Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 73
hennar austur á Hérað og gerðist
kennari við Menntaskólann á Egils-
stöðum.
Kristian hefur gefið út átta frum-
ortar ljóðabækur og eina þýðingu á
norsku skáldsögunni Brekkunni eft-
ir Carl-Frode Tiller. Fyrir hana var
hann tilnefndur til Íslensku
þýðingarverðlaunanna 2007. „Nýj-
asta bók mín, Í landi hinna ófleygu
fugla, kemur út í tilefni fertugs-
afmælis míns þann 29. maí 2014, en
hún samanstendur af ástarljóðum til
Siggu.“ Hér getur að líta titilljóð
bókarinnar:
Í landi hinna ófleygu fugla býr vatna-
stelpan.
Þar býr félagi minn, sem ekki lengur
dregur andann.
Í landi hinna ófleygu fugla hvílir hin
ígrundaða reynsla.
Ég þarf sjálfur að hafa mig allan við til
að gleyma ekki að anda. Í landi minn-
inganna er eilíft myrkur.
Alheimurinn þenst út, hin lifaða
reynsla boðar alkul.
Það eina sem dregur hann saman og
bindur okkur traustum böndum er ást.
Fjölskylda
Maki Kristians er Sigurbjörg Sæ-
mundsdóttir, f. 14.8. 1981, kvik-
myndagerðarmaður frá Kvikmynda-
skóla Íslands. Foreldrar hennar eru
Andrea E. Benediktsdóttir, f. 6.4.
1951, d. 11.8. 2003, skrifstofumaður í
Reykjavík, og Sæmundur Haralds-
son, f. 8.8. 1950, geðlæknir í Svíþjóð.
Fyrri maki: Særún M. Samúels-
dóttir, f. 12. maí 1972.
Börn Kristians eru Búi Guttesen,
f. 14.7. 2002; Karin Guttesen, f.
23.11. 2004; Tristan Gjúki Guttesen,
f. 2.5. 2014. Stjúpbörn Kristians eru
Glóey Jónsdóttir, f. 8.10. 2000, og
Andrea Karítas Árnadóttir, f. 12.6.
2005. Uppeldissonur Kristians er
Jökull Máni Kjartansson, 18.10.
1997.
Systir Kristians er Anita Karin
Guttesen, f. 26. júní 1978, kennari og
skúlptúristi, bús. á Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Foreldrar Kristians eru Gutti
Guttesen, f. 27.2. 1953, trésmiður og
skólaliði á Akureyri, og Andrea
Kristiana Bjarnadóttir, f. 29.9. 1952,
sjúkraliði á Akureyri.
Úr frændgarði Kristians Guttesens
Kristian
Guttesen
Jens Christian Guttesen
(kallaður Kisan)
málarameistari, myndlistarmaður og
trompetkennari í Þórshöfn
Johanne Susanne Marie
Guttesen (kölluð Hanna)
húsfreyja í Þórshöfn
Óli Jógvan Guttesen
málarameistari í Þórshöfn í Færeyjum
Karin Dorthea Guttesen
húsfreyja í Þórshöfn í
Færeyjum
Gutti Guttesen
trésmiður og skólaliði á Akureyri.
Sivert Pauli Frederiksen
verkamaður í Kunoy og í
Klaksvík í Færeyjum
Marin Susanna Christina Fred-
eriksen (kölluð Sanna)
húsfreyja í Kunoy og í Klaksvík
Óskar Bernhard Bjarnason
efnafræðingur í Reykjavík
Bjarni Bernharður Bjarnason
skáld og listmálari
Kristín Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Júlíus Kemp
kvikmyndagerðarmaður
Ragnhildur Óskarsdóttir, Róska
listam. og kvikmyndagerðarm.
Borghildur Óskarsdóttir
myndlistarmaður í Reykjavík
Guðlaugur Jón Þorleifson
formaður í Mýrarkoti
Andrea Kristjana
Bessdóttir
húsfr. í Mýrarkoti í
Svarfaðardal
Ingibjörg Júlíana
Guðlaugsdóttir
húsmóðir á Selfossi
Bjarni Kristinn Bjarnason
afgreiðslumaður á Selfossi
Andrea Kristiana Bjarnadóttir
sjúkraliði á Akureyri
Bjarni Bernharðsson
verkam. í Rvík, síðar
bóndi á Eyvindarstöðum
Ragnhildur Höskuldsdóttir
húsf. í Rvík og á Eyvindarst. á Álftanesi
Hjónaleysin Sigga og Kristian.
Ljósmynd/Glóey Jónsdóttir
ÍSLENDINGAR 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
85 ára
Hanna E. Jónasdóttir
Skafti Björnsson
80 ára
Karl Guðnason
Kristján Friðrik Björnsson
Lóa Guðrún Gísladóttir
Valgerður B Gröndal
75 ára
Guðlaug Ingibergsdóttir
Jóhanna M. Helgadóttir
Jóna Sigríður Jónsdóttir
Margrét Sæbjörnsdóttir
Rafn Jóhannsson
70 ára
Bergþór Friðþjófsson
Guðrún Valdís
Ragnarsdóttir
Pálmi Kárason
Sólveig Hjálmarsdóttir
60 ára
Birgir Kaaber
Björk Hjaltadóttir
Erla Ásdís Kristinsdóttir
Guðbjörg Hákonardóttir
Gylfi Felixson
Katrín Ingibergsdóttir
Kristín Böðvarsdóttir
Margrét Sæunn
Frímannsdóttir
Marta Haraldsdóttir
Torfi Halldórsson
50 ára
Arnar Laufdal
Aðalsteinsson
Ásgeir Jónsson
Ásta Dóra Ingadóttir
Birgir Hauksson
Bylgja Hauksdóttir
Dagmar Kristín Hauksdóttir
Elín Eva Grímsdóttir
Guðrún Anna Erlingsdóttir
Heiðrún Dúadóttir
Pétur Logi Lo
Sherly Kannanaikkal
Sigþór Þórarinsson
Stanislaw Zacharek
Sævar Hilmarsson
Unnur Birna Karlsdóttir
Þorbjörg Elín Kristinsdóttir
40 ára
Arlene Ubay Becera
Björn Karlsson
Garðar Örn Guðmundsson
Guðmundur Ingi
Þóroddsson
Hrönn Hallgrímsdóttir
Jóhann Óskar Borgþórsson
Kathya Luisa Foelsche Polo
Paul Lars-Niclaes Jerkeholt
Róbert Örn Ásmundsson
30 ára
Aðalsteinn Grétar
Guðmundsson
Davíð Sigurðsson
Elín María Leósdóttir
Elsa Dung Ínudóttir
Guðmundur Þór
Böðvarsson
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Ívar Þór Guðmundsson
Kristín Theodóra
Guðmundsdóttir
Masashi Fujiwara
Piotr Tomasz Trzyna
Rafal Piotr Bronisz
Sædís Ósk Aðalsteinsdóttir
Vilhjálmur Hendrik
Karlsson
Til hamingju með daginn
40 ára Helga Huld er
Hafnfirðingur og er
grunnskóla- og íþrótta-
kennari í Áslandsskóla.
Maki: Þorkell Magnús-
son, f. 1974, verkfræð-
ingur hjá ALDA sjóðir.
Börn: Orri Freyr, f. 1999,
Elín Klara, f. 2004, og
Magnús Logi, f. 2012.
Foreldrar: Sigtryggur Ingi
Jóhannsson, f. 1948, vél-
stjóri, og Sigurborg Þóra
Helgadóttir, f. 1950, hús-
móðir.
Helga Huld
Sigtryggsdóttir
30 ára Eydís er frá Hellu
og er nýflutt þangað aft-
ur. Hún er íþróttaheilsu-
fræðingur að mennt.
Maki: Víðir Reyr Þórsson,
f. 1971, bóndi á Kastala-
brekku við Hellu.
Börn: Veigar Þór, f. 2006,
Vikar Reyr, f. 2008, og
Víðir Snær, f. 2013.
Foreldrar: Tómas Tómas-
son, f. 1959, vinnur hjá
Landgræðslunni, og
Ólafía Eiríksdóttir, f. 1963,
vinnur á Skattst. á Hellu.
Eydís Hrönn
Tómasdóttir
40 ára Hólmfríður er frá
Höfn, býr í Rvík og er líf-
fræðingur og framhalds-
sk.kennari v/ Flensborg.
Maki: Ingvaldur Mar Ing-
valdsson, f. 1974, við-
skiptafræðingur hjá VÍS.
Börn: Ísak Sölvi, f. 1999,
Tómas Orri, f. 2003, og
Embla María, f. 2007.
Foreldrar: Sigþór Guð-
mundsson, f. 1931, d.
2008, bókari, og María
Marteinsdóttir, f. 1935,
skrifstofum., bús. á Höfn.
Hólmfríður
Sigþórsdóttir
Ása Vala Þórisdóttir hefur varið dokt-
orsritgerð sína „Mataræði og járnbú-
skapur íslenskra ungbarna - í kjölfar
endurbættra ráðlegginga um mat-
aræði ungbarna“ við Matvæla- og
næringarfræðideild á Heilbrigðisvís-
indasviði Háskóla Íslands.
Markmið rannsóknarinnar sem
doktorsritgerð þessi byggist á var að
auka þekkingu á járnbúskap ungbarna
og tengslum hans við mataræði og
vöxt á fyrsta ári. Enn fremur var mark-
miðið að meta áhrif endurbættra ráð-
legginga á mataræði og járnbúskap
barnanna.
Á árunum 1995-97 var járnskortur
ungbarna algengt vandamál hér á
landi og mikil neysla kúamjólkur
tengdist honum sterkt. Járnskortur á
ungbarnaskeiði tengdist síðan verri
útkomu úr þroskaprófi sem gert var
þegar börnin urðu 6 ára. Í kjölfar þess-
arar rannsóknar komu opinberar ráð-
leggingar um mataræði ungbarna út í
endurbættri útgáfu árið 2003. Þar er
lögð aukin áhersla á brjóstagjöf og
járnbætt stoðmjólk ráðlögð frá sex
mánaða til tveggja ára aldurs í stað
hefðbundinnar kúamjólkur.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar á
landsúrtaki ung-
barna, sem fædd-
ust árið 2005,
sýna áhrif end-
urbættra ráðlegg-
inga um mat-
aræðið. Hærra
hlutfall barna var
nú á brjósti út
fyrsta árið og járn-
skortur meðal barnanna var næstum
horfinn. Stærsta breytingin á mat-
aræði barnanna frá því áður en ráð-
leggingunum var breytt var að neysla
á stoðmjólk hafði að miklu leyti komið
í staðinn fyrir neyslu á hefðbundinni
kúamjólk, sem er í samræmi við ráð-
leggingarnar. Tölfræðileg tengsl milli
járnbúskapar við 12 mánaða aldur og
útkomu þroskaprófs við 6 ára aldur
(2011) voru veikari nú en í fyrri ung-
barnarannsókninni, líklega vegna þess
að járnskortur á ungbarnaskeiði sást
varla meðal barnanna sem fædd voru
2005. Rannsóknin sýnir fram á mik-
ilvægi forvarna snemma á lífsleiðinni,
til að koma í veg fyrir járnskort á ung-
barnaskeiði, þegar líkaminn er hvað
viðkvæmastur vegna örra breytinga í
tengslum við vöxt og þroska.
Doktor í næringarfræði
Ása Vala Þórisdóttir er fædd 1981. Hún lauk BS prófi í líffræði frá Háskóla Ís-
lands árið 2005 og MS prófi í næringarfræði frá Háskóla Íslands 2007. Hún hóf
doktorsnám í næringarfræði haustið 2008. Ása Vala hefur verið stundakennari
við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og komið að fjölda annarra verkefna
hjá Rannsóknastofu í næringarfræði frá árinu 2007. Hún starfar núna sem rann-
sóknarstjóri á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Foreldrar hennar eru Þórir
Haraldsson, menntaskólakennari og Una Sigurliðadóttir, skólafulltrúi. Sambýlis-
maður Ásu Völu er Rúnar Sigþórsson, viðskiptafræðingur og eiga þau dótturina
Urði Evu.
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIRÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Skoðið verðin á heimasíðu okkar