Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Blaðsíða 33
RIFIÐ SVÍNAKJÖT
Handa 8
200 g púðursykur
1 msk. reykt paprika
2 msk. paprika
2 msk. laukduft
1 msk. hvítlauksduft
1 msk. borðsalt
2 tsk. nýmulinn svartur pipar
2,5 kg svínahnakki í 1-2 heilum
stykkjum.
Setjið púðursykur, papriku og
krydd í miðlungsstóra skál og
blandið vel saman.
Takið til ofnpott með loki. Setjið
svínahnakkann í pottinn ásamt
helmingnum af kryddblöndunni.
Nuddið blöndunni vel inn í aðra
hlið kjötsins, snúið svo kjötinu við
og gerið það sama við hinn helm-
inginn af kryddblöndunni. Þetta lít-
ur út fyrir að vera rosalega mikið
krydd en það er þörf á því öllu!
Setjið lokið á pottinn og látið mar-
inerast inni í ísskáp í 12-16 klukku-
stundir.
Takið kjötið út klukkutíma áður
en það á að fara í ofninn til að það
nái stofuhita. Hitið ofninn í 120°C.
Setjið pottinn með lokinu á inn í
ofn og eldið kjötið í 5 klst. Takið
það svo úr ofninum og rífið það í
sundur ofan í pottinum með tveim-
ur göfflum. Blandið öllum kjötsaf-
anum og kryddinu vel saman við
kjötið.
Berið kjötið fram með tor-
tillakökum og alls kyns meðlæti.
Það er mjög gaman að hafa eins
konar „tacobar“ og leyfa gestum
að setja saman sín eigin taco með
því sem þeim finnst gott. Þá er gott
að hafa t.d. súrsaðan rauðlauk,
sýrðan rjóma, chipotle-sósu,
guacamole, salsa, grillaðan maís,
ferskan kóreander, nachos, rifinn
ost o.s.frv.
SÚRSAÐUR
RAUÐLAUKUR
1 stór rauðlaukur
½ tsk. sykur
½ tsk. salt
3⁄4 bollar eplaedik
Sjóðið lítra af vatni. Sker-
ið laukinn á meðan í sneið-
ar; hálfhringi. Setjið laukinn
í sigti og hellið sjóðandi
vatninu hægt og rólega yfir
hann.
Setjið sykur, salt og edik í
miðlungsstóra skál og hrær-
ið vel saman. Setjið laukinn
saman við og veltið upp úr
edikblöndunni. Setjið plast-
filmu yfir skálina og látið inn
í ísskáp. Laukurinn þarf að
bíða í a.m.k. 30 mínútur áð-
ur en hann er borinn fram
en er alls ekki síðri eftir
nokkra klukkutíma í ísskáp.
Tortillur með hægelduðu rifnu svínakjöti
og súrsuðum rauðlauk
11.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur
munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur
tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extraminnkar upptöku hitaeininga og dregur
það úr streitu í amstri hversdagsins.