Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
–– Meira fyrir lesendur
:
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sumarblað um
Tísku og förðun
föstudaginn
6. júní 2014
Tíska & förðun
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
2. júní.
Í Tísku og förðun
verður fjallað um
tískuna sumarið 2014
í fatnaði, förðun
og snyrtingu auk
umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira
SÉRBLAÐ
SUMARIÐer tíminn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það var í miðri kreppunni að Jósep
Grímsson og kona hans Regína Óm-
arsdóttir ákváðu að opna ísbúð. Þau
eiga og reka Ísfólkið í Spönginni 25
og fá börnin á heimilinu að hjálpa til
á bak við búðarborðið eins og þörf er
á.
Jósep segir fjölskylduna hafa
stundað það við hvert tækifæri að
fara í bíltúr að kaupa ís, og það hafi
verið í kringum þá ánægjulegu bíl-
túra að hugmyndin að Ísfólkinu fór
að verða til.
„Húsnæðið þar sem ísbúðin er í
dag hafði staðið autt um nokkurt
skeið, en hér var áður verslun
ÁTVR. Lengi hafði ég haft augastað
á rýminu og var um leið farið að
langa að stunda eigin rekstur
eftir að hafa starfað sem sölu-
og markaðsstjóri hjá Ofna-
smiðjunni og síðar hjá Kötlu.
Okkur Regínu fæðist dóttir
árið 2008 og eftir fæðing-
arorlofið hugsa ég með
mér að kominn sé tími til
að breyta til.“
Segist Jósep að við opn-
un ísbúðarinnar hafi hann
ekki haft nein kynni af ís önn-
ur en þau að hafa borðað mikið af
honum yfir ævina. „Rekstur ísbúð-
ar heillaði okkur því við höfðum tek-
ið eftir að í ísbúðum eru allir ham-
ingjusamir. Það fer enginn að kaupa
sér ís og hreytir einhverju ónotalegu
í afgreiðsumanninn og allir kveðja
glaðir í bragði.“
Fikta við uppskriftina
Ísgerð er í sjálfu sér ekki flókin.
Þarf ekki mikið meira til en vand-
aðar ísvélar og svo ísblöndu frá
Kjörís. „Ísinn í flestum ísbúðum
landsins er að uppistöðunni sá sami,
en svo geta búðirnar gert tilraunir
eftir eigin höfði til að gera ísinn
meira að sínum. „Við búum til dæm-
is til sérstakan jólaís á aðventunni
þar sem við blöndum sérstökum pip-
armyntu- og
súkkulaðibragð-
efnum út í ísinn og
gefum honum líka jóla-
legan lit. Einnig höfum
við þróað kókosís sem
hreinlega rýkur út úr
búðinni. En það er léttur
og sérlega bragðgóður ís
og ótrúlega vinsæll yfir
sumartímann svo við nán-
ast mokum honum út.“
Annað sérkenni búð-
arinnar er það sem Jósep
kallar „gamli ísinn“. „Hann
er kaldari og ferskari en hefðbundni
rjóma- eða jurtaísinn og þykir minna
á Brynjuísinn á Akureyri. Ótrúlegur
fjöldi Norðlendinga eru fastakúnnar
okkar og koma hingað til Ísfólksins
þegar þá langar í ís eins og þann sem
þeir eru vanir frá höfuðstað Norður-
lands.“
Vöruþróunin heldur áfram og
hvert sumar má reikna með að finna
eitthvað nýtt og forvitnilegt í ísbúð-
inni. „Nammisjeik er nýjasta til-
raunin okkar og felur í sér að blanda
saman eiginleikum bragðarefs og
mjólkurhristings. Rétt eins og með
bragðarefinn er þremur sælgæt-
istegundum blandað við ísinn en allt
fer þetta í hakkara og er brytjað
mjög smátt svo að drekka má ísinn
með röri frekar en að borða með
skeið. Útkoman er ótrúlega góð og
upplifunin eins og að drekka
nammi.“
Talandi um bragðaref þá er hann
langsamlega vinsælasta varan.
„Nærri helmingur af öllum pönt-
unum er lítill bragðarefur. Vinsæl-
asta samsetningin er bragðarefur
með þristi, dæm og jarðarberjum og
mætti kalla það ríkisbragðaref okk-
ar Íslendinga.“
Jakob segir íssöluna ráðast nær
alfarið af veðurfarinu. Sem ís-
búðarstjóri verði hann að vakta
veðurspána vel og ef von er á sól
og blíðu er eins gott að hafa nógu
marga starfsmenn til taks í búð-
inni. „Utan sumartímans er salan
töluvert minni, en þó stöku ís-
unnandi sem rekur inn nefið yfir
daginn. Við erum líka við hliðina
á heilsugæslustöð og ekki óal-
gengt að foreldrar komi hingað
til okkar með börnunum eftir
læknisheimsókn og er ísinn verð-
laun fyrir að hafa hegðað sér vel
í skoðuninni.“
Salan er, merkilegt
nokk, ekki mest þeg-
ar sólin er
allrahæst á
lofti og hit-
inn mestur
utandyra. „Stærstur hluti söl-
unnar á sér stað eftir kl. 20 á
kvöldin og viðskiptavinirnir að
meirihluta til pör á aldrinum 18-
25 og svo fjölskyldufólk á
miðjum aldri.“
Svo skrítið sem það kann að
hljóma þá segist Jósep hafa
dregið mjög úr ísneyslunni eftir
að ísbúðin hóf rekstur. Sömu
sögu er ekki að segja um sum
börnin á heimilinu og nýta þau
sér það til hins ýtrasta að eiga
foreldra sem reka ísbúð. „Sú
yngsta er núna orðin sex ára og
heimtar ís daglega. Ég hugsa að
hún væri orðin eins og bolti í lag-
inu ef hún væri ekki svona ótrú-
lega dugleg í íþróttum. Hún æfir
sund af kappi og verður senni-
lega komin á Ólympíuleikana
eftir tólf ár.“
Veðrið stýrir sölunni
Morgunblaðið/Ómar
„Í ísbúðum eru allir hamingjusamir“
Jósep íssali segist nánast moka út vin-
sæla kókosísnum Áhugaverðar tilraunir
með „nammisjeik“ sem blandar saman eig-
inleikum bragðarefs og mjólkurhristings
Draumavélin Jósep Grímsson
með syni sínum Alexander
Huga. Jósep segist ekki hafa
haft neina reynslu af ísgerð
þegar hann opnaði Ísfólkið,
aðra en þá að hafa borðað
kynstrin öll af ís yfir ævina.