin. Auðvelt ætti að
vera að sá grasfræjum, gróð-
ursetja lágvaxna kvisti eða tré eft-
ir því sem við á og gera mönnum
að gera slíkt hið sama inni á lóð-
um sínum ef þarf. Ætlar flokkur
þinn að standa fyrir slíku fegr-
unarátaki eða vill hann halda í
augnkvölina?
Viðhald
Viðhaldi bygginga að utan og
girðinga er víða ábótavant og ekki
til mikillar ununar hvorki fyrir ná-
granna né tilfallandi gesti. Hvað
finnst þér og þínum flokki um
svona? Eruð þið með ákveðnar
áætlanir um úrbætur?
Forsmán
Rusl er ætíð mikil þjáningarsjón
og það er hreint ótrúlegt að horfa
upp á það þegar fólk hendir því út
um bílglugga. Vilt þú og þinn
flokkur að kerrur og vörupallar
séu byrgð, að átak sé gert í því að
hreinsa upp rusl, að sóðabrækur
verði sektaðar eða eru þið ánægð
með skömmina? Ef ekki hvað ætl-
ið þið þá að gera í raun og alvöru?
Gróðurhirða
Grassláttarstyggð og slæm um-
hirða hefur verið allsráðandi og til
mikilla augnasárinda, ófrægðar og
skömmustu undanfarin sumur.
Eins og allir vita þá hefur mun-
urinn á milli nærliggjandi sveitar-
félaga og Reykjavíkur verið eft-
irtektarverður og hefur skipt
alveg um frá vel slegnu og snyrti-
legu þar yfir í lubbann og órækt-
ina í höfuðborg Íslands og beða-
ræksla hefur verið víða til vansa
eins og dæmin sanna. Ert þú og
flokkur þinn hrifinn af þessu eða
hvernig ætlið þið standa að mál-
unum?
Margur er vargur
Ég bý við Grafarvoginn og fer
stundum í bíltúr niður að tjörn á
sumrin. Ég hef horft upp á fugl-
varginn tína upp ungana þannig
að t.d. í fyrra var varla önd eða
æði að sjá með unga. Það sama er
að segja um hólmann í tjörninni.
Meindýravarnir borgarinnar svara
því til að þeir megi lítið gera þótt
fegnir vildu. Ætlar flokkur þinn
að styðja áfram vargfuglinn, sem
ekkert gagn gerir eða vilt þú ljá
minnimáttar fiðurfé og ungviði
þess stuðning þinn og ef svo er þá
nákvæmlega hvernig?
Sleifarlag
Mér finnst umhverfismál vera
meðal undirstöðuatriða borg-
armála. Látið ekki frambjóðend-
urna komast upp með merking-
arlaust orðablaður, heldur að þeir
standi fyrir svörum og skuldbindi
sig í leiðinni. Það er hins vegar
ljóst að núverandi ráðamenn eru
blindir fyrir þessum málum ella
væri þetta ekki svona. Þá er það
spurningin hvort Reykvíkingar
kjósa sér meira af því sama eða
ætla þeir að hreinsa þann fé-
lagsskap burt með öðru slóðaríi?
Mér finnst sjálfum nóg komið og
vil breytingar.
Hvað segja frambjóðendur um
umhverfislýti í Reykjavík?
Eftir Kjartan Örn
Kjartansson » Það er ljóst að nú-
verandi ráðamenn
eru blindir fyrir þessum
málum ella væri þetta
ekki svona.
Kjartan Örn
Kjartansson
Höfundur er borgarbúi og fyrr-
verandi forstjóri.
Þegar við Seltirn-
ingar göngum að
kjörborði í lok mán-
aðarins vitum við
tvennt: Bænum okkar
er stjórnað af festu og
ábyrgð en það er
hægt að gera enn bet-
ur enda hefur meiri-
hluti Sjálfstæð-
isflokksins skapað
tækifæri til þess. Í
kjörklefanum tökum við sameig-
inlega ákvörðun um hvort þessi
tækifæri verða nýtt.
Árangurinn í rekstri og þjónustu
okkar góða bæjar á síðustu árum
er öfundsverður. Þrátt fyrir erfiðar
aðstæður í efnahagsmálum þjóð-
arinnar, hefur okkur tekist - með
ráðdeild, fyrirhyggju og réttri for-
gangsröðun - að tryggja öfluga
þjónustu, hófsemd í álögum og
lækkun skulda.
Það er því engin tilviljun að 95%
íbúa eru ánægðir með búsetu-
skilyrðin.
Ábyrg og öguð fjármálastjórn
Ábyrgð og festa hefur einkennt
rekstur bæjarsjóðs á kjör-
tímabilinu. Fagleg vinnubrögð hafa
verið lögð í vinnu við fjárhagsáætl-
anir sem starfsmenn, stjórnendur í
samstarfi við kjörna fulltrúa hafa
sett fram af ábyrgð og skynsemi.
Niðurstaða þessara ábyrgu vinnu-
bragða er sú að bæjarsjóður hefur
verið rekinn með góðum afgangi
sem aftur skapar tækifæri til að
greiða niður skuldir.
Fjárhagsleg staða er því sterk og
71% eiginfjárhlutfall ber vitni um
fjárhagslegan styrk. Sem hlutfall af
rekstrartekjum eru skuldir aðeins
55% af rekstrartekjum – langt und-
ir því sem krafist er í lögum þar
sem miðað er við 150%. Þessum ár-
angri höfum við náð samhliða því
að halda álögum á íbúa með því
lægsta sem þekkist á landinu.
Það er því ekki tilviljun að marg-
ir líti til okkar á Nesinu í leit sinni
að fyrirmynd um hvernig hægt sé
að reka sveitarfélag, þar sem sam-
an fara lágar álögur, litlar skuldir
og öflug þjónusta.
Á sama tíma og rekstur sveitar-
félagsins hefur skilað afgangi hefur
verið unnið að mikilvægum við-
haldsverkefnum en u.þ.b. einum
milljarði króna hefur verið varið í
viðhald, uppbyggingu og fegrun
bæjarins. Þetta er vitnisburður um
metnaðarfulla stefnu og ábyrga
meðferð mikilvægra
eigna sem við Seltirn-
ingar erum stoltir af.
Framtíðin er björt
Sú ráðdeild sem ein-
kennt hefur rekstur
bæjarsjóðs skapar
okkur tækifæri til
framtíðar til að veita
bæjarbúum enn betri
þjónustu. Við sjálf-
stæðismenn ætlum að
nýta góðan árangur til
þess að bæta hag og auka þjón-
ustuna.
Á grunni þess sem gert hefur
verið getum við sjálfstæðismenn
gefið loforð sem við vitum að hægt
er að standa við, loforð um að gera
enn betur:
Fasteignaskattur verður lækk-
aður um 5%. Styrkir til tómstunda
verða hækkaðir úr 30 þúsund krón-
um í 50 þúsund. Leikskólagjöld
verða lækkuð um 25%.
Við sjálfstæðismenn viljum að
allir Seltirningar njóti með beinum
hætti þess góða árangurs sem
náðst hefur og þá ekki síst barna-
fjölskyldur. Á komandi kjörtímabili
verður það sameiginlegt verkefni
okkar að bæta og styrkja okkar
góðu skóla og efla íþróttastarfsemi.
Við ætlum að gera skólana okkar
enn betri og efla enn frekar allt
starf þeirra sem yngri eru, en um
leið styrkja þjónustu við eldri borg-
ara.
Allt þetta er hægt með festu í
rekstri sveitarfélagsins. Um leið
skapast svigrúm til að lækka út-
svar.
Við sjálfstæðismenn á
Seltjarnarnesi höfum sýnt og sann-
að að forsenda öflugrar þjónustu er
aðhaldssemi í fjármálum og lágar
álögur.
Við getum og mun-
um gera enn meira
Eftir Guðmund
Magnússon
Guðmundur Magnússon
» Þrátt fyrir erfiðar
aðstæður í efna-
hagsmálum þjóðarinn-
ar, hefur okkur tekist -
með ráðdeild, fyr-
irhyggju og réttri for-
gangsröðun - að tryggja
öfluga þjónustu, hóf-
semd í álögum og lækk-
un skulda.
Höfundur er bæjarfulltrúi og í 2. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins á
Seltjarnarnesi.
Að henda verðmæt-
um er að mínu mati
ekki góðir við-
skiptahættir.
Verðmæti geta ver-
ið af ýmsum toga. Það
liggur kannski ekki í
augum uppi að rusla-
pokar heimilisins séu
fullir af verðmætum.
Fyrsta hugsun getur
verið að þetta sé bara
rusl. En efni hefur
þann góða eiginleika að geta um-
breyst. Kaffikorgurinn okkar,
ávaxtahýðið og afgangurinn sem
gleymdist inni í ísskáp getur t.a.m.
orðið að mold. Það kostar peninga að
flytja úrgang og urða hann. Reyndin
er meira að segja sú að það kostar
meira að losna við það sem mætti
kalla almennt sorp en endurvinn-
anlegan úrgang. Það sorglega er að
af þeim úrgangi sem til fellur frá
heimilum er stór hluti sem má end-
urvinna. Landsáætlun um með-
höndlun úrgangs sem
Umhverfisstofnun gaf
út fyrir árin 2013-2024
er leiðbeinandi fyrir
sveitarfélög varðandi
svæðisbundnar áætl-
anir í málaflokknum.
Meginmarkmið áætl-
unarinnar er að stuðla
að því að meðhöndlun
úrgangs valdi sem
minnstum óæskilegum
áhrifum á umhverfið og
að dregið verði skipu-
lega úr myndun úr-
gangsefna eftir því sem
unnt er. Er það m.a. hægt með því
að draga markvisst úr myndun úr-
gangs og þess í stað auka end-
urnotkun og endurnýtingu. Að
flokka úrganginn sem fellur til á
heimilinu á að vera einfaldur og fyr-
irhafnarlítill verknaður og besta
leiðin til þess er að bjóða upp á fleiri
flokkunarkosti við heimilin. Í dag er
flokkaður úrgangur frá heimilum
sveitarfélagsins Árborgar um 15%.
Með því að bæta við flokkunarkost-
um fyrir plast og málma væri hægt
að hækka hlutfallið í 20-25%. Ef
flokkun fyrir lífrænan úrgang er
bætt við eykst hlutfallið í u.þ.b. 50%
en 30% af heimilisúrgangi eru líf-
ræn. Flestir ef ekki allir nota bláu
tunnuna sem var innleidd í Árborg
fyrir örfáum árum. Við hjá Bjartri
framtíð viljum auka möguleika íbúa
Árborgar til auðveldari endur-
vinnslu. Ekki er það einungis um-
hverfisvænna heldur líka hagkvæm-
ara þar sem flutningskostnaður á
almennu sorpi er mun hærri en á
endurvinnanlegum úrgangi og því
myndu sparast fjármunir sem
mögulega væri hægt að nýta í aðra
málaflokka í staðinn.
Erum við að henda verðmætum?
Eftir Guðríði Ester
Geirsdóttur
Guðríður Ester
Geirsdóttir
» Það sorglega er að af
þeim úrgangi sem til
fellur frá heimilum er
stór hluti sem má end-
urvinna.
Höfundur er umhverfis- og auðlinda-
fræðingur og í 4. sæti á lista Bjartrar
framtíðar í Árborg.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.