Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Page 3
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt
af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum
saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf.
www.gamma.is
Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� �
Systurnar Pálína Árnadóttir og Margrét Árnadóttir mynda stundum hálfan strengjakvartett.
Pálína:Hljóðfæraleikarar vinna í nokkuð sérhæfðum
heimi. Margrét: Já, við notum jafnvel okkar eigin hug-
tök til að lýsa spilastíl og tækni. Til dæmis þykir oft
gott að strengjaleikarar spili nótur með því að „húkka“.
Það hljómar líka furðulega þegar óvant fólk heyrir
okkur tala um að spila við „froskinn“ eða „oddinn.“
Þó að tengslin milli meðlima Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands geti verið með
ýmsum hætti þá eru systkin innan
sveitarinnar frekar óalgeng í sögu
hennar. En það dylst engum að þær eru
systur þær Pálína og Margrét Árna-
dætur, þó svo að litatónninn í bylgjuðu
hárinu sé ekki alveg sá sami.
Báðar lögðu þær tónlistina fyrir sig á
sínum tíma og völdu strengjahljóðfæri
til að leika á, Pálína valdi fiðlu en
Margrét selló og þær geta því fyllilega
myndað betri helminginn af strengja-
kvartett ef svo ber undir.
Þær systur eru samstíga um flest allt og
lærðu t.d. báðar hljóðfæraslátt sinn við
hinn virta Julliard tónlistarháskóla í New
York sem þykir einn sá allra virtasti í
heimi. Tónlist er þeim systrum í blóð
borin og þess má til gamans geta að
faðir þeirra, Árni Arinbjarnarson, er
mikill tónlistarmaður sem leikið hefur
bæði á orgel og með Sinfóníuhljómsveit
Íslands á fiðlu til fjöldamargra ára.