Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 60

Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 Náðu þér í aukin ökuréttindi Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi Öll kennslugöng innifalin www.bilprof.is Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga Næsta námskeið hefst 4. júní ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku Meirapróf Þekking og reynsla í fyrrirúmi Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is Vorið er tími tilhlökkunar og sköp- unar, með birtunni kemur meiri orka og hugmyndir frjóvgast,“ segir Unnur Valdís Kristjánsdóttir hönn- uður. „Handan við hornið eru ferða- lög sem bjóða upp á nýjar og spenn- andi upplifanir og samveru við gott fólk. Vorið er tími til að kasta af sér þungum vetrarhamnum og anda djúpt. Ég finn þörfina fyrir að fara með líkama og sál í ástandsskoðun því allt þarf að vera í toppstandi fyr- ir sumarið, þá þarf orkuflæðið að vera gott til að framkvæma allt sem mann dreymir um á frekar stuttum tíma. Á sumrin myndast þetta skemmtilega svigrúm til að beygja og sveigja allar rútínur og reglur, vera dálítið „spontant“ og fram- kvæma hugmyndir með stuttum fyrirvara. Íslensk sumur með björt- um nóttum bjóða til dæmis upp á að lagt sé af stað í ferðalag á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Miðnæt- urflot í fallegri náttúrulaug undir bleikum sumarhimni er til dæmis góð hugmynd á björtu sumarkvöldi, eða fjölskyldupikknikk á fögrum stað.“ Konur á fjöllum Unnur Valdís er mikil útivist- armanneskja og kveðst nota hvert tækifæri sem gefst yfir sumartím- ann til að njóta náttúrunnar. „Þá snýst allt um útivist. Ég er fjalla- geitin í fjölskyldunni og er svo lán- söm að vera í frábærum kvennahópi sem gengur saman á fjöll á hverju sumri. Þar ríkir mikil ævintýra- mennska, samstaða og umfram allt gleði. Við fjölskyldan erum frekar óskipulögð í ferðalögum okkar og látum veður eða einstaka fótbolta- mót strákanna ráða för. Við kunnum vel að meta góðar vatnsupplifanir og síðasta sumar eltum við laugar landsins; tókum fyrir Norðurlandið og þræddum laugar þar. Ferðin endaði svo í dásamlegu nuddi í Jarð- böðunum á Mývatni hjá Ástu Price.“ Hún segir íslensk sumur engu lík. „Náttúran kallar á mann og fátt er meira freistandi en að vera sem mest með bakpokann á ferðalögum um íslensk fjöll. Sem sannur Íslend- ingur spái ég svo sannarlega í veðr- ið, en ég reyni hins vegar að láta það ekki stoppa mig. Nema þegar um fjallaferðir er að ræða, þá er ekkert vit í öðru en að vera skynsöm og beygja sig og bukta fyrir náttúrunni og veðrinu. Vera tilbúin að breyta áætlun ef ferðaplönin samrýmast ekki veðurspánni.“ Rauðar úr Skammadal Unnur Valdís býr í gamla mið- bænum og er með myndarlegan garð á bak við hús sem allir íbúarnir sinna sameiginlega. „Garðurinn er mikið notaður, bæði af okkur og öðr- um íbúum hússins; stærð hans býður upp á alls kyns skemmtilegheit og þar er oft slegið upp veislum á sumr- in. Í fyrravor tóku allir íbúar sig saman og voru með myndarlegan flóamarkað í garðinum, hann var vel sóttur og það myndaðist frábær stemning. Mig dauðlangar í framtíðinni að verða grænni, snúa mér meira að ræktun og koma mér upp mynd- arlegum matjurtagarði. Undanfarin ár hefur fjölskyldan verið með kart- öflugarð í Skammadal en uppskeran hefur svo sem ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Mér finnst samt dásamlega rómantískt að stússa í litla kartöflugarðinum með fjöl- skyldunni og tel það hafa mikilvægt lærdómsgildi fyrir börn að taka þátt í matjurtarækt.“ Sjósund og jóga Spurð út í heilsurækt, hvort áherslurnar séu aðrar á sumrin, kveðst Unnur Valdís laðast að vatni, sumar jafnt sem vetur. „Hreyfingu og heilsurækt sumars- ins fæ ég í gegnum göngur og sund, ég fer mikið í sundlaugar og stunda líka sjósund. Ég var reyndar ódug- leg að mæta í Nautshólsvíkina í vet- ur en ætla að bæta mig í sumar og dýfa mér í sjóinn eins oft og ég get, það er svo ótrúlega nærandi. Hjá mér snýst sjósundið ekki endilega um úthald og getu, ég er meira fyr- ir smá spretti sem hafa þau áhrif að vekja allar frumur líkamans og færa mér orku, vellíðan og sterkara ónæmiskerfi. Svo er það þessi frá- bæra náttúrutenging sem ég upplifi í sjónum sem er eiginlega ólýs- anleg. Ég hef stundað jóga í mörg ár og það er alltaf yndislegt að komast á gott jóganámskeið á sumrin, eða taka þátt í Jógahátíðinni á sum- arsólstöðum þar sem jóga er iðkað frá morgni til kvölds. Þetta er frá- bær hátíð þar sem fléttað er saman jóga, fyrirlestrum, hugleiðslu og náttúruskoðun. Í ár verður Jógahá- tíðin haldin að Varmalandi í Borg- arfirði seinnipartinn í júní og ég færi svo sannarlega ef ég væri á landinu.“ Samflot í Berlín Hún bendir á að sumarið verði með nokkuð öðru sniði nú en vana- lega. „Ég mun eyða öllu sumrinu í Þýskalandi, nánar tiltekið í Berlín. Það er auðvitað algjör synd að missa af íslensku sumri og þetta er und- antekning frá reglunni að vera heima yfir sumartímann. Við fjöl- skyldan ætlum að búa í Prenzlauer Berg-hverfinu og sinna vinnu, auðga andann og kynna Þjóðverjum verk- efni mitt Float.“ Spurð nánar út í verkefnið segir hún það snúast um fljótandi djúp- slökun með Float-vörulínu hennar, flothettu og fótaflot, sem þróaðist út frá verkefni við Listaháskóla Ís- lands og hún vinnur að markaðs- setningu á, bæði hérlendis og er- lendis. „Hugmyndin byggist á því að nýta vatnið okkar dýrmæta til heilsubótar og auðga um leið bað- menningu okkar Íslendinga, sem og annarra þjóða. Það er engin tilviljun að ég valdi að verja sumrinu í Berlín, raunin er sú að í Þýskalandi líkt og á Íslandi er horft til vatnsins í lækningar- og endurnæringarskyni. Þjóðverjum þykir mjög forvitnilegt að stunda fljótandi slökun, sem má segja að sé nýjasta viðbótin í baðmenningu okk- ar Íslendinga. Það er ótrúlega áhrifarík slökun og mögnuð upplifun að fljóta um í fullkomnu þyngd- arleysi, umvafinn vatni. Margir af sjúkdómum nútímans eru taldir tengjast streitu og álagi og æ fleiri gera sér grein fyrir mikilvægi hug- leiðslu og slökunar í því sambandi, bæði lærðir og leikir.“ Vestfirskar laugar Hún segir óneitanlega gaman að geta miðlað af reynslu sinni og fá tækifæri til að kynna Float- verkefnið og dásemdir íslenskrar baðmenningar á erlendri grundu. „Við búum í landi vatnsauðlegðar og hér er blómleg sundmenning. Það er mjög ánægjulegt ef við Íslendingar erum frumleg við að nýta vatnið til heilsubótar, þannig að eftir sé tekið í öðrum löndum. Segja má að vatnið eigi hug minn allan og ég er byrjuð að skipuleggja sumarið 2015 í huganum. Við fjöl- skyldan heillumst mest af Snæfells- nesi og Vestfjörðum og draumurinn er að eignast þar lítið athvarf á fal- legum og friðsælum stað, ekki er verra ef það er við sjóinn. Á planinu er að fara í skipulagða göngu með náttúrulaugahoppi um Vestfirði og Strandir en ég á eftir að fljóta í mörgum af dásemdarlaugunum sem þar eru og á því enn margt eftir órannsakað.“ Tími tilhlökkunar Flot Unnur Valdís í fljótandi djúpslökun í sundlauginni að Gljúfrasteini. Morgunblaðið/Golli Hleðsla Unnur Valdís Kristjánsdóttir: „Ég finn þörfina fyrir að fara með lík- ama og sál í ástandsskoðun því allt þarf að vera í toppstandi fyrir sumarið.“  Unnur Valdís Kristjánsdóttir hönnuður gengur á fjöll, syndir í sjónum, stundar jóga og ræktar garðinn sinn  Sumrinu verður varið í Berlín þar sem hún hyggst kynna Þjóðverjum Float-verkefni sitt með tilheyrandi slökun SUMARIÐer tíminn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.