Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Blaðsíða 15
mín að seljast. Þannig að ég var
heppinn, en ferillinn var líka að
ýmsu leyti heppilegur. Fyrst kom
praktísk húsgagnasmíði, síðan ný-
listin og svo málverkið, en ég byrj-
aði að mála á hárréttum tíma og
varð að nokkru leyti brautryðjandi í
málverkinu því svo fáir voru að
sinna því. Þegar fimmta hefti Ís-
lensku listasögunnar, sem rifist er
um, er opnað þá er ég fyrsti lista-
maðurinn sem fjallað er um þar.
Það er vegna þess að tíminn vann
með mér.“
Búið að eyðileggja
sölumarkaðinn
Það er alltaf öðru hverju mikið rætt
um listamannalaun. Hefur þú notið
góðs af þeim?
„Ég fór snemma að selja vel og
þá sótti ég ekki um starfslaun. Svo
komu tímabil þar sem ég vildi
gjarnan fá starfslaun en fékk ekki
starfslaun þannig að ég varð að
treysta á söluna. Ég er ekki í
áskrifendaflokki starfslauna. Ef
listamaður liggur undir grun um að
hafa selt mikið þá fær hann ekki
starfslaun því þeim virðist vera út-
hlutað eftir félagslegum línum. Ég
er ekki á móti starfslaunum því þau
eiga rétt á sér og reyndar stöðugt
meiri rétt á sér, eftir því sem mis-
skiptingin í þjóðfélaginu verður
meiri þá þurfa listamenn mjög á
þeim að halda.“
Hvernig hefur þér gengið að lifa
á list þinni?
„Það gekk mjög vel fram að
hruni. Núna er eiginlega búið að
eyðileggja sölumarkaðinn í mynd-
listinni því fólkið sem áður keypti
myndir á engan pening lengur. Það
er mjög alvarlegt að á Vestur-
löndum, þar á meðal hér á landi, sé
búið að rústa millistéttinni. Pening-
arnir fara á mjög fáar hendur sem
hefur mjög slæm þjóðfélagsleg
áhrif. Ég var á Indlandi síðastliðinn
vetur og þar er lágstéttin mjög fjöl-
menn en millistéttin er þó vaxandi
meðan við á Vesturlöndum stefnum
í hina áttina. Ég vil að millistéttin
sé sterk og fjölmenn og tel það far-
sælast fyrir alla.“
Fyrrverandi
sjálfstæðismaður
Ég veit að þú varst sjálfstæðis-
maður, ertu það ennþá?
„Ég kem úr allaballafjölskyldu,
en varð svo hálfgerður krati og eftir
hinn margfræga framsóknaráratug,
sem sagður er hafa verið hræðileg-
ur, varð ég sjálfstæðismaður og
gekk í Sjálfstæðisflokkinn upp úr
1980. Ég var ánægður þar og milli
1990 og 2000 þá var ekki annað
hægt að segja en land og þjóð væri
í góðum málum. Ég man að ég mál-
aði mynd árið 2000 sem hét Gull-
kálfurinn en þá var ég farinn að
finna að peningahyggjan væri að ná
æ sterkari tökum á þjóðinni. Við
jógarnir tölum mikið um jafnvægið
sem þarf að vera á milli andlega
lífsins og hins efnislega og til að
geta stundað andlegt líf þurfum við
að hafa afkomu. Óhófleg gróða-
hyggja raskar þessu jafnvægi eins
og fátæktin gerir sömuleiðis. Undir
lok góðæristímans var eitthvað um
varnaðarorð og ég var svo heppinn
að lesa rétt í stöðuna og seldi hluta-
bréf sem ég átti. Ég gerði hins veg-
ar ekki ráð fyrir að hrunið yrði nán-
ast algjört.
Eftir að í ljós kom að Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlaði ekki að
gera upp við fortíðina heldur láta
eins og ekkert hefði gerst þá sagði
ég mig úr flokknum. Mér fannst
flokkurinn vera úr tengslum við
raunveruleikann og fólkið í landinu
þannig að ekki væri hægt að kjósa
hann. Síðan hef ég kosið ný
framboð. Ég er að bíða eftir því að
gerðar verði breytingar á
stjórnarskránni og er hlynntur
þjóðaratkvæðagreiðslum í málum
þar sem það hentar, eins og til
dæmis um framhald aðildar-
viðræðna við Evrópusambandið.
Mér finnst líka rétt að taka upp
nýja mynt því ef krónan var ónýt í
góðærinu þá get ég ekki séð að
þjóð, sem er illa stödd eins og við
erum, sé betur sett með hana
núna.“
Hinn andlegi
heimur í myndum
Í tilefni sextugsafmælisins heldur
Daði málverkasýningu í Gallerí
Fold. „Verkin sem ég sýni í Gallerí
Fold eru verk sem hafa orðið til á
nokkrum árum. Ég kalla sýninguna
Landslag, sjólag og sólir og þarna
eru myndir af fjöllum, sjó og sól,“
segir hann. „Íslenskir listmálarar
hafa málað fjöll í miklu mæli og ég
geri það líka. Þeir hafa hins vegar
lítið sinnt því að mála sjóinn, nema
Scheving sem gerði það fallega og
svo Kjarval sem sinnti því nokkuð.
Svo er sólin bæði stór og áberandi í
myndum mínum enda heldur hún
öllu gangandi og er stórkostlegt afl.
Þessar myndir eru í anda þess sem
ég hef leitast við að gera hin seinni
ár sem er að gera myndir sem end-
urspegla hinn andlega heim. “
„Svo er sólin bæði stór og áber-
andi í myndum mínum enda
heldur hún öllu gangandi og er
stórkostlegt afl,“ segir Daði.
* Núna er eiginlega búið að eyðileggjasölumarkaðinn í myndlistinni þvífólkið sem áður keypti myndir á engan
pening lengur. Það er mjög alvarlegt að
á Vesturlöndum, þar á meðal hér á landi,
sé búið að rústa millistéttinni. Peningarnir
fara á mjög fáar hendur sem hefur mjög
slæm þjóðfélagsleg áhrif.
Morgunblaðið/Kristinn
11.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf.
Borgartún 34, 105 Reykjavík Sími: 511-1515, Fax: 511-1511
Netfang: outgoing@gjtravel.is, veffang: www.ferdir.is
Nánar á ferdir.is
Nýtt á ferdir.is
Salsaferð til Kúbu
með Heiðari Ástvaldssyni
danskennara. 11.-23. október.
Lærið salsa á Kúbu. 12 daga ferð,
gist eina nótt í París á útleið.
Dvalið í Havana og Varadero á Kúbu
Flogið með Icelandair og AirFrance.
Verð frá 391.100,-
Suður-England
og Wales
12.-18. ágúst.
Ein vinsælasta ferðin okkar. Ekið um borgir og
þorp í hjarta Englands og komið víða við.
Skemmtileg og fræðandi ferð.
Skoðunarferðir alla daga og hálft fæði innifalið.
Flogið með Icelandair.
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson
Verð frá 178.800,-
IAA-ferð
25.-28. september.
Ferð á atvinnubifreiðasýninguna í Hannover.
Þar sýna allir helstu framleiðendur það nýjasta í framleiðslu sinni,
auk fjölda annarra framleiðanda sem sýna ýmsa bifreiðahluti.
Flogið með Icelandair.
Fararstjóri er Gunnar Guðmundsson.
Verð frá 137.000,-
Jólamarkaðsferð
til München
4.-7. desember.
Á aðventunni eru þýskar borgir baðaðar
jólaljósum og jólastemmningin einstök.
Flogið með Icelandair.
Verð frá 107.500,-