Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 72
72 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
Óli Örn Eiríksson fagnar 35 ára afmæli sínu í dag. Hann er við-skiptafræðingur með meistaragráðu frá CBS í Kaupmanna-höfn og starfar sem deildarstjóri atvinnuþróunar hjá
Reykjavíkurborg.
Markmið starfsins er að kynna Reykjavíkurborg sem fjárfesting-
arkost fyrir erlend fyrirtæki og efla hagkerfi borgarinnar. Til dæm-
is má nefna opnun Seturs skapandi greina við Hlemm í desember sl.
í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. „Hlemmur er eitt af
mest spennandi vaxtarsvæðum borgarinnar og mjög gaman að sjá
skapandi greinar, sem eru lykilhluti af hagkerfi höfuðborgarinnar,
fá góða aðstöðu þar.“
Nú vinnur Reykjavíkurborg ásamt Háskóla Íslands, Háskólanum í
Reykjavík og Landspítalanum að uppbyggingu á þekkingartengdri
starfsemi undir heitinu „Reykjavik Science City“.
Óli er giftur Auðbjörgu Ólafsdóttur, sérfræðingi í fjárfesta-
tengslum hjá Marel. Þau eiga tvo syni, Eirík Skorra og Ólaf Flóka,
og býr fjölskyldan í 106 ára timburhúsi í Hafnarfirði.
Óli hyggst halda upp á daginn með nánustu fjölskyldu. Í sumar
hyggst fjölskyldan skipta um húsnæði við fjölskyldu í Barcelona,
fara til Vestfjarða auk þess sem þau hjónin eru boðin í nokkur brúð-
kaup í útlöndum á komandi mánuðum. sh@mbl.is
Óli Örn Eiríksson er 35 ára í dag
Morgunblaðið/Þórður
Fjölbreytt starf Óli Örn Eiríksson hefur í nógu að snúast við þróun
atvinnu hjá Reykjavíkurborg.
Mikilvægt að efla
skapandi greinar
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Ísak Ernir B. Dav-
íðsson og Ingi-
mundur Ármann
Ingimundarson
færðu Rauða
krossinum í
Barðastrand-
arsýslu 1.472
krónur sem þeir
söfnuðu með því
að ganga í hús og
syngja.
Söfnun
K
ristian Guttesen fædd-
ist í Kaupmannahöfn í
Danmörku 29.5. 1974,
en fyrstu ár ævi sinnar
bjó hann ásamt fjöl-
skyldu sinni þar og síðan í Freder-
ikssund á Norður-Sjálandi. Hann
fluttist til Íslands 1980 og átti heima
í Mosfellssveit frá 1985.
Lærði verkfærði í Wales
Kristian dvaldi við nám í Bret-
landi frá 1995 þar sem hann lauk BS-
prófi í hugbúnaðarverkfræði frá Gla-
morgan-háskólanum í Wales 1999.
Eftir námið flutti hann til Íslands og
bjó í Reykjavík til ársins 2013.
Kristian hefur frá tvítugsaldri birt
sögur og ljóð í tímaritum og dag-
blöðum á Norðurlöndum og á síðasta
námsári sínu í Wales ritstýrði hann
bókmenntatímaritinu Eclipse.
Haustið 2006 var hann ritstjóri Her-
mes, tímarits heimspekinema við
Háskóla Íslands.
Frá sumrinu 2011 hefur Kristian
ritstýrt sem og safnað og samið efni
fyrir vef um gagnrýna hugsun og
siðfræði í skólum fyrir Heim-
spekistofnun HÍ og 2012-2013 var
hann formaður Félags heimspeki-
kennara.
Í framhaldsnámi sínu nam Kristi-
an heimspeki, ritlist og kennslufræði
framhaldsskóla. Haustið 2013 flutti
hann ásamt unnustu sinni Sigur-
björgu Sæmundsdóttur – eða Siggu
eins og hún er kölluð – og dóttur
Kristian Guttesen, framhaldsskólakennari og ljóðskáld – 40 ára
Ljósmynd/Sigurbjörg Sæmundsdóttir
Feðgarnir „Það hafði lengi blundað í mér að búa úti á landi og það hefur komið á daginn að það á mjög vel við mig.“
Með nýja ljóðabók í til-
efni fertugsafmælisins
Ljósmynd/Sigurbjörg Sæmundsdóttir
Börnin „Það er gott fyrir barna-
fjölskyldur að búa á Egilsstöðum.“
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum.
Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og
örugg gæði frá fagmönnum.
Verktakar – húsbyggjendur
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA