Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014
HEIMURINN
SU
PRE
þjóð
fylgi
96%
sem fram fó
Er þetta nær s
urANC var með
nú verið við vö
Lýðræðisband
A
mstóll
f Badawi í 10 ára fabloggarann Rai
am” og koma á fót frjálslyndriað ,,móðga ísl
g þarf hann að sæta 1.000vefsíðu. Einni
m og greiða milljóna ríala sekt, uvandarhöggu
króna. Badawi var handteki20 milljónir
ýknaður af ákæru um guðlaHann var s em hefði þýtt dauðadóm.
U
EOU
300 far
í Suðferjuslysinu
föyndu áskömmu re
omast inn
áorseta landsins
með Park Geun-
Vildu ættingjarnir
firá því sem þeim f
a þeimnnigær
ð ferjangð.
i hvolft.
ESB
BRUSSEL farandi forsetiel Barroso,Jose Manu
, segir aðbEvrópusamframkvæmdastjórnar
m aðumgjullnæ a kröffinna verði leið til að f
ndsins til Londofnunum sambavöld verði færð frá st
g efnahagslegaroFyrir því séu ,,söguleg
ð sýna öðrumástæður”. Hins vegar v
aðildarríkjum sams ko
Þegar árið 2010 skilgreindu
Bandaríkin þrjá af æðstu
liðsmönnum Boko Haram
sem hryðjuverkamenn. Í
Washington óttuðust menn
að samtökin ættu samstarf
við hópa, tengda al-Qaeda, í
Afríku. En hvers vegna ekki
fyrr og hvers vegna fengu
samtökin öll ekki þessa skil-
greiningu fyrr en 2013?
Stjórn Baracks Obama
forseta óttaðist að þá fengju
Boko Haram-liðar ókeypis
auglýsingu, þannig
„frægð“ myndi auð-
velda hópnum að fá
nýja menn til liðs
við sig. Og stjórn-
völd í Nígeríu voru
sömu skoð-
unar.
H
áðsglott og rudda-
legt fliss byssu-
manns í her-
klæðum, drafandi
rödd, sennilega
vegna neyslu fíkniefna. Foreldrum
hótað að dætur þeirra, sem nýlega
var rænt úr heimavistarskóla,
verði seldar á uppboði þótt líklegra
sé að heimtað verði fyrir þær
lausnargjald. Myndskeiðið sem
Abubakar Shekau, einráður leið-
togi Boko Haram, sendi frá sér
nýlega vakti hrylling um allan
heim.
Liðsmenn Boko Haram berjast
gegn öllum vestrænum áhrifum en
líka öllum sem ekki samþykkja
ýtrustu túlkun á gömlum lögum og
hefðum íslams. Meðal þess sem er
bannað er þátttaka í kosningum,
að nota buxur eða skyrtu og að
sjálfsögðu veraldleg menntun.
Stúlkurnar umræddu eru margar
kristnar, aðrar múslímar en hinar
síðarnefndu og foreldrar þeirra eru
ekki síður sek, samkvæmt túlkun
Shekau. En einn af mikilvægustu
þáttunum í þeim gömlu hefðum ísl-
ams sem hann stendur fyrir er
baráttan gegn því að konur mennti
sig. Þær eiga bara að giftast og
eignast börn.
Hann er ekki einn um þessa
túlkun, talíbanar í Afganistan og
fjöldi annarra ofstækisfullra hreyf-
inga íslamista, sem boða heilagt
stríð fyrir trúna, jihad, eru sam-
mála.
Grimmdin í orðum og framferði
Shekau og Boko Haram er þraut-
hugsuð, að sögn þeirra sem hafa
fylgst með samtökunum. Þeir vilja
hræða almenning frá því að svara
fyrir sig og jafnframt laða til sín
örvæntingarfulla, atvinnulausa
unga menn sem vilja slást. Menn
sem fá heilagan málstað íslams í
bónus. Og hugsanlegt er að stúlk-
unum sé ætlað að verða kynlífs-
leikföng þeirra.
Shekau er sagður geta hugsað
sér að semja um vopnahlé við
stjórnina í Abuja en reyna nú að
styrkja vígstöðu sína, þvinga ráða-
menn til samninga. Því fer fjarri
að Shekau og liðsmenn hans sé yf-
irleitt ólæsir rustar, þeir eru flestir
með grunnskólaám að baki og hafa
jafnvel lokið framhaldsnámi. En ef
hrottalegt lífsviðhorf þeirra væri
aðeins bundið við fámenna víga-
hópa væru þeir lítil ógn.
„Hvernig á að útskýra fyrir
furðu lostnum Vesturlandabúum
þetta fyrirbæri, fyrir fólki sem
núna virðist hafa meiri áhuga
á að sverta þá sem gagnrýna
jihadista með orðum eins og
„íslamshatari“ en að taka
til varna fyrir grundvall-
arréttindi kvenna?“ spyr
Ayaan Hirsi Ali, sómölsk kona sem
flýði heimaland sitt vegna kúgunar
múslíma.
Hún segir það reginmisskilning
að kenningar Boko Haram séu ein-
angrað fyrirbæri í Afríku. Vaxandi
afl jihadista í Nígeríu og fleiri ríkj-
um sé mesta ógnin sem konur á
svæðinu horfist í augu við.
Trúarmiðstöð varð
bæli jihadista
Boko Haram-menn ræna enn
stúlkum á svæðum þar sem lítið er
um varnir, sl. mánudag eru þeir
sagðir hafa drepið um 300 manns í
litlum bæ. Í sumum stærri borg-
unum hafa íbúar myndað vopnaðar
sjálfboðaliðssveitir og þá leggja
Boko Haram-menn ekki til atlögu.
Þeir finna auðveldari fórnarlömb,
einkum á svæðum í norðaustur-
hlutanum sem eru afskekkt og erf-
ið yfirferðar vegna mikilla frum-
skóga.
En hver er uppruninn? Sam-
tökin voru stofnuð árið 2002 í
borginni Maiduguri, fyrsti leiðtog-
inn var múslímaklerkurinn Mu-
hammed Yusef. Hann stofnaði
trúarmiðstöð með skóla og mosku.
Margar fátækar fjölskyldur frá
Nígeríu og grannríkjunum sendu
börn sín í skólann sem notaður var
til að safna nýliðum fyrir jihadista.
Það var ekki fyrr en 2009 sem
fyrstu átökin urðu, árás var gerð á
lögreglustöðvar og fleiri byggingar
í Maiduguri. Hundruð Boko Ha-
ram-manna féllu, þ.á m. Yusef.
Arftakinn, Shekau, hefur fært út
kvíarnar og boðar nú jihad um alla
Nígeríu og jafnvel heiminn.
Þúsundir hafa fallið í árásum á
lögreglustövar og mannskæð
sprengjutilræði hafa verið í suður-
héruðunum og höfuðborginni,
Abuja, þar sem um 70 manns féllu
í fyrra. Þótt trúflokkarnir, múslím-
ar og kristnir, skiptist á um að
skipa forsetaembættið í Abuja
segja Boko Haram-liðar það engu
skipta og gera mjög út á hrikalega
misskiptingu auðs í landinu. Spill-
ingin virðist einnig óviðráðanleg.
Jarðvegurinn er því víða frjór fyrir
hatursáróður íslamista í fátækustu
héruðunum í norðri, þangað renn-
ur lítið af olíutekjunum frá lind-
unum miklu í suðurhlutanum.
Hyldýpi
mannvonsk-
unnar
LÍTIL, OFSTÆKISFULL SAMTÖK ÍSLAMISTA Í NORÐAUST-
URHLUTA NÍGERÍU HAFA NÁÐ ATHYGLI UMHEIMSINS MEÐ
GRIMMD SINNI. EITT HELSTA MARKMIÐ ÍSLAMISTANNA ER
AÐ BERJAST GEGN MENNTUN KVENNA.
Boko
Haram-liði.
STIMPILL OG FRÆGÐ
Mæður stúlkna sem rænt var úr heimavistarskóla í bænum Chibok í Nígeríu bíða eftir upplýsingum um stöðu mála frá
embættismönnum stjórnvalda í Abuja. Forseti landsins fullyrðir að ránið marki upphafið að endalokum Boko Haram.
AFP
* Ég nýt þess að drepa alla sem Guð skipar mér aðdrepa, eins og ég nýt þess að drepa kjúklinga og hrúta.Abubakar Shekau, leiðtogi samtakanna Boko Haram.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is